22. september 2007

Yeehaw!

Úff... djammið í gær var rosalegt! Það var Vodafone hlöðuball í gær. Það var haldið í alvöru hlöðu í Mosfellssveit. Það var hestur þarna inni og allt. Við erum að tala um að það var stelpa sem var í fullu starfi við að halda hestinum rólegum.

Ég vann mikið í búningnum mínum. Hattur, tvær byssur, skyrta, þrjú belti, tvö byssu holster (sem ég bjó til sjálfur, btw), poncho, vindlingar og stígvél. Ég vann ekki best costume, en að mínu mati voru bara tveir sem voru betri en ég; Krissi, sem var í alvöru hestamanna búning og stelpan sem vann best costume, sem var í can-can búning. :P

Eftir þetta djamm fórum við í bæinn og mér tókst að fara inná Óliver í búningnum... Ég þurfti bara að fara úr ponchoinum og taka af mér hattinn. Ég trúi samt ekki að ég hafi látið draga mig á Óliver aftur. :P

Það er alveg fokk langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna. Þetta er ekki orðið sniðugt hvað ég er latur að blogga. Ok... kannski ekki latur, en ég hef bara svo fáránlega mikið að gera. Ef ég væri ekki svona þunnur, þá væri ég að læra. Ég var meira að segja að læra svo mikið um daginn að ég tók all-nighter og vakti í 40 tíma.

Ég er orðinn hooked á þáttum sem heita Entourage. Þeir eru um leikara í Hollywood, fylgiliðið hans og agentinn hans. Brilljant dialog frá brilljant karakterum. Tékkið á þeim. Það eru komnar 4 seríur.

Ég ætla að setja inn einhverjar myndir á eftir. Fylgist með...

Kv. G