15. september 2007

Awesome!

Ég er bara ný kominn heim. Vá... Langt síðan ég hef verið svona lengi úti og ég er ekki einu sinni þreyttur. Ég fór áðan í smá samkomu heim til Sverris. Þar voru Sverrir, Þorsteinn (sem ég rúúúúústaði í póker um daginn), Tinna Alavis og stelpa sem heitir Heiðdís. Við vorum bara róleg að horfa á Coupling (breska auðvitað) og sötra létta drykki, eða... þau voru að sötra létta drykki. Ég var edrú og var á bíl. Anyway, við vorum þarna að hlægja úr okkur innyflin til svona eitt, þá ákváðum við að fara í bæinn. Lögðum samt ekki af stað í bæinn fyrr en um 2, þar sem Sverrir var eins og versta kona við að gera sig til í bæinn, en við elskum hann svo að honum er fyrirgefið.

Þegar við komum í bæinn, þá var farið á Óliver fyrst. Það er eitthvað við þennan stað sem ég fíla ekki. Úff... don't get me started. Annars var hann fáránlega tómur og eina ástæðan sem ég samþykti að fara þangað inn var vegna þess að það var engin biðröð. Já, þið lásuð rétt, það var engin biðröð á Óliver. Við héngum þar bara í smá stund og fórum svo í átt að Vegamótum.

Þegar komið var á Vegamót, þá ákvað Sverrir að fara í VIP röðina. Fljótlega eftir að við fórum í röðina, kallar dyravörðurinn, "þeir sem eru ekki með VIP kort, farið í hina röðina. Þið komist ekki hérna megin inn." Sverrir ákvað að hunsa hann. Við stóðum þarna í svona 20 mín áður en ég gafst upp og við fórum annað. Við skruppum aðeins á Sólon. Tónlistin er svo ótrúlega misjöfn þar. Það er eins og það sé bara regla um að spila eitt lag af einni tegund og svo eitt lag af annari tegund strax á eftir. Þeir virðast vera að reyna að "mix it up" of mikið.

Svitafýlan hefur aldrei verið verri á djamminu en hún var á Bar 11 í kvöld. Bland af svitalykt, pissulykt og ælulykt þar inni. Ekki mjög aðlaðandi. Samt voru pör liggur við "getting it on" þarna inn. Einn strákur virtist vera að reyna að éta eina stelpu face first. Frekar fyndið að sjá.

Eftir allt þetta, þá var kvöldið að verða skemmtilegt. Ég, Sverrir og Heiðdís fórum í ónefnda skóbúð á laugarveginum þar sem Heiðdís er að vinna og vorum að hanga þar að drekka bjór/orkudrykki, spjalla og dansa. Ég tók eftir því, þegar við vorum að spjalla, að ég nota orðið "awesome" allt of mikið. Ég þarf að fara að nota einhver fleiri orð. Aðeins að stækka orðaforðan svo að fólk haldi ekki að ég sé algjör vitleysingur. :P

Heiðdís tók mig í einka danskennslu í skóbúðinni á meðan Sverrir horfði á. Það var bara mjög gaman. Hún reyndi að kenna mér hip-hop, rólegt og margt annað. I got two left feet, but she's goooooood. Við vorum í skóbúðinni til um 7, held ég.

Ég hef ekki skemmt mér svona vel í marga mánuði. Thanks guys... ;)

Annars tókst mér að klára BioShock á fimmtudaginn. Tók þarna smá törn. Snilldar leikur í alla staði. Ég á pottþétt eftir að spila hann í gegn aftur seinna. Bara ekki alveg strax. :P

Nenni ekki að skrifa meira. Ég er alveg hel víraður eftir þrjá orkudrykki og tvo kaffibolla í skóbúðinni (I know, bad idea), en ég verð að reyna að sofna. Þarf að vera duglegur að læra á morgun.

Sjáumst fólk. Hafið það bara gott.

Please comment, would you kindly.

Kv. G

9. september 2007

So much to do, so little time!

Það er svo mikið að gera hjá mér að ég hef ekki tíma í allt sem mig langar að gera. Ég hef ekki tíma í BioShock (sem maður þarf að committa smá tíma í til að sökkva sér í hann), hef ekki tíma til að horfa á nýtt efni sem ég downloada og hef varla tíma til að blogga. Þetta er orðið svo klikkað.

Á föstudaginn átti Bjössi lil'bro afmæli. Ma&Pa voru í New York við opnun á Glitni þar, þannig að ég ákvað að halda uppá afmælið hans hérna hjá mér. Það var svona svo að þau finndu að hann ætti afmæli og að þetta væri ekki bara venjulegur dagur. Ég tók mig til og bakaði ekki bara eina, heldur tvær kökur. Eina gulrótarköku og eina súkkulaðiköku. Áður en þið verðið alveg GEÐVEIKT stollt af mér, þá ætla ég að segja að Betty Crocker hjálpaði mér geðveikt mikið með þær. Svo þetta var kannski ekkert alveg BIG deal, en var samt ógeðslega gaman. Ég tók nokkrar myndir af veislunni og matnum á Ruby Tuesday eftir á.

Ég og Pési kíktum á SuperBad í bíó í gær og ég verð að segja, HÚN ER FOKKIN SNILLD. Ógislega fyndin mynd, alveg. Hún er klúr og gróf og bara snilld. Hittir alveg beint í mark. Ég mæli mikið með henni.

Eftir bíóið fórum við að rúnta um á geðveikum Hummer H2. Alltaf gaman að leggja í tveimur til þremur stæðum þegar maður leggur bílnum. Ef Pési hefði ekki þurft að fara hálf snemma að sofa, þá hefðum við reynt að nota bílinn á príma tíma í bænum sem chick magnet. Hann er amk nógu stór til að stelpurnar tæku vel eftir honum... hahaha...

Ég hef líka verið að vinna að Vefforritunar verkefninu mínu um helgina. Ég er að gera allt of mikið fyrir þetta verkefni. It's totally snowballing. Það gerist ef maður kann námsefnið of vel. :o

Núna sit ég bara hérna í náttbuxunum í sófanum mínum að reyna að læra Aðgerðargreiningu. Ég er að fara til Ma&Pa á eftir í mat og kíki örugglega á Benna eitthvað eftir það. Eins og ég segi, það er margt á minni könnu.

Sorrí hvað ég er búinn að vera latur að blogga, en eins og ég segi, það er mikið að gera hjá mér. Commentið hjá mér, það sýnir mér að þið lesið þennan sora. Þá verð ég kannski duglegri... :P

Kv. G