30. júní 2007

Úff...

Ég veit ekki hvað ég á að segja meira í titlinum... Þetta er búið að vera vondur dagur. Svona "söknuðar" dagur. Það byrjaði allt í gær þegar Hörður Mar var að fara heim frá mér og við áttum þetta samtal:

[samtal fjarlægt]

Jamm... fyndið samtal, en það var endirinn sem fékk helvítis heilann minn til að hugsa. Ég, ofhugsarinn mikli, fór að hugsa um Elísu. Einhvern veginn bætti það ekki úr skák að ég hitti hana áðan og var að gera henni greiða. Maður reynir alltaf að vera glaður og sýna gleði yfirbragð, en manni finnst maður vera svo holur að innan.

Bleh...

En já, dagurinn í gær var 100x betri. Ég byrjaði daginn á að mæta kl 08:45 í vinnuna og fór á Agile Software Development námskeið. Þetta námskeið átti að vera allan daginn, en seinni fyrirlesarinn var veikur þannig að námskeiðið var bara til hádegis. Ég fór svo í hádegismat með Hödda og við tókum smá "strut" í gegnum bæinn í góða veðrinu. Ég kom aftur í vinnuna eftir það ca. kl 14 og þá var Skeggi yfirmaður búinn að senda á alla póst um að við mættum fara heim og fá laun til kl. 17. Sólar dagur. Sjitt mar. Ég var ekki einu sinni búinn að opna Visual Studio í tölvunni. Algjör snilld... :P

Hörður Mar kom til mín í gær eftir að ég var búinn í vinnunni. Hann eldaði mexikanskan mat sem var bara mjög góður og á maður alveg HELLINGS afgang. Við erum að tala um mat fyrir vikuna hérna.

Þegar Hörður Mar fór þá ákvað ég að kíkja í bæinn með Óla "sinai". Ég ætlaði ekki að drekka og bara vera á bíl. Mig langaði að gleyma þessu sem ég var að hugsa um. Við fórum í bæinn og hann var gjörsamlega tómur. Nóg fólk í öllum bænum til að fylla einn til tvo skemmtistaði. Afhverju var svona lítið af fólki í bænum? Var fólk eitthvað að misskilja og halda að þessi helgi er fyrsta helgin í júlí og farið úr bænum? Það er ekki hægt að telja þessa helgi sem fyrstu helgina í júlí þar sem enginn djamm dagur þessa helgi lendir í júlí. Það er bara þynnku dagurinn.

Nenni ekki að skrifa meira. Hef nóg að gera áður en strákarnir koma í heimsókn til mín á eftir.

Kv. G

29. júní 2007

Fitubollan komst í buxurnar sínar!

Já... ég er farinn að geta klæðst buxum sem ég hef ekki komist í í rúmlega ár, að minnsta kosti. Þetta er mjög mikið win fyrir mig. Ég er alveg frekar sáttur.

Í gær var lokadagur 120 ára afmælisárs Landsbankans. Við vorum með piknik í hljómskálagarðinum í góða veðrinu. Það var risa tjald, grillaðir hamborgarar og pylsur og hljómsveit að spila í tjaldinu. Það var alveg magnað og svo fengum við alveg magnað veður í þokkabót. Þetta var snilldar dagur.

Ég fór í bíó í gær... á Die Hard 4.0. *andvarp* Hún var vægast sagt ekki góð. Ég ætlaði mér að hrauna yfir myndina í dag á blogginu. Ég ætlaði að benda á ýmis atriði sem mér þótti ótrúverðug og asnaleg, en éttla ekki að gera það. Ég vil ekki skemma myndina fyrir ykkur sem ætla og vilja ennþá sjá hana.

Hins vegar vil ég spurja, hvað er málið með léleg sequel þetta sumar. Ég meina, ég fílaði Pirates 3, en margir fíluðu hana ekki. Ég tala nú ekki einu sinni um Spider-Man 3, Oceans 13 og 28 Weeks Later. Þessar myndir einhvernvegin leggja frá sér allt sem gerði fyrri myndirnar góðar og skilja mann eftir með tilfinningu sem aðeins er hægt að lýsa með orðinu, "bleh."

Það er fyndið að hugsa til þess að ég sagði hér á undan, "Ég ætlaði mér að hrauna yfir myndina í dag á blogginu." Ég er farinn að verða eins og þetta fólk í bíómyndum og þáttum sem manni finnst svo fyndinn og lame þegar þeir segja, "I'm SO writing about this in my blog!" Hahaha! Þetta minnti mig á Barney í How I Met Your Mother... ;)

Það er ekki mikið meira sem ég hef að segja í dag. Ég hef það þá ekki lengra.

Kv. G

28. júní 2007

Ný mættur í vinnuna...

Jæja, gott fólk. Klukkan er núna 11:00 og ég er ný mættur í vinnuna. Djöfull var gott að sofa, mar. Sjitt! Ég vaknaði fyrst klukkan 8:00, en sagði bara, "Fokk itt. Ég er að fara í vinnu piknik eftir vinnu kl 18:00. Ég mæti bara seinna." Ég ætlaði mér ekki að mæta alveg svona mikið seinna, en svona gerist stundum þegar maður fer seint að sofa. ;)

Já, ég er að fara í vinnu piknik á eftir. Þetta er í tilefni til síðustu viku í afmælis ári Landsbankans. Það verður stuð, sko. Ég hélt reyndar að þetta ætti að vera lengur og var búinn að segja öllum að ég væri upptekinn í allt kvöld. Svo kemur það í ljós að þetta er bara til kl 20:00. Ég segi þá hér með, "ég er laus í kvöld eftir kl 20:00." Kannski fer maður bara í bíó eða eitthvað.

Bjarmi og Pési kíktu til mín í gær. Bjarmi kom aðallega til mín til að láta mig fá loka upplýsingar fyrir heimasíðuna sem ég byrjaði að gera fyrir hann fyrir löngu síðan. Ég get loksins farið að klára hana. Újebeibífílaða...

Þegar strákarnir voru hjá mér í gær, þá ákváðu þeir að fá sér einhvern mat. Ég er svo stolltur að segja að ég hafi sýnt ofur-viljastyrk. Þeir fóru á Rizzo, keyptu sér Toscana pizzu, THE GOD OF PIZZAS, og komu með hana heim til mín til að borða. Á meðan þeir gorge'uðu sig á henni, þá var ég að borða ristað brauð. Stapíll? I think so!

Mér fannst svo fyndið þegar ég var að koma í vinnuna, þegar ég var að labba framhjá alþingishúsinu niðrí bæ, þá sá ég hóp af þýskum túristum. Þeir voru þarna að hlusta á ferðastjórann blaðra um alþingi og horfa á stillása og ljótleika sem umlykur alþingishúsið. Túristarnir voru vægast sagt óspenntir... hahaha....

Þetta er nóg í bili...

Kv. G

27. júní 2007

Sumarið er greinilega grill tíminn...

Já... Maður er alltaf að grilla. Hörður Mar kom til landsins í fyrradag og hann kíkti til mín í gær og við keyptum okkur bara einnota grill og gott lambakjöt. Ég fékk mér alveg geggjaða lambafillet. Þetta einnota grill var ekki alveg að gera sig fyrst. Það hitnaði til helminga og tók alveg amk klukkutíma að verða nógu heitt fyrir kjötið. Síðan þegar við byrjuðum að grilla, þá ákváðum við að taka lag í Guitar Hero áður en við snérum kjötinu. Ég man ekki hvaða lag það var, en ég man að það var of langt. Fyrstu kjötbitarnir brunnu soldið illa... heheh... Þetta var samt mjög fínt kvöld. Gott að fá kappann heim aftur. ;)

Ég held áfram í mínu svefnleysi. Ég fór ekki að sofa fyrr en kl. 02:30. Hvað er málið? Afhverju langar mig ekki að sofa? Ég elska að sofa!

Ég veit alveg svarið við þessu, en ég einhvernvegin vil ekki segja það... :)

Þegar ég gat ekki/vildi ekki fara að sofa í gærkvöldi, kíkti ég á Óla "sinai". Hann býr í stuttri göngu fjarlægð frá mér. Hann var eitthvað að tölvast bara svo að ég tók bara upp lappann og fór að vinna. Djöfull fer maður að vinna á fáránlegum tímum, mar... ;)

Ég var að taka eftir því að hægri handleggurinn minn er eitthvað óstöðugur í dag. Hendin og framhandleggurinn titra... og þetta er bara hægra megin. Það er mjög spes.

Ein pæling í dag og þið sem lesið þetta og búið ein getið kannski commentað á þetta og sagt ykkar skoðun á þessu. Afhverju í ósköpunum, þegar maður býr einn, er maður að loka og læsa (aðal áherslan á að læsa) þegar maður fer á klósetið? Ég meina, býst maður við því að einhver komi og gangi inná mann? Hver mundi það vera? Ég gerði þetta síðast í morgun þegar ég fór í sturtu. Þegar ég var búinn og ætlaði að fara fram, tók ég eftir að það var læst og hugsaði bara, "afhverju?" Ég meina, ég gerði þetta oft þegar ég var einn heima og ég og Elísa bjuggum ennþá saman og þá var það alveg fyndið. Núna er það bara kjánalegt!

Svarið mér þessu... Gerið þið þetta líka?

Kv. G

26. júní 2007

Hugur vs. hjarta...

Kvöldið í kvöld var bara mjööög gott. Ég var illa sofinn og búinn að vinna helling í dag og ætlaði að leggja mig þegar ég kæmi heim, en Maggi "Murgus" bauð allt í einu í grill borgara. Þetta var bara tilboð sem ég gat ekki hafnað. Ég, Óli "Skankelator", Óli "sinai" og Höddi fórum allir til Magga og vorum með hresst grill. Ég og Óli "Skankelator" héldum tónleika til að "borga fyrir borgarana". Sem sagt Guitar Hero tónleika... :D

Litli sonur hans Magga, hann Ríkarður Axel, er algjört krútt. Hann var að dansa á meðan ég við spiluðum í Guitar Hero og klappaði þegar lögin voru búin. Svo var hann alltaf að reyna að tala við okkur, en það kom bara sætasta bull úr honum sem ég hef nokkurn tíman heyrt ... :D

Nú, eftir grillið, þá fékk ég heimsókn frá Hjördísi "Fjördísi". Hún kom með kanadískan bjór handa mér og við vorum með létt spjall. Það var bara mjög fínt. Alltaf gott að fá company. Ég er félags svampur eins og er. Mér finnst ég alltaf þurfa að hafa fólk í kringum mig núna. Takk fyrir heimsóknina, Hjördís... :D

Ég og Óli "Skankelator" erum núna sjálfskipaðir lögfræðingar með sérsvið í reglum og lögum fyrir "guy games". Við fundum snilldar loophole á shotgun-reglunni frægu. Reglan, eins og flestir vita, er að þegar þú sérð bílinn sem þú og vinir þínir eru að fara að keyra í, þá fær fyrsti farþeginn til að öskra SHOTGUN farþegasætið frammí. Nú, loophole'ið sem við fundum er út frá því að þú þurfir að sjá bílinn. Þú tekur myndavélasímann þinn, tekur mynd af öllum bílum vina þinna og þegar þið eruð að fara, þá tekurru upp símann þinn, finnur viðeigandi mynd og kallar SHOTGUN. Þú getur gert þetta áður en þið farið út. Þetta er löglegt loophole. :D

Ef við snúum okkur að titli þessa pósts, þá var ég að keyra í vinnuna í morgun (mánudagur) og var að hlusta á Zuuber á FM957 og þá fór Svali að tala um einhvern póst sem hann sá á barnaland.is. Ég veit, ég veit... Þetta byrjar ekki vel. Ég er að tala um FM957 og barnaland.is í sömu setningu, en bíðið aðeins og lesið. Hann fór að tala um þennan póst sem var um "hugur vs. hjarta" og hvort þeirra maður ætti að fylgja. Talað var um það að ef maður hlustar á hugann, þá er lífið auðveldara, en getur orðið innantómt. Ef hjartað fær að ráða, þá er maður oftast ánægður með þá ákvörðun, en hún umturnar oft mörgu í lífi mans.

Mér fannst þessi umræða snerta mig á einstakan hátt. Ég meina, min nýlegu sambandsslit voru gerð eftir að hafa hlustað á hugann, en hjartað er núna alltaf að segja mér að reyna að laga þetta aftur. Hvort á maður að hlusta á að ykkar mati? Segið mér það, endilega? Commentið um þetta...

Kv. G

25. júní 2007

Brúðkaup og kannski smá meira...

Sorrí að ég hef ekki verið eins duglegur að blogga og ég hef ætlað mér, en já... Það eru ekki allir dagar jafn viðburðarríkir og Guitar Hero dagurinn ógurlegi, þegar ég fékk mér GH2... :D

Vá... spes... ég er að láta XBoxinn spila lög af file servernum mínum. Það er á shuffle og þá kemur allt í einu uppáhalds lagið mitt úr GH2, Dead! með My Chemical Romance. Ég vissi ekki einu sinni að ég ætti það. Ég hélt að ég hefði aldrei heyrt það fyrr en ég fékk leikinn... :P

Gærdagurinn (laugardagurinn) var æðislegur. Svenni og Sveinbjörg giftu sig við mjög fallega athöfn í dómkirkjunni. Athöfnin átti að byrja kl 18. Við mættum í kirkjuna ca. kl. 17:50. Kl. 18, þá stóð Svenni við altarið með mömmu sinni. Hann heilsaði gestum sem voru að koma inn. Kl. 18:05 var hann ennþá einn með mömmu sinni. Kl. 18:10, ennþá einn. Kl. 18:15, ennþá einn og virtist vera frekar stressaður á svipinn. Kl. 18:17 kom Sveinbjörg loksins. Þá hafði hringurinn hennar týnst... Svenni var farinn að halda að hún hefði verið stungin af... Góð saga til að segja barnabörnunum. Kl. 18:32 voru þau orðin hjón, svakalega falleg hjón... :D

Þegar brúðkaupið var búið, þá keyrðu brúðhjónin burt á gulum og svörtum Citroen fórnbíl sem Svenni var ný búinn að kaupa bara fyrir þennan dag. Sveinbjörg vissi ekki af því fyrr en á brúðkaupsdaginn. Hann er svo rómantískur hann bróðir minn, eins og ég. Eða ég eins og hann... segir maður það ekki fyrst hann er eldri? :)

Veislan var haldin á Kjarvalsstöðum niðrí bæ. Rosalega flott, en minimalísk veisla. Mér leist ótrúlega vel á hversu líbó þetta átti að vera. Ég hefði viljað hafa mitt svona ef ég væri ennþá trúlofaður. Ekkert sætaskipan eða neitt... Bara allt frjálst og ofboðslega gaman. Litlu brúðarmeyjarnar voru algjört æði. Ég bráðnaði gjörsamlega við að horfa á þær og sá þá að ég er alveg andlega tilbúinn til að eignast krakka. Ég veit... "LAAAAME," en samt... Þær voru bara svo ótrúlega krúttlegar... :)

Kl. 02:00 lokaði salurinn og ég hélt mér niður í bæ. Ég hitti Krissa eftir að hann var loksins búinn að ná sér í taxa úr partíinu sem hann var í. Það var svona ágætt í bænum. Ekkert stórkostlegt. Við fórum á Sólon og vorum eitthvað að dansa. Krissi var soldið pirraður á mér hvað ég var óduglegur að höstla. Ekki beint "my forté"... Eg reyndi að vera wingmaðurinn hans Krissa og pullaði "Hefurru hitt Krissa?" krissi fór að spjalla við dömuna en engir blossar mynduðust. Það virkaði sem sagt ekki í þetta sinn og Krissi reyndi að kenna mér um og segja að ég væri lélegur wingmaður. Öss... I hooked her, you were supposed to reel her in... ;)

Mér finnst geðveikt leiðilegt að ég hugsaði hálfan daginn í gær, "þetta er ekki að fara að gerast hjá mér eftir rúmlega ár..." Ég reyndar ákvað löngu áður að ég ætlaði ekkert að tala neitt um þetta þennan dag og stóð við það, nema þegar ég var að segja fólki að við værum hætt saman þegar þau spurðu hvar Elísa væri, en það var ekkert meira en það. Þá sagði ég bara, "Ég ætla samt ekkert að tala um þetta í dag." Ég er svo mikil veimiltíta þegar það kemur að tilfinningum að það er ekki venjulegt... hehe... Djöfull verður maður að fara að harka af sér...

Ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er með myndir úr brúðkaupinu hérna.

Kv. G