30. ágúst 2007

Bíddu, hva'er ei'lega í gangi?

Skólinn er bara byrjaður og ég er með geggjaða stundartöflu. Ég er í sex námskeiðum, en er samt ekki með neinn tíma á föstudögum. Ótrúlega vel samsett stundartafla. Við erum að tala um þriggja daga helgi alveg fram yfir áramót! :D

Vegna breytinga í Landsbankanum, þá verð ég ekki að vinna þar í vetur með skólanum; sem sagt pólisía hjá nýja yfirmanninum, þannig að ég fer bara að vinna aftur hjá Vodafone með skólanum. Tvær kvöldvaktir í viku, þriðjudaga og miðvikudaga, og frí allar helgar. Þriggja daga helgin helst! Úje... rokk!

Farið var á Astrópíu á mánudaginn... sjitt er svona langt síðan ég hef bloggað? En já, farið var á Astrópíu. Það var bara alveg frábær mynd. Ég var bara mjög ánægður. Það var alveg fullt af reference'um sem bara roleplay spilarar myndu skilja. Þetta er fyrsta íslenska myndin sem ég hef beðið eftir að kæmi í bíó og hún stóðst alveg undir mínum væntingum. Ég hló vægast sagt mjög mikið... :P

BÆJÓSJOKK!!!

Það er rétt! Ég keypti BioShock á þriðjudaginn. Sjitt hvað þetta er flottur og góður leikur. Algjörlega immersive. Maður sekkur bara inní hann. Ég verð að reyna að klára hann fyrir næstu viku, vegna þess að þá byrjar skólinn af einhverju viti. :P Mér hefur brugðið ansi oft í þessum leik, enda reynir maður að spila hann alltaf í algjöru myrkri. :D

Birna, Einar, Pési og Krissi kíktu til mín í gær í smá hressleika. Ég hef sagt þetta áður og segja það aftur, það er ótrúlega gaman að hitta Birnu og Einar. Þetta er bara frábært par. Annars vorum við bara öll að tala um daginn og veginn og drekka bjór og hafa gaman. Það voru nú samt allir alveg ógeðslega þreyttir og sloj í lok kvölds að þögnin var farin að vera meiri og meiri. En samt, eins og ég segi, alltaf gaman að hitta þau... ;)

Ég held að ég gefi þessari færslu verðlaun sem innihaldslausasta færslan hingað til á þessu bloggi. Hmmm...

Kv. G

27. ágúst 2007

Traumatized for life

Ég ligg hérna andvaka uppí rúmi. Ég get engan vegin sofnað. Það er allt of margt sem ég er að hugsa um. Kannski hjálpar það að koma þessu drasli niður á "blað."

Já hérna. Þessi helgi, sko. Síðasta helgin áður en maður byrjar í skólanum aftur. Hún fór engan vegin eins og ég hélt að hún mundi gera. Ég ætlaði mér að kaupa BioShock á föstudaginn og spila hann yfir alla helgina, skítandi á mig af hræðslu, en NEEEEEI... Hann kom bara í PC útgáfu til landsins. XBox 360 útgáfan "missti af fluginu," samkvæmt BT starfsmönnum. Ekkert ofboðslega sannfærandi ástæða, en ég verð víst að taka henni. Ég keyrði út um allan bæ að sjá hvort einhver hafi fengið leikinn. Það var sama sagan út um allt; bara PC útgáfan til. Það endaði þannig að ég og Pési vorum bara að hanga á föstudaginn. Við drukkum bjór, borðuðum jerky, spiluðum Gears of War og skoðuðum ýmsar skemmtilegar síður á netinu. Við ætluðum að fara á Astrópíu, enþegar við komum í Álfabakkann, var næstumþví troðið út úr dyrum. Við ákváðum að kíkja þá í Smáralindina, en hún er ekki einu sinni sýnd þar... gg :P

Laugardagurinn fór mjög mikið í hangs bara. Ég fór alveg fáránlega seint á fætur og hékk bara einn heima meiri hlutan af deginum. Ekkert BioShock... urrr! Um kvöldið fór ég til Bjarma og við fórum á djammið með Brynju, Pésa, Krissa og Aroni. Það var alveg ágætt, þannig séð. Við vorum bara að fara á milli staða. Bjarmi, Brynja, Krissi og Aron stungu mig og Pésa af út af Sólon og þegar við ætluðum að hitta á þau, þá sendi Bjarmi Pésa SMS um að þau væru á Hverfis, en þau voru í rauninni á Hressó. Við vorum, vægast sagt, hissa þegar við komum inná Hverfis eftir að hafa beðið í biðröðinni og sáum þau ekki inni. Pési sendi Bjarma aftur SMS og hann sagði þá svaraði Bjarmi, "við erum á Hverfis! Koddu!" Bjarmi, þú mátt alveg læra muninn, sko. [EDIT: Ég veit að ég er geðveikt svartsýnn um djammið, en það er alltaf bara eftir á. Ég fer alltaf mjög bjartsýnn niður í bæ.]

Kvöldið endaði svo með því að ég fór í heimsins lengstu leigubílaröð til að fara einn heim. Ég var farinn að kvíða fyrir verðinu á taxanum, en fór svo að spjalla við fólkið fyrir framan mig í röðinni. Það kom í ljós að þau voru á leiðinni í Breiðholtið, svo ég fékk að fara með þeim, þau borguðu heim til sín og ég borgaði rest. 730kr var bara mjög vel sloppið. Djammið var sem sagt eins gott og venjulega. Einhvernvegin gleymi ég alltaf hvað ég hata bæinn mikið áður en ég fer. Ég ætti kannski að lesa bloggið mitt einhverntíman til að minna sjálfan mig á það.

Ég fór á fætur kl 14 í dag og fékk Waage til að fara með mig að sækja bílinn minn heim til Bjarma. Ég fór beint eftir það að vekja Pésa og Krissa svo að við gætum fengið okkur að borða og kíkja svo í Kolaportið, þar sem Sylvía og litla systir hennar voru með bás þar um helgina... or so we thought. Við fengum okkur American Style og leituðum síðan inni í Kolaportinu, en engin Sylvía... Öss...

Við ætluðum þá að gera aðra tilraun til að fara á Astrópíu í kvöld (sunnudag), en Pési og Krissi voru báður lamaðir af þynnku og gátu ekki farið. Beilers... tsk tsk... Ég fór þá með Hjördísi á Shortbus á kvikmyndahátíðinni og... já... hún var spes. Eftir fyrstu fimm mínúturnar af myndinni var eg farinn að hugsa, "hvað er ég búinn að koma mér út í?" Hún byrjar á því að það er maður sem liggur í baði. Hann er með vídjó kameru og er að taka sig upp í baði. Það er close-up af typpinu á honum og hann pissar í baðið. Smekklegt? It gets worse. Þessa mynd mætti eiginlega kalla, "homma klámmynd með söguþræði." Sérstaklega þar sem var ansi graphic threesome atriði með þremur karlmönnum. Jesús. I wanted to gouge my eyes out... :S

Smá svona random hugsun í endan hérna. Mig langar að vita hvaða snillingi datt fyrst í hug að segja, "it's better to have loved and lost, than not to have loved at all." Þetta er það heimskulegasta sem ég veit. Maður gæti alveg eins sagt, "it's better to have tried heroin and quit, than not to have tried it at all." Ég meina, í alvöru. Hvernig er það betra að tapa ástinni?

Kv. G