Emo rock madness!
Ég er alveg að missa mig í "emo rock." Eins og flestir sem þekkja mig vita, hef ég verið að hlusta mikið á My Chemical Romance undanfarið, en svo bennti Óli "sinai" mér á, af öllum mönnum, á 30 Seconds to Mars. 30 Seconds to Mars er hljómsveitin þar sem Jared Leto, the slashy (actor -slash- singer), er forsprakkinn... Það er bara fín hljómsveit. Ef þið vitið um meira í þessum stíl, endilega sendið það á mig, sko. Er alveg að fíla það. Kannski lita ég hárið á mér svart, naglalakka mig svart, gata á mér andlitið í drasl og fer að ganga í öllu svörtu og helst leðri... Dííííííííííjóóóóóóóóóóóóóóóóók!!! hahaha :D
Smá 30 Seconds to Mars...
Dexter is back!!! Já, ég sem hélt að nýja serían af Dexter ætti ekki að byrja fyrr en í Október. Það kom í ljós að það er búið að gefa út Pre-air DVD disk með fyrstu tveimur þáttunum úr annari seríu af Dexter. Ég kíkti á þá og sjitt... þeir eru góðir. Þeir sem hafa séð þáttinn vita hvað ég meina þegar ég segi, "Little Chino er djöfuls naut, mar..." Þeir sem hafa aldrei horft á Dexter eru að missa af miklu, skal ég segja þér. Þetta eru algjörir snilldar þættir og það sem er ennþá betra er að það er Showtime, cable stöðvar network, sem framleiðir þá. Það þýðir að það er ekkert verið að skafa af málfarinu eða hylja eitthvað sem væri ekki við hæfi barna. Börn eiga ekki að vera að horfa á þessar stöðvar hvort sem er. :)
Ég horfði á svo geðveikan þátt í gær úr Chappelle's Show. Það var þátturinn þar sem Charlie Murphy (stóri bróðir hans Eddie Murphy) er að segja frá sögum af sér og Rick James. Þeir sem hafa séð þennan þátt ættu að muna eftir, "I'm Rick James, bitch." Claaaassic. Þetta er nú samt ekki besti þátturinn úr Chappelle's show að mínu mati, þótt hann sé mjög svo ofarlega á listanum. Besti þátturinn var reyndar The Wayne Brady Show... Algjör snilld. Wayne Brady bara að sýna harða hlið... hahaha...
Ég fer að fá Harry Potter and the Deathly Hallows: Deluxe Edition bókina mína bráðum. Ég hef ekkert lesið neina HP bók. Þessi bók var pöntuð fyrir Elísu á sínum tíma í pre-order. Ég er að hugsa um að láta hana af hendi bara, ef einhver vill kaupa hana. Mundu, þetta er deluxe útgáfa... :)
Ég var að rölta um BT um daginn og var að skoða DVD myndir. Ég rak augun í myndina John Tucker Must Die. Þetta er mynd sem ég "átti," en Elísa tók hana með vegna þess að hún keypti hana útí London fyrir sjálfa sig. Ég áttaði mig á því að ég ætti engar svona stelpu/gelgju myndir lengur. Það einfaldlega gengur ekki. Gelgju myndir rokka (kannski er ég ekki eins emo og ég hélt, hahaha). John Tucker Must Die er snilld, sem og Mean Girls og jafnvel Bring It On (FRUMSÝNING ALDARINNAR). Maður verður alltaf að eiga einhverja gelgju mynd í safninu. Því miður var Mean Girls ekki til. Hún er í miklu uppáhaldi hjá mér í þessum flokki mynda, enda skrifuð af Saturday Night Live leikara. Ég keypti mér þó John Tucker Must Die, þar sem hún kostaði bara 999kr. :)
Ég fekk vinnu tölvuna mína aftur áðan. Hún var tekin í gegn eftir að hafa farið í hengla eftir þennan MSN vírus. Algjört rugl sko. Það er svo langt síðan ég hef fengið vírus og hef aldrei fengið neinn sem hefur haft svona hrikalegar afleiðingar, en allt er nú fyrst.
Enda þetta á smá texta frá My Chemical Romance...
Have you heard the news that you're dead?
No one ever had much nice to say
I think they never liked you anyway
Oh take
Me from the hospital bed
Wouldn't it be grand
It ain't exactly what you planned
And wouldn't it be great if
We were dead
Ohh Dead!
Kv. G