27. júlí 2007

Farinn að fækka færslum...

Já, ég er farinn að fækka aðeins færslunum. Það er ekki ÞAÐ mikið að gerast hjá mér að ég geti skrifað á hverjum degi, lengur. Ég GET þess vegna alveg bara copy/paste'að eldri færslur og póstað þeim. Það er margt eins að gerast hjá mér... buuuuuut, I'm not gonna... ;)

Sjitt hvað ég er farinn að dýrka MCR. MCR er, fyrir þá sem vita það ekki, My Chemical Romance, emo band frá bandaríkjunum. Emo bönd eru þvílíkt í tísku þessa dagana á Íslandi, þá sérstaklega MCR og Fallout Boy. Það var GH2 sem kom mér á bragðið með MCR þegar ég prófaði Dead! lagið þar. Awesome lag.

Þann 23. júlí var svokallaður "National MCR day." Þetta er eitthvað sem einhverjar stelpur á MySpace komu upp með fyrir einhverjum árum skilst mér. Ég, þannig séð, "missti af" honum, en það er samt allt í lagi. Ég hlustaði á MCR næstum allan daginn hvort sem er.. ;)

Hún Fjördís bennti mér á eitt geggjað myndband með þeim.

Alveg magnað helvíti. Annars er The Black Parade myndbandið líka töff... ;)

The Simpsons myndin kemur í bíó í kvöld. Ég held að ég bíði með að fara á hana þangað til í næstu viku einhverntíman. Svona svo að ég geti notað 2-fyrir-1 tilboðið mitt. Annars er ég spenntur fyrir myndinni, sko. Ef þú ferð á IMDB og skoðar topp 250 myndir allra tíma listann þeirra, er The Simpsons strax komin í 93. sæti og það er hvergi búið að sýna hana. Simpsons fanboys are more powerful than the force, held ég... ;)

Ég er stöðugt búinn að vera að henda inn nýjum quotes í kerfið hér til hliðar og bætti meira að segja nýjum header við um daginn. Það kemur að því að ég setji enn fleiri header'a og meira að segja einhverja "sjaldgæfa" líka... :)

Vá hvað ég hafði lítið að segja í dag og það er meira að segja búið að vera langt síðan ég póstaði síðast. Þessi vika er bara einhvernvegin bara búin að flæða áfram án þess að ég tæki eftir því. Ég hélt meira að segja í gærkvöldi að það væri miðvikudagur. Ég fattaði ekki að það væri fimmtudagur fyrr en Pési minntist eitthvað á það. Hmmm...

Segjum þetta bara gott...

Kv. G

24. júlí 2007

Svekkjandi, maður...

Ég bloggaði um daginn að það væri spáð þrumu veðri í dag. Ekkert hefur gerst í þeim málum; geðveikt svekkjandi. Ég var farinn að hlakka til að heyra drungurnar og sjá kannski smá eldingu. Oh well...

Eins og ég var búinn að segja, þá er ég kominn með nýjan síma, en flest símanúmerin voru geymd í gamla símanum og ég næ þeim ekki úr. Ef ég á að vera með númerið hjá þér, endilega sendu mér SMS með númerinu og nafninu. Það er svo tómlegt að vera með svona lítinn símanúmeralista... ;)

Ég ætla aðeins að spjalla um "tísku" orðin sem ég er að nota.

  1. Lame: Þetta orð nota ég alveg fáránlega mikið þessa dagana og yfirleitt lengir maður orðið með löngu a'i. Notað til að "niðurlægja" fólk og segja hvað hlutir eru hallærislegir. Segir sig voðalega mikið sjálft.

  2. AWESOME: How I Met Your Mother hefur haft alveg fáránlega mikil áhrif á mig. Ég nota þetta orð alveg óspart. Það er óþarfi að segja ykkur hvað það þýðir og hvenær það er notað. :)

  3. LEGENDARY: Þetta er bara AWESOME í öðru veldi.

  4. Joðbjé: Ég vil helst ekki segja hérna hvað þetta orð þýðir og hvaðan það kemur... HAHAHA

  5. Svei: Þetta orð er gamallt og það eiga allir að þekkja það. Ég notaði það mikið fyrir 4-5 árum síðan. I'm bringing it back, baby!!!


Maður verður stundum að switch it up og nota orðaforða sem fólk er kannski ekki vant að heyra, ekki vegna þess að orðin eru flókin, heldur vegna þess að þau eru skrítin/spes. ;)

Mér tókst að klára GH2 í Hard um daginn. Ég held að ég verði aðeins að hvíla puttana á vinstri hendi. Mér er liggur við illt í þeim, en djöfull er það samt þess virði. Fáránlega skemmtilegur leikur. Fólki finnst hann oft kjánalegur þegar maður lýsir honum og þegar þau sjá hann í fyrsta skiptið, en þegar það prófar leikinn, breytist viðhorfið í 99% tilvika. Óli "sinai" er mjög gott dæmi um það... haha... Ég hlakka bara geðveikt til þegar GH3: Legends of Rock kemur út. Oh man...

Kannski smá þurr póstur. Er að spá í að bíða 2-3 daga milli pósta svo að maður hafi meira til að spjalla um í hverri færslu. Endilega commentið samt. Þá veit ég að fólk er að lesa færslurnar... ;)

Kv. G

23. júlí 2007

Long time, no see...

Úff maður, ekkert búinn að blogga síðan á föstudaginn. Það er bara langt fyrir mig, en ég var bara svo pirraður eitthvað um helgina út af einu sem gerðist á föstudaginn að ég nennti ekki að blogga.

Eins og kom fram í færslunni á undan, þá var grill heima hjá Hödda á föstudaginn. Það var fámennt, en góðmennt. Við borðuðum góðar steikur. Ég og Óli "sinai" fengum okkur nauta innralæri. Ekkert smá gott. Það var soldið fyndið að Höddi er ekki ríkasti maðurinn þegar kemur að hnífapörum og þurftum við að skiptast á hnífum, stundum. Ég endaði með að borða með stórum meat cleaver. Það var awesome... Myndir frá kvöldinu koma á eftir.

Ég tók með mér fötu, 2kg af salti og helling af klökum til Hödda. Það var ætlað til að kæla bjórinn (saltað vatn getur orðið kaldara en 0°C, fyrir þá sem vissu það ekki) og virkaði það bara fínt, sko. Síðan seinna um kvöldið, þegar ég var að beygja mig yfir fötunni, þá datt síminn minn úr innri vasanum á jakkanum mínum og beint ofan í fötuna. Hann fór alveg á kaf. Ég náði að taka hann uppúr á hálfri sek, en það var of seint. Hann var fullur af vatni. Ég fór með hann heim um kvöldið og næsta dag tók ég hann alveg í sundur og sprayaði hann með WD-40 til að losa vatnið frá. Mér tókst að koma símanum í gang, nema bara að lyklaborðið var fried. Sumir takkar gerðu 2 tölur á meðan aðrir takkar gerðu enga tölu. Ég vissi ekkert hvaða tölur hvaða takkar gerðu vegna þess að ég náttúrulega startaði beint í PIN skjánum og þar koma bara stjörnur. Svei...

Ég fékk mér annan síma í gær á léttgreiðslum. Ég fékk mér Sony-Ericsson W810. Flottur sími og mjög svipaður hinum, sem var uppseldur. Eina sem ég set út á hann er að hann er ógeðslega GAY! Hann er hvítur!! Ég fer bara á netið og kaupi mér svarta hýsingu á símann og skipti um. Ekkert vandamál. Kostar um £10. ;)

Eftir grillið fórum við, Óli "sinai", Finnur Kári og Krissi niður í bæ. Við vorum að flakka á milli Hverfis og Sólon. Við enduðum alltaf á Hverfis vegna þess að það var minna að gera þar og við fengum alltaf sama básinn til að sitja í. Róleg stemning á okkur og bara spjall. Frekar nice.

Annars var ég bara rólegur á laugardaginn og í gær. Á laugardaginn fór ég heim til Önnu Heiðu og kynntist tveimur vinkonum hennar, Tinnu og Sigrúnu, algjörar skvísur. Við vorum bara að tjilla og horfa á vídjó. Í gær var ég bara eitthvað að taka til og hitti svo Sólveigu vinkonu. Bara meira vídjó, tjill og spjall... :)

Þetta var bara góð helgi, sko. Myndirnar koma svo á eftir einhverntíman... Þegar ég er búinn að vinna. ;)

Kv. G