20. júlí 2007

Avada Kedavra

Ég, Pési, Óli "sinai", Höddi, Atli dyravörður og kærastan hans fórum á Harry Potter & The Order of the Phoenix. Bara góð mynd, sko. Hún var soldið lengi að byrja og, samkvæmt Pésa, þá vantaði helling í hana miðað við bókina, en ég fílaði hana mjög vel. Það var kannski ekkert skrítið að það vantaði helling í myndina miðað við bókina þar sem þetta var lang lengsta bókin og ef hún hefði verið gerð eins mikið eftir bókinni og hinar myndirnar, þá hefði myndin verið 4-5 tímar í lengd.

Það var geðveikt fyndið þegar myndin var búin og við vorum að labba niður salinn, þá sást á bíótjaldinu "Helena Bonham Carter." Þá heyrðist fyrir aftan mig, "Helena Bonham Carter? Hverja lék hún í þessari mynd?" Ég sprakk alveg úr hlátri. Hvernig var ekki hægt að þekkja hana í myndinni? Hún leikur sem sagt Bellatrix Lestrange og er í mínum augum bara karakterinn sem hún lék í Fight Club nema að hún kann galdra og er aðeins meira evil.

Það er rosalegt hvað það er mikið Harry Potter æði í gangi núna. Nýja myndin að koma út og bókin líka. Það eru allir að verða snar. Ég labbaði fram hjá Mál&Menningu á laugarveginum áðan, þar sem bókin byrjar í almenna sölu í kvöld kl 23:01, og þar var biðröð af fólki fyrir utan. Þar voru krakkar í Harry Potter búningum, fólk í garðstólum, DJ að spila o.fl. Það var soldið fyndið að sjá þetta. Þetta voru ekkert ofboðslega margir, við erum nú á Íslandi, en það koma örugglega fleiri fyrir kl. 23:01.

Ég var að skoða veðurspánna áðan og sá þetta:

Það er sem sagt spáð þrumu veðri á þriðjudaginn. Það er alveg magnað... :D Hlakka bara til, þar sem þetta gerist svo sjaldan á Íslandi.

Fór á þessa síðu áðan og var að dunda mér við að búa sjálfan mig til sem Simpsons karakter. Mér tókst það ekki alveg, vegna þess að það var ekkert svona "ÉG" til þarna, en ég gerði mitt besta.


Það verður smá grill í kvöld heima hjá Hödda í tilefni afmælis hans. Fer þangað örugglega bara strax eftir vinnu... eða amk strax eftir að ég er búinn að kaupa mér eitthvað kjöt... :)

Kv. G

19. júlí 2007

Harry Potter...

Harry Potter & The Sorcerer's Chamber in Azkaban of Fire.

Já... ég, Óli "sinai", Höddi og Pési horfðum á allar gömlu Harry Potter myndirnar heima hjá mér síðustu daga. Það var bara geðveikt gaman, þrátt fyrir það að ég var ekki mjög hress (var að dreeeeeeeepast úr þreytu). Var oft dottandi yfir myndunum, en ég var búinn að sjá þær það oft að það skipti ekki máli, þannig séð. Við förum síðan á nýju Harry Potter í kvöld.

Sjónvarpið gerði góða hluti. Geggjað að vera með DVD session á þessu tæki. Skerpan er alveg fáránlega góð og litirnir djúpir. Ég er ekki ósáttur með þetta tæki.

Það styttist í að ég fer að flytja. Það er bara spurning um hvert ég fer. Stúdentagarðarnir eru ekki að gera sig. Það eru alveg fáránlega langir listar til að komast inn. Ég hef færst ofar á listann, en ekki mikið. Ég með umsókn að þremur íbúðum og staðan á mér á listunum er: 226, 236 og 302. Það er svo annað sem er lined up. Ris íbúð í hafnarfirði í sama húsi og Höddi. Ég á eftir að skoða, en það gæti verið góður kostur.

Höddi á afmæli í dag, that little nyaaaaaagga... Happy Birthday, bitch... ;)

Kv. G

16. júlí 2007

I have a new roommate...

Maður er búinn að grilla fáránlega mikið í sumar. Þetta er bara að verða rugl. Þrír dagar í röð, föstudagur, laugardagur og svo síðast í gær hjá mömmu og pabba. Við fengum okkur lambafillet og lambasirloin. Það var alveg ógeðslega gott.

Vá... ég hef einhvernvegin ekkert að segja í dag. Búið að vera ansi dull í dag.

Hey jú, ég er kominn með nýjan roommate. Hún er ógeðslega pirrandi og borgar enga leigu. Ég er strax að verða brjálaður. Hún er fáránlega lítil. Ég var að reyna að sofna í gær, en hún hélt mér vakandi hálfa nóttina...

...

...helvítis húsflugan. Gekk á andlitinu á mér í alla nótt...

Kv. G

15. júlí 2007

I got two aces in my pocket...

Vá hvað þessi helgi er búin að vera góð. Á föstudaginn var ég í partíi hjá Birnu og það var grillað og mikið um glens. Þar sem ég, Pési og Krissi vorum búnir að lofa okkur í partí til Guðlaugar líka, þá fórum við þangað um 10 leitið. Ég og Pési vorum, því miður, ekki alveg að fíla okkur þar, svo að við fórum aftur til Birnu. Einhver stelpa þarna í partíinu hjá Birnu var, vægast sagt, all over me. Ég lét nú samt ekki vaða bæði vegna þess að hún var allt of full og vegna þess að ég ætla að reyna að halda mér frá kvenfólki í bili.

En já, föstudagurinn var sem sagt mjög góður.

Það var svo geðveikt gaman í gær. Fyrri hlutinn af deginum var frekar humdrum, en síðan fór ég heim til Sverris í grill og Texas Hold'em. Við vorum fimm og vorum með 1000kr. buy-in og svo mátti maður kaupa sig aftur inní leikinn eins og maður vildi fyrir einhvern ákveðinn tíma. Við spiluðum frá kl 22 til kl 3 og það endaði með því að ég vann pottinn, 7000kr.

Hins vegar var ég líka fyrstur til að tapa öllu. :) Ég re-buy'aði inn fyrir 500kr og spilaði snjallt. Þegar klukkan var orðin um 1:30, þá fórum við að hækka blindið reglulega, sem byrjaði í big blind: 10kr, small blind: 5kr. Eftir fullt af successful bluffum og nokkrar geggjaðar hendur vorum við bara tveir eftir og munurinn á chipsunum okkar var ekki nema um 500kr. Big blind var 1000kr og small blind var 500kr. Við fengum spilin og Þorsteinn, sem var hinn sem var eftir og með 500kr meira en ég, sagði bara "all in." Hann setti þá 5'u og gosa á borðið, ég setti tvo ása á borðið og tók þá allt nema 500kr (þar sem ég var ekki með nóg uppí hans "all in," þá fékk hann afganginn). Næsta hendi varð hann að fara all in og vann með fullt hús. Hann varð aftur að fara all in þar sem hann var big blind og ég endaði þá með fullt hús. Þetta var MJÖG spennandi leikur í endann. :D

Það var margt sem var talað um á meðan á spilinu stóð. T.d. var einn strákurinn sem var byrjaður að hitta einhverja stelpu sem heitir Dina (sagt: dýna). Ekki sniðugt nafn á íslandi. Ég ætla nú ekki að segja hvað við sögðum, þar sem þetta á að vera nokkuð fjölskylduvænt blogg, en það var ansi fyndið. Hann var búinn að þekkja hana í sólarhring og var strax búinn að heyra alla brandarana sem þér gæti dottið í hug. Hvernig heldur að henni líði að hafa þurft að ganga í gegnum grunnskóla með þetta nafn... hahahahaha... Greyið stelpan segi ég nú bara... :)

Eftir það, þá kíktum við Sverrir niðrí bæ. Ég var bara edrú og keyrði. Kærastan hans var að draga okkur út um allan bæ á meðan við vorum að djóka um hvað við værum gamlir og ekki að fíla bæinn lengur. Stelpan þekkir alla í bænum, eins og við gerðum fyrir um 4 árum síðan. Eins og ég segi... gamlir... hehe :P

Þetta er búið í dag. Ætla að koma mér til ma&pa...

Kv. G