22. október 2007

Æsifréttir og slúður!

Eldavél gengur laus í árbænum eftir að hafa ráðist á 27 ára gamlann mann fyrir utan heimili hans. Sögur herma að eldavélin hafi verið orðin öfundsjúk vegna þess að maðurinn var farinn að halda framhjá eldavélinni með sjónvarpinu. Eldavélin lét það viðgangast í einhverja mánuði, en eftir að athygli mannsins fór að beinast meira og meira að sjónvarpinu, þá virðist eldavélin hafa fundist vera nóg komið. Árbæjar búar eru beðnir um að vera á varðbergi. Eldavélin er talin vopnuð og hættuleg.

En svona í alvöru, þá var eldavélin mín send í viðgerð vegna þess að neðra hita elementið var ónýtt. Þegar leigusalinn kom með eldavélin, bað hann mig um að hjálpa sér að bera. Við fórum að bílnum hans og vorum að taka eldavélina úr bílnum, en þá rann eldavélin í höndunum á mér og ég fékk ansi djúpan skurð í lófan.

Ég fór bara inn, náði í plástur og fór í hanska, en vissi alveg að ég þyrfti að fara að láta amk kíkja á þetta. Við bárum eldavélina inn og þegar ég fór úr hanskanum eftir það þá var plásturinn fullur af blóði. Mér leið strax mjög illa, þrátt fyrir að finna ekkert fyrir sárinu, vegna þess að ég þoli ekki blóð. Algjör aumingi. Ég þoli ekki blóð, nálar og spítala. Ég fór beint útí bíl og keyrði uppá slysó, en það var fáránlega heitt í bílnum og ég er ekki að grínast þegar ég segi að það leið næstum því yfir mig. Ég þurfti að stoppa útí kanti á miklabrautinni til að jafna mig. Opna alla glugga og lækka hitann í bílnum.

Ég þurfti að bíða í rúmlega klukkutíma eftir að komast inn í bráðamótökuna. Þegar ég kom þangað inn leit út fyrir að sárið væri bara lokað og það þyrfti ekkert að sauma. Þeir ætluðu bara að hreinsa sárið og senda mig heim, en þegar farið var að hreinsa, þá sást hvað þetta var djúpt og það fór að blæða alveg helling. Ég var sprautaður með deyfingu og við biðum í smá stund. Þegar hann byrjaði að sauma fyrsta sporið spurði hann mig hvort þetta væri sárt. Ég sagði, "Ömm... já..." "Nú? Er þetta sársauki eða bara svona þrýstingur?" "Klárlega sársauki," sagði ég. Hann náði þá í aðra sprautu og deyfði mig aftur. Hann spurði mig aftur hvort þetta væri sárt þegar hann saumaði seinna sporið. Ég játaði og honum fannst það frekar skrítið, en fyrst þetta voru bara tvö spor, þá skipta það ekki máli uppúr þessu. Þegar ég fór fram fór ég að finna mikinn dofa í litla putta. Deyfingin fór öll þangað... hehehe

Núna sit ég bara heima, ný búinn að borða pizzu og er að horfa á Harry Potter and the Order of the Phoenix. Ég get ekki spilað Guitar Hero 2 eða Guitar Hero 3 demóið vegna þess að ég get ekki notað litla putta. Sveeeekk...

Talandi um Guitar Hero, þá voru miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur miklir Guitar Hero dagar hjá mér. Ég var búinn að vera fastur með þrjú ókláruð lög í 7. settinu í Expert. Óli "sinai" sat hjá mér og ég ákvað að prófa Psychobilly Freakout og Rock This Town og mér tókst að vinna bæði lögin án mikilla erfiða. Ég var shocked. Daginn eftir ákvað ég að tékka hvort ég væri ennþá heitur og vann þá restina af leiknum í Expert. Tveir heitir daga í röð. Óli "skinka" kíkti svo til mín daginn eftir og við tökum yfirleitt GH2 session þegar hann er hérna. Við fórum í co-op í laginu Famous Last Words í Hard og tókum það báðir í 100%. Very, very cool. Síðan ætluðum við að reyna að ná XBox achievement að ná 800000 stig í lagi í coop. Við fórum í Free Bird, báðir í medium og hann tók 97% sem Rhythm og ég 96% sem Lead og náðum 772000 stigum rúmlega. Þetta er greinilega hægt þegar báðir eru í medium. Þetta er pottþétt næsta mission... :D

Ég læt fylgja nokkrar myndir af Epic GH2 kvöldinu á föstudaginn... :D

100%
100%
100%
100%

Rock on!!

Kv. G