4. október 2007

Ég bara varð að koma þessu að...

Ég sit hérna núna uppi á stjórnborði Vodafone með Óla skinku. Ég er að taka all nighter að læra; er að gera verkefni fyrir Vefforritun og Hugbúnaðarverkefni 1. Ég ákvað að skreppa á Subway. Gaurinn sem afgreiddi mig þar á klárlega skilið verðlaun. Hann var alveg magnaður...

...hann var klárlega hægasti Subway starfsmaður í geeeeeiiiiimi!

Við erum að tala um það að ég var þarna einn. Ég var að kaupa 2 báta, einn fyrir mig og einn fyrir Óla, og það tók hann alveg korter að gera þá. Ég var næstum því farinn að blístra. Mig langaði svo mikið að öskra, "it's called fast food for a reason, pal," en ég hélt kúlinu. Þetta var bara alveg hrikalega mikið, "THIS IS SO GOING IN MY BLOG," móment.

En jæja... éttla halda áfram að borða. Urgasta...

Kv. G

2. október 2007

Er þetta blogg að deyja?

Svarið við þeirri spurningu er, "já og nei." Það er svo mikið að gera hjá mér þessa dagana að mér dettur ekki einu sinni í hug að blogga og þegar mér dettur það í hug er yfirleitt ekki tími til þess. Ég sit bara núna í vinnunni að skrifa þessa færslu; það er rólegt til tilbreytingar. Ég ætla að reyna að halda lífi í þessari síðu þangað til ég hef tíma til að skrifa reglulegar færslur.

Það er svo skrítið að vera single. Ég er búinn að djamma meira síðan í byrjun sumars en ég hef gert í 4 ár. Ég er kominn með fáránlega mikið leið á bænum, en samt enda ég alltaf þar um helgar og ég veit ekki afhverju. Ég er amk yfirleitt níski gaurinn á djamminu. Fæ mér yfirleitt bara einn bjór heima áður en ég fer, djamma í góðu stuði, fæ mér bara vatn á barnum og keyri svo heim. Það sparar manni ansi mikinn pening þegar maður fer svona oft í bæinn.

Sjitt... Laugardagurinn... Úff... Hvað get ég sagt meira. Ég drakk allt of mikið. Ég hef ekki gert þetta síðan 9. júní. Það var afmælisveisla hjá henni Tinnu vinkonu á Hverfisbarnum og hún var búinn að kaupa kút eða tvo. I dunno... ég bara drakk'etta. Ég var ekki að spurja hvað þetta var mikið. Eftir að kúturinn/kútarnir voru búnir, þá var farið í tvöfalda Jaeger í Magic. This is sooooo not me. Það var gaman, en sjitt. Þetta var bara of mikil drykkja. Ég vaknaði daginn eftir og fór á fætur og lappirnar á mér voru eins og blaut spagghettí.

Ég skráði mig í sumarbústaðaferð með fólki úr þjónustuveri Vodafone. Ég er búinn að vera geðveikt spenntur fyrir henni, en eftir djammið núna síðustu helgi var ég farinn að kvíða fyrir henni. Mig langar bara að slaka á. Síðan fékk ég þær yndislegu fréttir í dag að ferðin er ekki núna næstu helgi, heldur er hún í byrjun nóvember. Ég get ekki lýst því hvað ég var feginn. Bara það að ég geti slakað á um helgina. Aaaaaaaaaah... Búið mér til amerískar pönnukökur eins og síðasta laugardag. Það er svo mikill eðall. Mmmmmmm...

Sjáum til hvort plönin mín fyrir helgina standist. I hope so... :o

Kv. G