23. júní 2007

DON'T WANNA BE YOUR MONKEY WREEEEENCH!

Já... Ég og GH2... Best buds... :P

Mér tókst að mæta á réttum tíma í vinnuna í dag, en svo var kjarninn á dev útgáfunni af fyrirtækjabankanum svo leiðinlegur að ég fór heim snemma. Ekkert sem ég gat gert. Fór heim, reyndi aðeins meira að vinna og gafst svo bara upp. Ég ætlaði að fara út að hlaupa en sofnaði bara. Svei...

Ég fór svo til múttu og við fengum okkur Taco Bell. Starfsmennirnir hafa ruglast eitthvað og látið mömmu fá tvær KFC máltíðir með. Það var ekkert smá mikill afgangur þegar við vorum búin að borða. Alveg helmingurinn.

Ég ætlaði í bíó í kvöld, en Pési ákvað að vera sofandi rétt fyrir bíó þegar ég hringdi, þannig að við fórum ekki. Ég, Pési og Krissi fórum þá bara á rúnt í bænum með opna glugga á Toyotunni hans Krissa að blasta Snoop. Þetta var eins og að vera 17 ára aftur... hahaha. Svo gerðum við ekkert annað en á góna á kjéddlingar.

Núna sit ég bara að blogga á meðan Pési og Krissi eru að taka Gears í co-op. Þessi leikur hefur endalaust replayability. Svo gott cover system, team system og fáránlega gott soundtrack.

Höddi og Óli "sinai" koma heim á sunnudagsmorgun. Þeir koma með GH stýripinna fyrir mig. 2-player GH heima hjá mér... úje...

Síja later bitches...

Kv. G

22. júní 2007

Meira grill og fullt af Guitar Hero!

Ég var að koma heim úr grilli hjá Birnu skvísu og Einari. Það var bara geðveikt gaman. Ég grillaði nautalundir aftur, alveg ótrúlega gott. Pési var með nautafille. Það sem var samt fyndið við þetta var að ég og Pési vorum með meira kjöt heldur en Birna, Einar og Saga til samans... hahaha.. :D Birna gerði salat og ég og Pési keyptum fylltar kartöflur, þannig að það var eitthvað meðlæti með... :) Svo var bara opnaður bjór og spjallað þar til einhver sagði, "vó, er klukkan orðin eitt?"

Ég fékk mér Guitar Hero 2 í gær eins og ég var búinn að segja. SJIIIIIIITT. Hann er svo góður. Ég er búinn að klára hann í medium, en ég er núna alltaf að reyna að betrumbæta score'ið fyrir hvert lag. Algjörlega snilldar leikur. Puttarnir mínir á vinstri hendi eiga seint eftir að fyrirgefa þessa Guitar Hero törn, en vá hvað maður verður dextrous á fingrunum við svona æfingu.

Ég er búinn að "5 stjarna" nokkur lög í GH2. Sem sagt þau lög sem mér finnst skemmtilegust. Þau eru náttúrulega öll skemmtileg. Það eru meira að segja lög þarna sem maður bjóst ekki við að heyra. Jessica er eitt af þeim lögum. Flestir þekkja það sem Top Gear lagið. Ég hlakka ekkert smá til þegar GH3 kemur. Ætla sko pottþétt að fá mér hann í október.

Ég er algjör scrub... Ég er búinn að sofa yfir mig tvo daga í röð. "Í morgun" vaknaði ég klukkan 11. Ég sagði bara, "til hvers að fara niðrí vinnu," og vann bara heima. Var samt alveg mjög duglegur, sérstaklega miðað við að vera hérna. Ég gerði alveg helling, t.d. kláraði ég alla böggana mína. Svo þegar ég var að vinna í nýjum bögg sem ég bað um eftir að hafa klárað hina, þá ákvað tölvan mín að vera með leiðindi. Ég reyndi að laga það í 2-3 tíma þangað til ég bara gafst upp. Djöfull var ég pirraður.

Bleh...

Kv. G

20. júní 2007

Ég stóðst ekki freistinguna...

Ég fékk mér Guitar Hero 2 fyrir XBox 360. Þetta er AWESOME leikur... Jafnvel LEGENDARY!! Lögin í honum eru bara snilld. Lög á borð við Dead! með My Chemical Romance, The Trooper með Iron Maiden, Heart Shaped Box með Nirvana og Monkey Wrench með Foo Fighters. Ég er bara keyptur strax. Þarf bara að fá annan Gítar stýripinna til að taka 2 player...

Fékk mér líka myndavélina í dag. Er ekki búinn að prófa hana vegna þess að hún er ennþá í hleðslu, en já... það koma einhverjar test myndir á morgun.

Annað sem gerðist í dag? hmmm...

Ég svaf alveg feitt yfir mig. Ég mætti í vinnuna kl 10:20. Ég sem ætlaði mér að stoppa vítahringinn sem var svefn tíminn minn, en ég endaði með að fara að sofa kl 3 í gær. Ég er engum líkur, sko. Sjitt.

Ég talaði við Bethany áðan. Það var geðveikt gaman. Hún er búin að vera MIA á MSN síðustu mánuði síðan hún flutti frá Íslandi. Ég hitti á hana og það heyrðist bara allt fínt í henni. Fékk hana meira að segja sem vin á MySpace, þar sem hún lýgur feitt um aldurinn sinn og segist vera 20 ára... hahah

Éttla fara að spila meira GH2 og fara svo að sofa.

Kv. G

19. júní 2007

Mér leiðist!!!

Sjitt hvað mér leiðist mikið. Það er geðveikt veður úti og mig langar geðveikt í ísbíltúr, en það er engin til að taka með sér. Til að útskýra betur, þá taka strákar yfirleitt ekki vini sína með sér í ísbíltúr nema þeir séu nú þegar í heimsókn. Strákar hringja ekki í hvorn annan og segja "koma í ísrúnt?" Ég hér með auglýsi eftir sætri stelpu til að koma með mér í ísrúnt þegar það er gott veður.

Ég var næstumþví búinn að gera smá impulse buy í BT í gær. Sá Guitar Hero II fyrir XBox 360. Mig langar geðveikt í hann. Kannski kaupi ég hann seinna í sumar og ROKKA FEITT! Set á mig hárkollu og hárband og fer í leggings. Verð alvöru tölvu-glysrokkari! :P

Ég svaf eins og engill á skýji (er þetta rétt stafsetning?) í nótt. Vá hvað það var gott. Eitt skrítið samt. Mig dreymdi Söru Lind, mína fyrrverandi. Við hættum saman í GEÐVEIKT illu fyrir ca. 5 árum síðan. Ég meira að segja sá hana um daginn á bensínstöð og hún starði á mig og gaf mér illt auga. Anyways, mig dreymdi að við byrjuðum aftur saman og allt var jolly. Ég var að leika við barnið hennar og við vorum geðveikt glöð saman. Það var frekar creepy draumur.

Hvað er samt málið með drauma yfir höfuð? Yfirleitt man ég engan draum sem mig dreymir og flestir gleyma flesta draumana sína (maður man þá bara ef maður vaknar í miðjum draumi). Ég meina, ef maður talar um það, þá er það fáránlegt. Ég veit að fólk segir, þetta er bara heilinn að vinna úr upplýsingum sem hann tók inn yfir daginn, en samt! Tonight I'm gonna enter a comatose state, hallucinate vividly and then maybe suffer amnesia about the whole experience.

Ég held að það verði ansi langt þangað til ég fæ mér vindil aftur. Ég finn ennþá bragðið af honum og það er ekki gott svona eftirá. Ég er búinn að bursta tennurnar endalaust mikið, en samt kemur þetta bragð stundum upp. Svei...

Ég er að fara að hitta Birnu á fimmtudaginn. Ég hlakka geðveikt mikið til. Hef ekki hitt hana í laaaaaangan tíma. Svo hef ég aldrei hitt kallinn hennar. Það verður spennandi líka...

Vonandi meira spennandi en þessi póstur amk...

Kv. G

18. júní 2007

Ágætis dagur...

Svo sem...

Ég svaf nánast ekkert í nótt... Ég veit ekki hvað er að gerast. Ég get bara ekki sofnað á nóttinni. Kannski er það vegna þess að ég hef verið að leggja mig heima eftir vinnu. Þetta er ansans vítahringur. En, núna stoppa ég hann! Ég hef ekkert sofnað í dag, þannig að eftir þessa færslu er það rúmið og svefninn. SWEET JESUS!! Ég hlakka ekkert smá til... :)

Já, ég fór á Oceans 13 í gær eftir að hafa horft á Oceans 11 & 12. Oceans 13 er svo sem ágæt, en hún mætti vera betri. Svoooonaaaa, ágætis afþreying, en ekkert gæða stöff. Don't get me wrong, ég elska Oceans myndirnar og þessi heldur í sama stílbragðið og hressleikann, en þar sem Oceans 11 & 12 voru smá believable, er Oceans 13 það bara alls ekki. Ég meina, hver er tæknin á bakvið teninga/kveikjara dæmið, segðu mér það...

Ég er að fara að fá mér aðra digital vél. Elísa ætlar að fá Casio vélina og borga mér smá penge fyrir minn "hlut" í henni, þar sem við keyptum hana saman í Hong Kong. Ég bæti smotterí við þann pening og fæ alveg þrusu vél.

Ég hef verið að skoða flatskjá sjónvörp eitthvað nýverið. Ég get fengið alveg svaka díla á solleis... Maður veit aldrei... Kannski dettur maður á solleis einhvernvegin einhverntíman bráðum, en auðvitað bara ef peningar leyfa. Maður er ekki alveg að láta sig detta í vitleysu... ;)

Ég nenni ekki að skrifa meira núna... Mig langar bara að fara að sofa...

Kv. G

17. júní 2007

Grill og vindlar...

Hæ hó, jibbí jei, ó jibbí-íjei!
Það er kominn 17. júní!

Grillið í gær var geggjað. Við erum að tala um 1200gr af nautalundum, létt grillað og vel rautt. Hnífurinn fór í gegnum kjötið eins og smjör... Þar sem þetta var bara ég, Pési og Bjarmi, sem sagt bara karlmenn, þá var lítið um meðlæti. Þetta var næstum bara kjöt óg sósa á diskunum. Geggjað... haha... bara primal... ;)

Ég tók upp kúbu vindilinn, sem Hilma gaf mér, í gær. Hann var bara mjög góður... Her er góð mynd af mér með hann...



Við fórum svo niðrí bæ. Sjitt hvað bærinn sökkar. Maður þarf að vera á perunni til að finnast það gaman. Svo eru sætu stepurnar nánast hættar að fara niðrí bæ. Annað hvort það eða þær eru að fela sig.

Við fórum á Hressó, það var hálf tómt og bara ein sæt stelpa á öllum staðnum. Eina sem var skemmtilegt við kvöldið var þegar við fórum á Celtic (já... það var gaman þar) og vorum að hlusta á trúbadorana í kjallaranum. Hitti Hjört vinnufélaga og Rúnar Atari þar niðri... Góð lög spiluð og mikið stuð þar, en það var ekki nóg til að bjarga þessari djammferð. Síðan var Bjarmi alltaf að reyna að draga okkur á Óðal, eða Sóðal eins og ég kýs að kalla hann. Ég á ekki eftir að nenna aftur niður í bæ í langan tíma.

Ég hitti Pésa aftur í dag og við tókum co-op í Gears of War. Sjitt hvað tíminn flaug hratt. Geðveikt skemmtilegt að spila hann í co-op.

Núna er Oceans maraþon... Ég er að horfa á Oceans 11 núna, síðan á Oceans 12. Svo förum við Óli Skank á Oceans 13 á eftir. Elska svona daga.

Hef ekkert meira að segja í kvöld.

Kv. G