18. ágúst 2007

Ugh... Menningarnótt...

Ég skil ekki hvernig fólk nennir þessu. Menningarnótt er bara svo... ugh! Ég heyri "Menningarnótt" og ég hugsa bara "troðningur" og "personal space invader." Mér finnst nógu slæmt að fara að djamma um venjulega helgi og vera í troðningnum sem er á skemmtistöðum bæjarins, en þetta er alveg eins nema bara allur bærinn er troðinn.

Hvað er svona mikil menning við að fara niður í bæ og drekka þig blindfullan ásamt 100þ öðrum vitleysingum? Þetta er svo mikil ómenning að hálfa væri nóg. Var ekki bílum vellt um síðustu Menningarnótt? Frábært...

/rant over

BioShock kemur eftir tæpa viku, á föstudaginn sem sagt. Ég hlakka svo fáránlega til. Þetta er síðasta helgin fyrir skólann og ég hugsa að ég eigi eftir að sitja í myrkrinu alla helgina að spila leikinn. Já, éttla spila hann í myrkrinu og gera mig alveg skít hræddann. It's gonna be awesome!! Pési talaði um að kíkja á mig á meðan ég spila og fylgjast með. Við vorum eitthvað að ræða það að spila hann í myrkrinu til að magna effectið og þá kom upp hvað hann ætti að segja ef einhver spyrði hann hvað hann ætlaði að gera um helgina. Það hljómar nákvæmlega svona, "Ég ætla að fara heim til vinar míns, sitja í sófanum og skíta í buxurnar." :P

Mér leiðist bara svo mikið að ég varð bara að blogga og koma mínum skoðunum á Menningarnótt á framfæri. Hef lítið annað til að skrifa um núna. Ef einhver veit um eitthvað partí eða eitthvað, gimma a hollah...

Kv. G

17. ágúst 2007

Fimmtudags flipp...

Gærdagurinn var awesome...

Ég, Pési og Krissi "MySpace núbbar" vorum bara að hanga, drekka bjór, borða Beef Jerky, horfa á Eureka og flippa. Langt síðan ég hef bara flippað. Við tókum helling af asnalegum myndum. Set eitthvað af þeim inn á eftir.

Ég setti upp einfalda MySpace síðu fyrir Krissa og setti alveg fáránlega mynd af honum inn til að stríða honum. Hann fattaði það ekki fyrr en hann kom heim. Honum fannst það ekki fyndið. Ég ætla samt að vera góður og setja hana ekki hingað inn, en þið sem munið eftir mynd úr tvítugs afmæli hennar Elísu þar sem Sævar, ég og Krissi stöndum saman á dansgólfinu og ég er með hendurnar yfir axlirnar á þeim og er að segja eitthvað við Krissa, vita hvaða mynd þetta er. His hair is just... well... priceless... HAHAHAHA!!!

Var að skoða digg.com áðan og rakst þar á nýjar myndir úr Dark Knight, nýju Batman myndinni. Þar sást alveg helling í Heath Ledger sem Joker og ég verð nú að viðurkenna, hann lítur út eins og Jokerinn Á að líta út. Check it...



Þið getið smellt á myndina til að sjá fleiri. Ég blotna, ég er svo spenntur fyrir þessari mynd. Eina sem mér finnst asnalegt er The Bat-Bike. Soldið kjánalegt, but I'll let it slide... for now...

Ég keypti mér 300 á DVD í gær. Þetta er ótrúlega svöl mynd og ég hlakka bara til að horfa á hana í stóra sjónvarpinu. Það gerist pottþétt um helgina. Kannski tekur maður svona Frank Miller dag og horfir á bæði Sin City og 300. Krissi var að skoða hulstrið á 300 þegar við vorum heima og hann opnaði það. Þá sá hann þetta...



Þarna stendur á ensku, "Not for rental," en á íslensku stendur, "Bæði til leigu og sölu." Hmmm...

Why don't you put THAT in your pipe and smoke it, mister...

Kv. G

16. ágúst 2007

Now back to our regularly scheduled programming

Heeeeeeeeey... I'm back baby!

Já, ég er búinn að vera að lesa fyrir próf síðustu viku. Það er ekki eins skemmtilegt og það hljómar... eða, kannski jú... vegna þess að það hljómar alls ekkert skemmtilega. Physics is the bane of my existence, even though we wouldn't be here with out it.

Ég fór í prófið í gær. Það gekk svona sæmilega, held ég. Eðlisfræðin er búin að vera hraðhindrun í náminu hjá mér alveg síðan ég byrjaði í menntaskóla. Hún er bara svo dreeep leiðinleg. Við sjáum bara til hvað gerist. Í versta falli fell ég og skipti þá bara yfir í Tölvunarfræði. Ég er búinn að skoða það og fæ allt metið hvort sem er. Þarf meira að segja að breyta litlu af því sem ég tek núna næsta árið til að klára. Ef ég hef svo áhuga seinna, þá get ég kannski tekið þá kúrsa fyrir verkfræðina. Við sjáum bara til. Eina ástæðan sem ég fór í verkfræði til að byrja með var vegna þess að það var búist við af mér.

Þegar ég var að lesa á þriðjudaginn, þá ákvað ég að taka smá pásu til að setja download í gang á XBoxinum. Ég var nefnilega búinn að lesa fyrr um daginn, þegar ég var í vinnunni, að BioShock demo'ið væri komið á XBox Marketplace. Þegar ég var að browse'a eftir því, þá rakst ég á AWESOME pakka. Við erum að tala um pakka með 3 lögum fyrir Guitar Hero 2. Lögin sem eru í pakkanum eru Teenagers, This Is How I Disappear og Famous Last Words. Öll lögin eru með My Chemical Romance og þau eru öll af nýjasta disknum þeirra, The Black Parade. Djöfull var ég ánægður að sjá þetta og ég skellti mér á pakkann. Hann kostaði €4.25, sem er kannski soldið dýrt fyrir 3 lög, en mér var alveg sama. Famous Last Words var meira að segja fyrsta lagið sem kom mér yfir 400k stiga múrinn í leiknum. :D

Eftir prófið í gær fór ég heim og prófaði BioShock demoið. Þetta download var vægast sagt þess virði. Sjitt hvað þetta er flottur og góður leikur. Ég spilaði demoið í gegn þrisvar sinnum. Totally awesome. Waage, Skinkan og Pési "MySpace n00b" voru sammála. Ég ætla pottþétt að fá mér þennan leik. Hann á að gerast í neðansjávarborg árið 1960 þar sem ýmis bioenhancements hafa corrupt'að íbúana og núna berjast þeir innbyrðis. Hér er smá TV spot trailer...



Haust leikja lineupið fyrir XBox er svo awesome. Fyrir utan BioShock, þá eru Army of Two, Guitar Hero 3, Rock Band, Halo 3, Assassin's Creed og fleiri leikir að koma. Þetta á eftir að vera awesome ár. Auðvitað á skólinn forgang, en lausu tímarnir verða ekki boring, skal ég segja þér.

Ég nenni ekki að skrifa meira fyrir ykkur. Þið nennið ekki að commenta hvort sem er... *guilt trip*

Kv. G

13. ágúst 2007

Blogging Hiatus

Jamm, það er búið að vera pása á færslum undanfarið. Ég hef verið að reyna að læra fyrir fjandans eðlisfræði prófið sem ég er að fara í á miðvikudaginn, en einbeitingin helst svo stutt í einu útaf ýmsum ástæðum. Það bætti ekki úr skák að ég var veikur tvo daga í síðustu viku og gerði þá lítið annað en að sofa. Ég reyni, en eins og staðan er í dag, er einbeitingin ekki til staðar.

Ég vinn bara hálfan dag í dag og á morgun og fer á bókasafnið til að lesa eftir það. Helvítis bókasafnið; Þjóðarbókhlaðan, sko. Ég ætlaði að fara þangað um helgina til að lesa, en opnunartíminn er fáránlegur um helgar á sumrin. Á laugardögum er opið frá 10-14 og á sunnudögum er opið frá ekkert til ekkert... sem sagt lokað.

Eftir að ég var búinn að reyna að læra á laugardaginn, þá kíkti ég í afmælið hjá Steina Ben, sem var á Hressó. Kallin var hress eins og venjulega og bauð öllum uppá bjór, en ég fekk mér ekki þar sem ég var að keyra og vildi auk þess vera hress daginn eftir til að geta lært eitthvað. Það var lítið hægt að tala við hann samt, þar sem hann eyddi hálfu kvöldinu í að reyna að gleypa konuna sína heila.

Það var reynt að læra heima í gær, en eðlisfræðin er bara svo fáránlega leiðinleg. Mitt sálarástand þessa dagana er alls ekki að hjálpa heldur. Það var lestur, random hugsanir, lestur, random hugsanir, þáttur, lestur, random hugsanir, random hugsanir, pizza, þáttur, svefn. Eins og ég segi... þetta gengur fokk illa. Svei...

Ég lofa að blogga meira aftur þegar ég er búinn í prófinu. Maður á þá eftir að taka amk eitt loka grill áður en skólinn byrjar og Sóðadjammið© fræga næstu helgi. Já, þið lásuð þetta rétt, það er Sóðadjamm© á næstunni. Þetta er eitthvað sem ég og Pési höfum talað um í allt sumar. Bara vera sóðalegir, ógeðslegir og gera eins mikið og hægt er sem við sjáum eftir. Það er þannig sem góðu sögurnar verða til, er þaggi? :)

Segjum þetta gott í bili. Reglulegt blogg er bara right around the corner. Haldið áfram að heimsækja síðuna reglulega og commentið, letingjarnir ykkar... ;)

Kv. G