12 days
Já... það hafa verið 12 dagar frá því ég bloggaði síðast. Djöfull er maður orðinn vonlaus í þessu. Æj... Ég held að málið sé frekar að það er bara ekkert blogghæft að gerast hjá mér. Það er erfitt að eiga mikið sósjal líf þegar maður er í 130% skóla og 40% vinnu. Það eina sem ég geri, svona undir venjulegum kringumstæðum, er að sofa, læra, borða og vinna. Ég horfi á nokkra þætti inná milli, en svona er lífið mitt einfaldlega...
Eins og margir vita, er ég alltaf með frí á föstudögum. Ég er skráður í 7 kúrsa í skólanum og útaf einhverju divine intervention lenti engin tími á föstudögum hjá mér. Nú, þegar maður á alltaf frí alla föstudaga, þá á maður það til að fara á smá-djamm á fimmtudögum. Ég hitti einmitt Krissa á Sólon á fimmtudaginn og fékk mér einn bjór með honum. Þar sátu hjá okkur tvær stelpur. Ein sem var alveg mjöög sæt, en á föstu og ein sem var svona fitness stelpa sem var svo mikill karlmaður í sér aðmér fannst ég sjá ég er ekki frá því að ég sá glitta í smá typpa-bungu í buxunum hennar. Hressar stelpur, en það var samt ekkert alvarlegt.
Krissi var svo hellaður á þessu djammi að það er varla hægt að lýsa því. Ég var keyrandi, en Krissi... úff, Krissi... Þegar við fórum af Sólon þá vildi hann fá sér eitthvað að borða. Við fórum á N1 á Hringbraut svo að hann gæti fengið sér Subway. Hann sá svona blómakæli þar inni og þá byrjaði þetta samtal:
Krissi: Gísli, Gísli... Sjáðu...
Gísli: Hvað?
Krissi: Sjáðu þessa blómvendi. Finnst þér þeir ekki geðveikt flottir?
Gísli: Eh... jújú...
Krissi: Éttla kaupa einn...
Gísli: Krissi, til hvers?
Krissi: Æj bara...
Gísli: Ætlarru að gefa einhverri stelpu þessi blóm?
Krissi: Nei... en þetta er svo góð fjárfesting!
Gísli: HA?!?! Góð fjárfesting? Hvað meinarru?
Krissi: Ef maður skyldi hitta einhverja stelpu á næstu dögum eða eitthvað. Þá á maður þetta til.
Gísli: Krissi, maður gerir þetta ekki svoleiðis. Það er ekki góð fjárfesting!
Þetta hélt svona áfram þangað til ég gafst upp og Krissi keypti blómvöndin. Vönd af hvítum rósum á 2000kr. Það var svo meira sem gerðist með hann Krissa, en éttla láta þessa einu sögu duga. Hann var sem sagt hellaður... ;)
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var ógeðslega pirraður í gær. Á laugardaginn og sunnudaginn var ég að vinna í verkefni fyrir vefforritun þar sem ég átti að búa til Battleship leik á heimasíðu. Fresturinn var til miðnætis á sunnudagskvöldi, en þar sem þetta er vefforritunar verkefni gat ég bara sent kennaranum linkinn fyrir miðnæti og haldið áfram með verkefnið og alltaf uploadað á serverinn þegar ég kláraði eitthvað nýtt. Ég átti nóg eftir af verkefninu þegar ég sendi kennaranum linkinn, þannig að ég endaði með að vinna í þessu í alla nótt. Síðan kl 8:42 sendir kennarinn póst á alla. Þar stendur, "fresturinn fyrir verkefni 4 hefur verið lengdur um viku." Það fyrsta sem ég hugsaði var, "ég hefði getað sofið." Við erum að tala um það að hann sendi þetta 8 tímum og 42 mínútum eftir að fresturinn rann út. Ég var ekki lítið pirraður þegar ég fór í skólann...
Eitt í viðbót. Ég fór á StarDust um daginn. Þetta er æðisleg mynd. Æðisleg. Ég mæli mikið með henni. Það verða allir að sjá þessa mynd. Þetta er svona ævintýramynd með alveg mjög góðum karakterum. Sérstaklega karakterinn sem Robert DeNiro leikur... :D
En já... Ég ælta að reyna að fara að blogga meira, en ég vil ekki að þetta fari að verða algjörlega innihaldslausar færslur. Ég vil ekki vera að blogga þegar ég hef ekkert að segja.
Kv. G
Eins og margir vita, er ég alltaf með frí á föstudögum. Ég er skráður í 7 kúrsa í skólanum og útaf einhverju divine intervention lenti engin tími á föstudögum hjá mér. Nú, þegar maður á alltaf frí alla föstudaga, þá á maður það til að fara á smá-djamm á fimmtudögum. Ég hitti einmitt Krissa á Sólon á fimmtudaginn og fékk mér einn bjór með honum. Þar sátu hjá okkur tvær stelpur. Ein sem var alveg mjöög sæt, en á föstu og ein sem var svona fitness stelpa sem var svo mikill karlmaður í sér að