4. nóvember 2007

Þa'ba'sonna...

Mér var að berast kvörtun áðan. "Hvað? Bara tvær heilar vikur síðan þú hefur bloggað?" Það kom meira að segja frá manneskju (sem nýtur nafnleyndar hér) sem commentar sjaldan á bloggið mitt. Ég hef sagt það áður... Því meira sem fólk commentar, því oftar set ég inn færslur... ;)

Neinei... svona annars, hvað á maður að vera að blogga? Ég er ekkert að gera neitt spennandi þessa dagana. Það er bara skóli, læra og djamma. Djammið er yfirleitt bara generic. Ég veit að þið viljið ekki lesa færslur eins og eftirfarandi:
Ég fór í bæinn í gær og kíkti inn á Sólon. Ég drakk og varð fullur. Ég staulaðist út og rölti á Hverfisbarinn. Það var gaman. Ég hitti Finnsa þar. Síðan týndi ég honum... blah blah blah... snooooore...
Hins vegar var þessi helga frábrugðin venjulegum helgum. Djammið var awesome. Á föstudaginn fór ég í Halloween partí og fór sem kúreki. Hey! Ég hef alveg hugmyndaflug! Ég hefði alveg getað farið sem eitthvað annað! Ég átti bara búninginn til... Gimme a break... :P En já, Guðlaug var að halda partíið og þetta var almennilegt. Baðkerið var fullt af "blóði", þurrís, það var hauskúpa á borðinu, fullt af kertum, grasker og bara allur pakkinn... Þetta var geggjað.

Það var samt alveg ótrúlegt hvað fólk var að leggja mikinn metnað í búningana sína þarna. Það voru stelpur í kattabúningum, vampírur, zombie Ron Burgandy og meira að segja tveir sem komu sem munkar og rökuðu svona skalla á hausinn á sér. Talandi um dedication to the part, maður... En við vorum þarna allt kvöldið. Það gerðust margir skandalar og má þar nefna söguna um köttinn. Sú saga er ógeðslega fyndin og er búin að slá í gegn hjá öllum sem ég hef sagt hana, en er of graphic til að setja á opið blogg... Þið verðið bara að biðja mig um söguna persónulega... En maður fór svo bara heim þaðan um 4 leitið og var bara feginn að fara ekki í bæinn. Ég vildi að ég hefði tekið sömu ákvörðun í gær...

Ég fór sem sagt á EVE Online Fanfest í gær sem var í Laugardalshöllinni. Finnur bauð mér og nokkrum öðrum. Þetta var bara risastórt partí með fullt af nördum. It was different... it was awesome... :) Finnur var að kynna mig fyrir einum útlendingi þarna og það fór einhvern vegin svona:
Finnur: This is my friend Gísli.
Jim: What did you say? Beastly?
Finnur: Hahaha! No... Gísli...
Gísli: No no... Beastly is fine.
Það var sem sagt alveg geðveikt djamm í höllinni, en bærinn var ekki jafn skemmtilegur. Stuðið drappaðist niður með kvöldinu vegna þess... já... éttla segja það enn einu sinni... bærinn sökkar! Ég nenni ekki einu sinni að tala um bæjarferðina eftir höllina. Ég verð bara pirraður...

Ég þarf að fara að halda áfram að læra. Fullt að gera. Meðal annars, þá er ég að fara að opna dvdmyndir.com. Þetta er lokaverkefnið mitt fyrir vefforritun.

Látið heyra í ykkur.

Kv. G