Fátækur!
Sjitt... Geðveikt skrítið. Ég var vakandi frekar lengi í nótt eitthvað að hanga, síðan loksins þegar ég fór uppí rúm, þá sofnaði ég í svona 10 mín og vaknaði svo aftur alveg mjööög hress og gat ekki sofnað aftur. Talandi um ofur power-nap.
En já, ég er sko fátækur núna... Mér tókst að eyða rúmlega 100000kr á föstudaginn. Það var aðallega tvennt sem sá peningur fór í. Í fyrsta lagi skólabækur. Þær kostuðu mig 42000 fyrir 6 bækur. Alveg fáránlega dýrt. Mér tókst ekki að finna neitt notað. Mjööög lame!
(næsta málsgrein er skrifuð alveg sérstaklega fyrir Svamp)
Síðan pantaði ég mér ferð til útlanda fyrir sumarið. Ég, Höddi, Waage og Óli ótitlaði erum að fara í roadtrip frá Boston til Orlando í júlí. ÞAÐ VERÐUR A-W-E-S-O-M-E!!! ...eða, er það skrifað awsome? Mig langaði bara að splurge'a yfir e-miðann minn, ég er svo spenntur. Þessi ferð verður full af galsa og vitleysu. Sannkölluð nörda ferð.
Ég ligg núna í sófanum mínum með Heroes í gangi að spá í hvað ég á að fara að læra og hvort ég eigi að baka súkkulaðiköku eða ekki. JÁ! ÉG ER SVONA HEIMILISLEGUR! Ég og Betty Crocker eru svo góðir vinir!
Já, ég er að spá í að baka þegar þessi Heroes þáttur er búinn...
[EDIT: 19:51]
Eigum við að ræða þetta eitthvað?

Kv. G