24. maí 2008

Weezer has won the internetz!

Já, það er orðið aaaaansi langt síðan ég bloggaði síðast. Þetta verður örugglega soldið löng færsla með nokkrum vídjóum, so beware.

Heyrðu, já... Ég er náááánast búinn í prófum. Ég á eitt próf í Greiningu Rása eftir um miðjan júní og svo er maður bara útskrifaður. Ég var alveg vel sáttur við einkunirnar mínar núna. Rúmlega 7 í meðaleinkunn, þannig að það er bara flott.

Strax nóttina eftir síðasta prófið mitt í maí fór ég í Árshátíðarferð með Vodafone til Alicante. Þetta var sveittasta og sóðalegasta djammið mitt hingað til, en jafnframt eitt það skemmtilegasta líka. Þetta var stanslaust djamm frá fimmtudegi til mánudags. Rútínan var svona:

  • Vakna um hádegi milli 11 og 12.

  • Fara á torgið hinu megin við götuna frá hótelinu og fá sér Tequilla Sunrise (sem var, btw, besta Tequilla Sunrise sem ég hef fengið)

  • Fengið sér bjór og random drykki yfir daginn.

  • Kvöldmatur sem var annað hvort á torginu eða hótelinu.

  • Djamm á torginu fram á nótt.

  • Haldið áfram var að djamma í hótelherbergjum til 7 um morguninn

  • Morgunverðarhlaðborð

  • Svefn

  • Rinse and repeat

Þetta var mjög sveitt. Það er samt alveg ótrúlegt hvað sumir geta ekki verið sér til sóma og gera ákveðna hluti á hótelinu sem mér blöskarði við, amk svona eftirá. Svona í alvöru. Þegar ég var í einu partíi á svölunum í einu hótelherberginu, þá kemur einn strákur inní hótelherbergið og tæmir slökkvitæki inní herberginu. Sá hinn sami kýlir í svona brunaslöngu kassa á ganginum, brýtur glerið á kassanum og rústar á sér hendinni. Er þetta fyndið? In the moment, já... Er þetta kúl? Nei...

Danni var vel fullur í þessari ferð, sem var alveg fáránlega fyndið að sjá. Check it:





HAHAHA... Ég fæ ekki leið á þessum vídjóum, sko. Danni er alltaf svo hellaður þegar hann er fullur. Eftir þetta, þá fórum við nokkur á mitt hótelherbergi og vorum eitthvað að tjill og ég og Danni lendum í fáránlegasta rifrildi sem ég hef lent í. Það var um það að þegar Danni var á torginu, þá ældi hann og eftir það þá þurkaði hann sér um munninn með Tal svitabandi sem hann var með. Það var ekkert endilega æla sem hann þurkaði, bara bleyta. Þegar við vorum á herberginu, þá hló ég að því að Danni hafi þurrkað sér í þetta band, sem hann elskar, og hann mundi ekki eftir því og gjörsamlega brjálaðist. Það endaði með því að Danni sagði, "Ég trúi þessu ekki uppá þig Gísli. Ég hélt að þú værir betri vinur en þetta. Farðu í rassgatt..." og hann skellti hurðinni á eftir sér. Hann mundi ekki eftir þessu daginn eftir... Hahaha...

Ég kom svo heim á þriðjudags morgun kl 4 og mætti í vinnuna í Landsbankann kl 9. Það var skrautlegur dagur. Yfirmaðurinn sagði að ég ætti bara að taka hálfan dag, en ég kláraði daginn. Það er bara fínt að vera byrjaður þar aftur. Hellingur að gera og fanta gaman.

Mig langar að vita eitt. Hvað er málið með þjóðarstolltið? Svona seriously... Núna er Eurovision í gangi og er þetta fyrsta skipti í 4 ár sem við komust í aðalkeppnina og maður er alltaf að heyra íslendinga segja að við séum að fara að vinna þetta núna. Slakið aðeins á. Ég spái 10. sæti. Ég er raunsær. Þetta er gott lag, en ég trúi ekki að það fari að vinna, sko. Sjáum til á eftir.

Það hafa kannski sumir verið að vellta fyrir sér afhverju ég gaf þessum pósti þennan titil. Það er einfaldlega vegna þess að Weezer ERU búnir að vinna. Það nær enginn að toppa þá. Tékkið á þessu myndbandi:



Já! Já! Við erum að tala um Daft Bodies, Numa Numa guy, black karate dude Afro Ninja, dramatic look gopher, Tay Zonday, Chris Crocker, Mentos + Coke, Peanutbutter Jelly Time o.fl. Allt í sama myndbandi. Aaaaaalgjört gull. Weezer wins at internetz...

Ég fór á Indiana Jones 4 í gær. Ég verð bara að segja eitt... EKKI FARA Á HANA!! Hún er hræðileg; bara algjört rugl! Fyrir mér eru bara þrjár Indy myndir...

Nenniggi að skrifa meira, enda komið alveg nóg. Það verður kannski langt í næstu færslu þar sem ég er alltaf að læra fyrir prófin á daginn og er ekki einu sinni á MSN á virkum kvöldum lengur.

Kv. G