Ha? Jól?
"Gleðileg Jól!"
Maður verður víst að byrja færsluna þannig, er það ekki? :)
Já, ég veit að klukkan er margt, en ég er í jólafríi, so gimme a break. Ég er búinn að gera lítið annað í dag en að spila Halo 3 og Call of Duty 4: Modern Warfare. Jólafríið hefur í rauninni snúist um að spila XBox og það er bara awesome! Ég og Pési kláruðum Halo 3 í tveimur sessionum, ég kláraði Assassins Creed á tveimur dögum og ég er hálfnaður með Call of Duty 4, sem ég fékk mér í dag. Yeah, I know... I'm a nerd... BUT AN AWESOME NERD!
Annars hafa jólin verið bara góð. Ég var reyndar að vinna á aðfangadag til kl 16 og jóladag til kl 18, en það var svo lítið að gera að ég gat lagt mig í vinnunni í u.þ.b klukkutíma. Það er kannski soldið einmannalegt um jólin á meðan maður býr einn, en það reddast. I always land on my feet, don't I?
Maður át gjörsamlega yfir sig af hamborgarhryggnum hans pabba á aðfangadag. Maður fær ekki betri mat en það. Það gjörsamlega bráðnar uppí manni og hangikjötið á jóladag var sko alveg jafn gott. Hann pabbi kann þetta, sko.
Ég ætla ekkert að vera með einhvern lame upptalningalista af dótinu sem ég fékk í jólagjör. Ég ætla bara að þakka öllum sem gáfu mér eitthvað (og lesa þetta) fyrir gjöfina. Ég gaf yngstu systkinum mínum Guitar Hero 3 og auka gítar fyrir PS2 og þau gera lítið annað en að spila þessa dagana. Ég tók meira að segja nokkur lög með mömmu um daginn. Hún er algjör gítar hetja!
Mér gekk bara vel í öllum prófunum mínum. Meira að segja í Formlegum Málum & Reiknanleika sem var síðasta og erfiðasta prófið mitt, eins og ég lýsti í síðustu færslu. Ég gat bara alveg megnið af prófinu þar og það var eiginlega frumlestur á efninu 4 dögum fyrir prófið. Ég veit ekki alveg hvernig ég fór að þessu.
Ég er bara búinn að fá eina einkunn og það er í Vefforritun. Ég fekk 8,5 þar, en það var ekkert surprise. Ég vissi strax og ég byrjaði í þessum kúrs að þetta væru gefnar einingar fyrir mig.
Jæja... Ég held að ég fari að hætta þessari vitleysu og komi mér að sofa.
Kv. G