17. nóvember 2007

7 comment? NIIIICE!

Líst mér á ykkur. Loksins farin að commenta. Þið vitið sem sagt hvernig á að gera þetta. Ég var farinn að verða hræddur um að ég þyrfti að vera með sýnikennslu. :P

Þessi bloggfærsla er búin að vera fáránlega lengi í fæðingu. Það hefur alltaf eitthvað komið upp þegar ég var að skrifa hana. Bjrálað verkefni fyrir skólann, þreyta, vinnan... bara allt brjálað.

Ég fór í bústað um helgina með Vodafone liðinu. Sjitt hvað það var gaman. Við vorum með tvo bústaði í Úthlíð við Laugarvatn. Það var reyndar soldið asnalegt að sú sem pantaði bústaðina vildi EKKI hafa þá hlið við hlið og var þetta aðeins og langt til að labba á milli. Þess vegna endaði þetta í tveimur partíum. Sumir fóru á milli bústaða, en ekki nærri því nóg margir. Ég var klárlega í betra partíinu sem var í bústaðnum sem fylltist fyrst. ;)

Ég er búinn að hugsa um hvernig ég á að skrifa þessa færslu þannig að fólk finni hvað þetta var skemmtileg ferð, en flest af því sem ég hef komið með hefur verið alveg ótrúlega þurrt. Ég verð bara að láta myndirnar tala sínu máli. Ég bæti síðan seinna myndum á síðuna frá öðrum sem voru með í bústaðnum. Hérna kemur hins vegar vídjó af mér úr bústaðnum að rappa við Timbaland lag... Aaaaaaw yeah!



Það er smá backstory bakvið þetta vídjó og afhverju ég er að pósta þessu sjálfur. Ég skal segja ykkur það seinna... :D

Kv. G