6. júlí 2007

Loksins góður sumarsmellur...

Transformers var, vægast sagt, snilld. Allt á undan myndinni var það ekki. Ég og Höddi fórum í Kringlubíó í gær og það var massív röð fyrir utan. Sem betur fer voru Gummi Kári, Arnar, Óli "sinai" og co. búnir að komast framarlega í þeirri svo að við komumst þar inn. Það var ekki svo slæmt, svo sem. Svo komum við inní bíóið og þá varð til önnur röð fyrir utan salinn. That's where things got seriously iffy... Við erum að tala um mesta hita-, svita- og nördalykt sem ég hef fundið. Djöfull var heitt þarna inni. Sviti dropaði niður bakið á mér og ég var bara í þunnri skyrtu. Þetta hefur verið eitthvað ploy til að fá fólk til að kaupa sér eitthvað kalt að drekka.

Þegar komið var inní salinn var mikill léttir. Það var kveikt á A/C þar inni. Ah... the cool air was a godsend. Þegar við ætluðum að finna sæti, hins vegar, þá var svo mikill troðningur að það var ómögulegt að finna sæti saman og reyna að passa sæti fyrir aðra. Við erum að tala um að við vorum upprunnalega ca. 7 manns. Við splittuðumst á þrjá staði. Síðan komu Pési, Bjarmi, Brynja, Sævar og Krissi svona kl 19:50 og héldu að við ætluðum að passa sæti fyrir þau... Yeah... Right...

Rétt áður en myndin byrjaði var rætt yfir salinn um það að slökkva alveg á símum og ekkert að tala neitt vegna þess að það er svo truflandi. Fólk klappaði yfir því og svo byrjaði myndin. Hvað kom þar í ljós? Ég sat við hliðina á háværustu fávitum í salnum. Algjörlega óþolandi. Djöfull var ég pirraður, en samt sagði ég ekki neitt. :S

En, já... myndin sjálf var snilld. Hún var algjörlega polar opposite myndana sem ég taldi upp í síðasta pósti. Munurinn er að Transformers er snilldar mynd með nokkrum kjánalegum atriðum, en hinar myndirnar voru kjánalega með nokkrum góðum atriðum.

Éttla eyða restinni af póstinum að tala um MySpace, eða MyCrack eða CrackSpace eins og ég kýs að kalla það. Þetta er vefur sem, fyrir rúmlega mánuði síðan, var mér alveg sama um. Hins vegar núna, þá er maður alltaf að skoða þetta og hafa áhyggjur af fáránlegum hlutum. Afhverju er maður ekki á Top Friends listanum hjá friend #1? Afhverju er friend #2 hærri en ég á Top Friends listanum hjá friend #3? Afhverju er fólk ekki að commenta aftur til mín þegar ég commenta til þeirra? Afhverju vildi manneskja #4 ekki accepta mig sem vin? ERTU AÐ GRÍNAST?!? Þetta er svo fokkin' sad... Díses... Samt heldur maður alltaf áfram á þessum fjárans vef. CrackSpace er meira addictive en CrackBerry.

Ætla að ljúka þessu hérna... Góða helgi fólk. Ég reyni að blogga eitthvað um helgina ef þið nennið að lesa.

Kv. G

5. júlí 2007

IT'S GONNA BE LEGENDARY!

Já... þokkalega legendary!



Maður er að fara á Transformers í kvöld. Totally, TOTALLY awesome. Það er fyndið að hugsa til þess að þegar ég sá teaserinn fyrst og sá að Michael Bay væri að leikstýra myndinni, þá var ég strax alveg svartsýnasta manneskja veraldar þegar koma að þessarri mynd. Síðan komu fleiri trailerar og mikið af screenshots og fullt af góðum dómum um myndina nýlega, að ég er farinn að vera ansi spenntur. Djöfull hlakka ég til. Það er eins gott að þessi mynd verði ekki jafn slæm og Spider-Man 3, Die Hard 4.0, Oceans 13, Shrek 3 og fleiri sumar "smellir".

Smá málefnaleg umræða. Ég heyrði þetta í útvarpinu í morgun og er búinn að tala um þetta við Hödda, en mér fannst sumt í þessu svo fyndið að ég verð bara að koma þessu að. Það var sem sagt verið að tala um smá pattern sem fólk hefur tekið eftir í akvörðunum ríkisstjórnarinnar. T.d. að hundahald er bannað, nema þú borgar ríkinu og fáir undanþágu. Stripp staðir eru núna bannaðir að vera með rekstur, nema þú borgir ríkinu fyrir ákveðna undaþágu. Verður þetta það sama með reykingabannið? Verður það þannig í nánustu framtíð að veitingahúsaeigendur geta bara borgað fyrir einhverja undanþágu? Öss... Það yrði ekki alveg nógu sniðugt. Til hvers að kalla það bann þá, ef maður getur bara borgað pening til að gera það ef maður vill?

Svo var einn punktur sem mér fannst alveg frábærlega fyndinn. Það var verið að tala um hvað það var asnalegt að það sé verið að banna það að reka stripp stað, en leyfa vændi. Þá hringdi einhver inn og minntist á að vændi væri leyfilegt ef enginn þriðji aðili er að græða á því. Hann hélt áfram og sagði, "... en svo þarf maður að borga skatt af vændinu. Er þá ríkið ekki talið sem þriðji aðilinn?" Ansi góður og fyndinn punktur hjá manninum. ;)

Ég og Óli "sinai" horfðum á ID4 í gær í nýja sjónvarpinu. Það er alveg merkilegt að fyrir nokkrum árum þá hugsaði maður, "vá, það eru svo geeeeðveik gæði á DVD. Bara bestu gæðin sem hægt er að fá" (eða eitthvað á þá leið), en þegar við vorum að horfa, þá tókum við eftir hversu grainy myndin var í raun og veru. Ekki of áberandi of oft, en það kom fyrir að maður sá þetta eins og DivX þjappaða mynd þar sem litirnir eru ekki gradient og skiptast greinilega.

Svo á Lil'Elva ammli í dag. HAPPY BIRTHDAY!! Ég vona að hún eigi góðan dag... ;)

Nenni ekki að skrifa meira núna... Just comment or something... ;)

Kv. G

4. júlí 2007

Happy 4th of July!!

Kannski horfir maður á Independance Day í kvöld í tilefni dagsins. :)

Já, þetta er bara hræðilegt. Stutt og léleg blogg færsla í fyrradag og ekkert í gær. Hvað er að gerast? Ég er bara með blogg fráhvarfseinkenni. :)

Það er ansi margt búið að gerast síðan á mánudaginn. Sjónvarpið mitt bilaði og fór að sýna brenglaða liti og hætti svo stundum að sýna mynd. Þegar Pési sá þetta bauð hann mér díl á risa sjónvarpi úr Sony Setrinu. Þar sem ég var búinn að selja Wii'inn minn og fékk pening frá Bjarma fyrir síðuna sem ég er að klára fyrir hann og sá peningur átti að fara í ferða/sjónvarpssjóð hvort sem er, þá ákvað ég að skoða þennan díl. Við erum að tala um 40" Sony Bravia LCD hérna...

Sjónvarpið

Ég ætla ekki að segja verðið sem ég fékk þetta á, þar sem þið eigið örugglega eftir að leita Pésa uppi og biðja um svona tilboð sjálf ef ég geri það. :) Þegar ég var búinn að skoða þetta þá fór fór ég niðrí banka, tók heimild uppá restina og sló til. Ég sé ekkert eftir því og þessi heimild er eitthvað sem ég get borgað upp eftir næstu mánaðarmót þannig að ég á þá sjónvarpið alveg... (Hefði getað borgað það allt út ef skólagjöldin og pústið á bílnum þyrftu ekki að borgast núna) :D Heimilið er komið með nýtt altari...

Í gær var ansi erfiður dagur. Another day, another month. Mánuður frá því að við Elísa hættum saman. Veistu samt, ég áttaði mig á nokkrum hlutum áðan sem eru "easing my pain." So I'm all good now... ;)

Var að skoða smá vídjó á netinu í downtime í vinnunni... Rock Band gameplay vídjó... OG TROMMURNAR ERU SÝNDAR!!! Oh man... þetta er awesome... Tékkið á þessu...



Við erum að tala um LEGENDARY leik... Þetta verður mesti partíleikur okkar tíma, held ég.

Kv. G

2. júlí 2007

Hef bara ekkert að segja í dag...

Læt The Streets segja ykkur hvað ég er að hugsa...

Dry your eyes mate,
I know it's hard to take but her mind has been made up.
There's plenty more fish in the sea.
Dry your eyes mate,
I know you want to make her see how much this pain hurts.
But you've got to walk away now,
It's over.


Kv. G

1. júlí 2007

Fólk er fíbbl...

Vá hvað dagurinn í gær sökkaði eitthvað. Ég meina, ég gerði fullt af skemmtilegu drasli. Ég fór í sólbað á hól við grunnskólann hérna rétt hjá og las á meðan, við strákarnir tókum D&D roleplay og ég og Óli "sinai" tókum sma bæjarrölt. Málið er bara að, eins og ég sagði hér áður, þá leið mér bara illa innra með mér í gær. Ég er að vinna úr því núna... já, það er ennþá...

Ég skil ekki hvað málið er, ég er alltaf að kvarta hvað bærinn sökkar, en samt lokkar hann mig til sín. Það var aðeins hressara í bænum í gær heldur en í fyrradag. Aðeins meira fólk til að bíða í biðröðunum. Djöfull þoli ég samt ekki íslendinga. Ég var svo pirraður þegar ég labbaði að Sólon og sá að það voru tveir strákar að sparka í liggjandi mann og sá maður flúði undir jeppa með höfuðið til að koma í veg fyrir mjög alvarleg meiðsli. Svo er hópur af fólki, við erum að tala um biðröðina á Sólon, reykplássið fyrir framan Sólon, dyraverðir og fleiri, sem stóðu bara og horfðu á. HVAÐ Í FJANDANUM ER AÐ YKKUR? Þegar ég var kominn nær, þá voru þeir sem betur fer hættir, en afhverju hjálpaði enginn manninum? Ég varð svo illa pirraður þegar ég sá þetta.

Annars fórum við Óli á Barinn, Bar 11 og Glaumbar. Sjitt mar... Glaumbar er sko staðurinn sem maður fer á ef maður vill fá kynsjúkdóm. Ekkert smá laust kvenfólk á þessum stað, it's known by all, en djöfull mundi maður ekki snerta við því maður.

Núna byrjar annar mánuður af "being fucking single." Úff... nenni ekki einu sinni að tala um það.

Bjössi, Áslaug og Raggý, systkinin mín, eru hérna hjá mér núna. Við fórum í Kringluna, Kolaportið og á ísrúnt áðan. Það var bara mjög gaman. Ég er að leyfa þeim að prófa GH2 núna, svo grillum við hamborgara á eftir í Hafnarfirði. It's gonna be LEGENDARY!

Annars, gleðilegan júlí...

Kv. G