22. febrúar 2008

I think I just peed a little...

...yes, I am that excited...



Kv. G

20. febrúar 2008

Minns er þreyttilíus...

Sjitt, sko... Ég var að læra í gærkvöldi, að forrita módel af sólkerfinu fyrir Tölvugrafík. Það gékk allt svona bærilega. Síðan ákvað ég að líta á klukkuna. "SJITT! KLUKKAN ER 5!!" Ég hélt áfram í ca. klukkutíma að gera annan lið í þessu verkefni og fór ekki uppí rúm fyrr en kl 6, en auðvitað gat ég ekki sofnað. Ég er alveg ósofinn núna og fer að vinna á eftir kl 16, þannig að það verður skrautlegt. Ef þú, lesandi góður, ert viðskiptavinur hjá Vodafone og netið þitt bilar í kvöld og þú ætlar að hringja í nethjálp, skalltu biðja til guðs að þú lendir ekki á mér!

Ég fór í gær á óformlegan fund í Landsbankann varðandi vinnu. Ég byrja víst þar í fullu starfi 20. maí. Þvílík snilld! Miklar breytingar hafa verið gerðar á deildinni sem ég var í, en þetta er allt mjög spennandi.

Já, það er langt síðan ég hef bloggað. Það er aðallega vegna þess að ég var gjörsamlega að skíta uppá hnakka í skólanum. Það voru sett 4 stór verkefni fyrir á sama tíma og áttu þau öll að skilast í lok síðustu viku. Þetta voru STÓR verkefni og náði ég bara að klára tvö þeirra (annað var Tölvugrafík sem ég var að skila áðan, of seint). Ég ákvað að tala við skorarformann yfir Tölvunarfræðinni og fékk ég að segja mig úr Tölulegri Greiningu og Reiknigreind og skrá mig í auðveldari kúrsa í staðinn. Töluleg Greining og Reiknigreind voru þyngstu kúrsarnir mínir og voru þessi tvö verkefni sem ég náði ekki að klára í þeim. Ég skráði mig í Greiningu Rása og Alþjóðlega Markaðssetningu Hugbúnaðar í staðinn. Greining Rása er kúrs sem ég fæ að taka próf sem gildir 100% í og tek ég á þessum kúrs í páskafríinu. Alþjóðleg Markaðssetning Hugbúnaðar er kúrs sem kenndur verður í áföngum yfir önnina og er ekki einu sinni byrjað að kenna hann. Ég er bara í góðum málum núna! :D

Við erum byrjuð að læra Fjölni í Forritunarmálum. Fjölnir er íslenskt forritunarmál. Það er mjög spes að skoða kóða sem skrifaður er í fjölni. Eins og t.d.
 z:=x, y:=[],
 ;; x=z=[x1,...,xN], y=[]
 meðan z lykkja
    ;; Fastayrðing: z=[xI,...,xN], y=[xI-1,...,x1]
    y:=\haus z : y,
    z:=\hali z,
 lykkjulok,
 ;; y=[xN,...,x1]

Þetta er aðallega kennt hjá okkur vegna þess að kennarinn þróaði þetta á sínum tíma. Mjög spes að vinna á íslensku... hehehe...

Á föstudaginn var þrifadagur hjá Vodafone. Þegar það er þrifadagur þá eru allar deildir að keppast um þrifalegustu deildina og allar deildir eru með þema. fólk fer í búninga sem samsvara þemað. Þemað í nethjálpinni var heimilislausir rónar. Maður klæddi sig upp í viðbjóðsleg, illa lyktandi (ég helti bjór yfir fötin daginn áður, lyktin var partur af búningnum) og rifin föt. Við vorum með úti bekk í nethjálpinni og settum við dagblöð þar og lögðumst á bekkinn. Þetta var algjör snilld. Við vorum tveir úr nethjálpinni sem fórum skrefinu lengra með búningana okkar og þegar kom að því að velja besta búninginn, þá ákvað dómnefndin að velja annan hvorn rónann ásamt starsmanni sem er að vinna í kringlunni. Ég var valinn af rónunum yfir hinn strákinn bara "útaf lyktinni" sagði dómnefndin. HAHAHA! :D

Ég set myndir frá þrifadeginum inn eftir smá stund. :D

[EDIT: Myndirnar komnar upp...]

Kv. G