4. september 2007

Svartur Tobý snýr aftur!

Úff... Ég var að koma úr vinnunni. Ég verð bara að segja, það var bara gaman að vera hjá Vodafone aftur. Don't get me wrong, ég dýrka að vinna hjá Landsbankanum, en ég á svo mikið af vinum hjá Vodafone. Svo er auðvitað allt nýja kjötið hjá Voda... Sjiiiii! Það er ekki lítið, skal ég segja þér...

Ég var í veiðiferð með pabba, Bjössa lil'bró og Svenna stóbró í gær og í fyrradag. Það var algjört æði. Við fórum í ánna Fáskrúð í Dölum og áttum það bara mjööööög gott í drykkju, áti og snilldar gufubaði.

Við komum fyrst í húsið og það var allt læst og enginn lykill að sjá. Pabbi var ekkert lítið hneykslaður á því að það vantaði lykil, en við gengum hringinn í kringum húsið og fundum tvo opna glugga, einn stóran og einn lítinn sem var fyrir ofan hurð. Við ákváðum að skrúfa þennan stóra opin svo að við kæmumst inn, en þá kom í ljós að sá gluggi fór bara inní bílskúr. Það endaði með því að Svenni fór, head first, inn um litla gluggann sem var fyrir ofan hurðina og hann gerði að með miklum tilþrifum.

Við klæddum okkur í gallana (og litum helvíti flott út, þótt ég segi sjálfur frá) og komum okkur út að á. Við þurftum að keyra smá spöl að staðnum sem við vorum búnir að ákveða að fara, en Svenni var hálf smeykur við suma staðina í veginum, reyndar ekki að ásæðulausu, og fékk mig og pabba til að fara á undan á stóra jeppanum. Við vorum nokkuð fljótir að fá fyrsta fiskinn, en pabbi fékk hann. Ég fór að spjalla við Svenna eftir það og sagði honum frá því að pabbi hafi veitt laxinn á Svörtum Tóbý. Hann var frekar furðulegur á svipinn og spurði mig hvort ég væri alveg viss. Ég jánkaði því og svipurinn hans Svenna var seinn að fara. Svo fattaði ég aðeins seinna hvað ég var að segja. Við vorum allir að kasta flugu og ég ruglaði Svörtum Tóbý (spúnn) með Svörtum Francis (flugu). Döööö... :P

Síðan veiddi ég maríulaxinn! Það var fyrsti fiskurinn sem ég hef veitt á flugu líka. Algjör snilld. Hann var frekar skrítinn þegar hann beit á vegna þess að hann barðist ekki neitt til að byrja með. Ég fann varla að hann hafi bitið á fyrst, það var bara eins og smá nart og ég var ekki einu sinni viss um að það væri fiskur á. Ég ætlaði bara að fara að kasta aftur og þá kipti hann í. Hann veiddist líka á Svörtum Francis. Það var mikið fagnað um kvöldið. Ég sýndi fiskinum virðingu og beit af honum veiðiuggann. Slepjulegt... mm-mmm...

Á mánudeginum voru það bara ég og pabbi, þar sem Svenni þurfti að fara að vinna og Bjössi þurfti að fara í skólann (ég skrópaði). Það var nær ómögulegt að fara á fætur klukkan 7 um morguninn með heimsins mestu þynnku. Já, ég hringdi í Guiness World Records. Þeir staðfestu. Svona þynnku skal skapa með bjórdrykkju, vindlinga reyk, rauðvín, gin&tonic og gin&tonic í gufubaði. Gufubaðið er mjög mikilvægur þáttur í þessu öllu. Anyways... Pabbi var algjör hetja og tók þrjá fyrir hádegi á mánudeginum. Alla á Svörtum Francis og meira að segja tveir þeirra á 10 mínútum á nákvæmlega sama stað. Það var awesome.

Ég á eftir að henda inn myndum af þessu. Sýnið mér þolinmæði... :)

Kv. G