25. janúar 2008

Fokking veður...

Hvað er málið með þetta veður?!? Djísus kræst, sko. Ég fór út í morgun kl 07:30 og ætlaði að fara uppí skóla til að læra fyrir prófið sem ég fer í á eftir. Ég var ekki kominn uppí skóla fyrr en um kl 09:00. Mér tókst að festa bílinn minn þrisvar á leiðinni út úr götunni minni. ÞRISVAR! Það tók mig klukkutíma að fara 10 metra. Það er algjört met. Það er verra en þegar það tók mig klukkutíma að komast úr Kelduhvamminum frá mömmu og pabba á Toyotunni minni (R.I.P). Það reyndar munaði miklu að þegar ég var að fara úr Kelduhvamminum, þá vorum við þrjú (ég, Benni og mamma) að koma bílnum út á meðan ég var bara einn í morgun. Það er alveg ótrúlegt hvað íslendingar eru lítið hjálplegir. Það keyrðu fullt af bílum framhjá mér, og ekki bara fólk sem var að fara út úr götunni, heldur líka fólk sem var að koma heim til sín. Það var meira að segja einn sem beið þangað til ég loksins kom bílnum mínum frá svo að hann kæmist inní götuna. Hann sat inní hlýja bílnum sínum á meðan ég var með skóflu að moka.

Mér er svo fokking kalt núna. Ég er búinn að vera inná bókasafninu í skólanum að læra fyrir þetta blessaða próf, en ég er svo blautur frá því í morgun og það er ekki kveikt á einum ofni í bókasafninu. Ég gat ekki einbeitt mér á endanum fyrir kulda, þannig að ég fór bara inní tölvustofuna þar sem er mikill hiti frá tölvunum. :D

Djöfull þoli ég ekki svona drasl veður. Ég neita að fá mér jeppa bara útaf svona veðri. Maður réttlætir ekki jeppakaup út af einni viku á árinu. Auk þess fíla ég mig ekki á jeppa. Ég þarf að vera á lágum bíl. Miklu skemmtilegra... :P

Afmælið nálgast. Ennþá opið fjölskylduboð á mánudaginn eftir kl 16. Ég verð með eitthvað vina teiti helgina eftir afmælið. I'll let you guys know. Ég er ekki búinn að bjóða neinum í það ennþá, so don't get your frilly little panties in a twist. ;)

Kv. G

22. janúar 2008

Allt of mikið að gera...

Ég held að það sé alveg klárt. Það er alveg fáránlega mikið að gera hjá mér þessa vikuna. Ég er núna heima að reyna að klára verkefni fyrir Reiknigreind og annað fyrir Tölulega greiningu. Svo þarf ég helst að reyna að klára verkefni fyrir Greiningu reiknirita og Hugbúnaðarverkefni 2 í kvöld eða á morgun. Ég er nefnilega að fara í upptökupróf í Stærðfræðigreiningu IIIB á föstudaginn og hef varla tíma til að læra fyrir það. Ég gæti fræðilega séð gert Hugbúnaðarverkefni 2 eftir að ég er búinn í prófinu, en ég er með vinnu partí heima hjá mér á laugardagskvöldið, ég á afmæli á mánudaginn og ég þarf að skila öðru stóru forritunarverkefni í Tölvugrafík á fimmtudaginn í næstu viku.

Í þeim litla frítíma sem ég hef átt síðustu daga hef ég enduruppgötvað Flight of the Conchords. Þessir menn eru algjörir snillingar! Ég get ekki lýst þeim í orðum, svo éttla setja tvö youtube vídjó af þeim hér.





Business Time er klárlega besta lagið þeirra, en það eru mörg önnur sem eru alveg tryllt fyndin, eins og Jenny, The Humans Are Dead og The Most Beautiful Girl in the Room. Hér er meira...

En já, ég á afmæli mánudaginn 28. jan. Éttla vera með fjölskyldukaffi heima hjá mér þá eftir kl 16. Ef þið eruð skyld mér, endilega mætið... :)

Kv. G