8. janúar 2008

Gleðilegt ár og allt það...

Já... Gleðilegt ár og takk fyrir gömlu...

2007 var ekki beint besta árið, en hvað um það. Þetta ár verður bara snilld! Ég ætla mér að gera þetta ár snilld. We are the masters of our own destiny.

Prófin gengu bara ágætlega. Ég náði öllu nema einu, sem var Stærðfræðigreining IIIB. Ef maður hugsar út í það, þá kemur það ekkert á óvart miðað við hvernig mér hefur gengið í Stærðfræðigreingar og Eðlisfræði kúrsum. Ég tek það upp í lok mánaðarins og þá er bara þessi önn eftir af skólanum. Djöfull verður gott að vera búinn.

Kúrsarnir sem ég tek þessa önn eru mis skemmtilegir. Sá sem heillar mig mest er Tölvugrafík, þar sem er verið að kenna það að vinna með þrívíddarmódel í OpenGL. Það verður awesome!

Jólafríið var gott. Ja... betra en gott. Það var geggjað. Ég gerði ekkert annað en að spila XBox, aðallega Halo 3. Sá leikur kom mér alveg virkilega á óvart. Ég kláraði hann alveg nokkrum sinnum í jólafríinu og spilaði helling online, en núna er kominn tími til að minnka það aftur þar sem það verður brjálað að gera í skólanum.

Mér tókst að brjóta upp fyllingu í einni tönn hjá mér í jólafríinu. Ég veit ekki hvernig það gerðist, en djöfull er maður viðkvæmur fyrir köldum mat núna. Ég get loksins hringt í tannlækninn í dag, þar sem það var lokað vegna jólaleyfa til 8. jan.

Eftir færsluna hérna á bloggin mínu þann 17. des 2007, þá kom comment á færsluna sem var:
Ef guð væri til, þá hefðirðu lent undir "the Bandwagon".

Þá hefði svo sannarlega verið einu fíflinu færra.

Það hefði jafnvel verið "Awesome" og ég hefði án efa fátt geta sagt annað en "splurge".

Fífl

-svampur - samviskan þín
Það er greinilegt að fólk lítur ennþá á internetið sem tæki til að skíta nafnlaust yfir fólk. Það eru bara aumingjar sem skilja eftir svona comment og þora ekki að gera það undir nafni. Sjitt hvað þetta er sorglegt... hahaha!

Kv. G