22. apríl 2008

Svona gerist þegar ég læri fyrir próf...

...ég fæ BSOD...

BSOD

Kv. G

21. apríl 2008

gislikonrad.com

Jebb... Ég er búinn að flytja vefinn, eins og flestir ættu að sjá. Þessi síða er tímabundinn hér, þar sem éttla þróa nýjan vef með mínu eigin fréttakerfi og setja hingað. :)

0/6

Ég er að fara í próf á morgun í Hugbúnaðarverkefni 2. Fyrsta prófið af 6. Maður er bara að lesa á fullu og hefur lítið tíma í annað, þótt það sé mjög algengt að maður geri bara eitthvað annað þegar maður á að vera að læra fyrir próf. Íbúðin mín er yfirleitt aldrei jafn fín og þegar ég er í prófum. :D

Annars er bara lítið að frétta. Maður er bara búinn að vera á fullu í skólanum. Þetta er loksins að verða búið. Ég vildi bara láta heyra í mér; láta vita að ég sé ennþá á lífi. :D

Heyrumst...

Kv. G