I'm back, baby!
Já, það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði. Það er búið að vera svo klikkað að gera í skólanum að ég hef bara haft svo lítinn tíma til að blogga. Ef ég fæ einhvern frið frá skólanum, fer tíminn í að vinna, horfa á skemmtilega þætti eða spila smá XBox.
Ég er orðinn algjörlega húkkt á Whose line is it anyway? síðustu vikur. Þessir menn eru algjörir snillingar. Ryan Stiles og Colin Mochrie eru snillingar saman, Wayne Brady er brilljant í að semja lög á staðnum og auka mennirnir Greg Proops, Brad Sherwood, Chip Esten og Jeff Davis... úff... Snillingar. Hér eru tvö mjög góð sketch:
Ég tók þátt í Ofurnörd um daginn. Það er keppni sem er einu sinni á ári á milli nemendafélag tölvunarfræðinema í HÍ og nemendafélag tölvunarfræðinema í HR. Keppt var í fótbolta (2 stig), Quake (2 stig), spurningakeppni (2 stig), vélritun (1 stig), Guitar Hero (1 stig) og bjórþambskeppni (2 stig). Við byrjuðum á því að tapa fótbolta og Quake, en unnum svo rest. Það var mjög spennandi.
Ég keppti í Guitar Hero, en þegar það kom að mér þá vorum við búin að vinna Guitar Hero. Það voru sko þrír sem kepptu frá hvorum skólanum og við vorum búin að vinna í Easy og Medium. Ég og strákurinn sem ætlaði að keppa á móti mér í Expert ákváðum samt að taka lagið. Við tókum My Name is Jonas og þá gerðist þetta: (afsakið hljóðgæðin)
Já, ég rokkaði svo mikið að rafmagnið fór af húsinu. Ég var 10000 stigum yfir þegar það gerðist, þannig að ég var að vinna. Við ákváðum að keppa aftur seinna um kvöldið til að ráða úrslitum okkar á milli og tókum þá Knights of Cydonia. Ég rústaði... ;)
Í gær (mánudaginn) var St. Patrick's Day. Algjör snilld! Góð afsökun til að fá sér bjór... ;) Vantaði bara græna matarlitinn í bjórinn. Þá er komin önnur útlensk hátíð til að fagna. Hinar sem sagt Valentine's Day og Pancake Day! :D
Ég er kominn með vinnu hjá Landsbankanum aftur. Ég fór og ræddi við þá nokkrum sinnum um daginn og var að enda við að skrifa undir fyrir nokkrum dögum síðan. Djöfull er ég ánægður. Núna er bara að rústa þessum kúrsum sem ég er í og svo er ég bara búinn. BÚINN! Orðinn Tölvunarfræðingur og farinn að vinna...
Orðinn... fullorðinn...? :o
Ég er víst að fara til Alicante í maí. Talandi um eitthvað sem átti bara að gerast. Ég var löngu búinn að sjá að síðast prófið mitt er 15. maí. Þegar ég sá það sagði ég við Landsbankann að ég myndi byrja hjá þeim 20. maí. Síðan var tilkynnt að árshátíð Vodafone yrði á Alicante og fyrri hópurinn færi 16.-19. maí. Hversu vel passaði það? Ég bara gat ekki sagt nei við þessu. Ég þarf að borga elminginn í ferðinni vegna þess að ég er í 40% starfi (ef ég hefði verið í 50%+ starfi, hefði ég fengið allt borgað fyrir mig), en þetta er of gott til að sleppa og passar alveg fáránlega vel. Hlakka ekkert smá til. Strax og ég veit kl hvað flugið er, þá set ég teljara hér til hliðar við USA teljarann... :D
Ég er núna bara í páskafríi að læra og horfa á Coupling með öðru auganu. Ég er að horfa á Coupling í fyrsta skiptið. Já, gott fólk. Ég hafði aldrei séð Coupling, en núna í þessum töluðu orðum var síðasti þátturinn að enda. Þetta eru gjörsamlega snilldar þættir.
Sjónvarpsefni... úff... Það gjörsamlega hellist yfir mann núna eftir að WGA verkfallinu lauk úti í BNA. Nýjir þættir að byrja, eins og Unhitched, gamlir að klárast, eins og Stargate: Atlantis og aðrir sem halda bara áfram, eins og Reaper. Ég bíð samt alveg rosalega spenntur eftir að sjá hvernig Heroes heldur áfram. Ég veit ekki hvað fólk var að kvarta yfir 2. seríu. Mér fannst hún snilld.
Verkefnið sem ég er að gera núna er fyrir Tölvugrafík. Ég er að gera módel af sólkerfinu okkar sem maður getur ferðast í gegnum og skoðað pláneturnar (ekki lent á þeim eða neitt solleis... haha). Mjög skemmtilegt, en líka mjög erfitt. Ég skelli því kannski bara hingað inn þegar það er búið. :P
Jæja... núna er ég búinn að raula í allt of margar málsgreinar og efast ég um að fólk hafi nennt að lesa þetta allt. Ég kveð þá bara í bili og bið ykkur um að commenta as usual... ;)
Kv. G