16. júní 2007

Grillið og potturinn... Eðall...

Já... ég fór uppí bústað til mömmu og pabba í gær. Hildur lil'sis fór líka. Það var bara algjör eðall. Við grilluðum geggjaða hamborgara, sátum í pottinum og bara spjölluðum. Mjög nice. Þau eru meira að segja komin með netið uppí bústað, þannig að maður fær sinn skammt af því þótt maður fari... hahaha.. Hildur eyddi korteri að hoppa á trampólíninu. Ég tók nokkrar geggjaðar myndir af því. Kannski koma þær á netið bráðum, ef hún leyfir mér það... ;)

Í kvöld ættlum við Pési og Bjarmi að grilla og kíkja í bæinn. Krissi ætlar líklegast að hitta okkur í bænum og við gerum eitthvað gott út kvöldinu. Pési var víst að lenda í breakupi líka og ég verð að vera til staðar fyrir kappann... Við ætlum að vera bitrir saman í kvöld. Kannski pulla ég, "Haaaaave you met Pési?" Það væri snilld :D Nei... nei... það væri LEGENDARY!

Djöfull ætla ég að vera "The Barnicle" í sumar... úje...

Kominn tími á XBox á meðan ég bíð eftir Pésa. Ætla að byrja uppá nýtt í Gears of War í erfiðara stigi. Ég iða alveg í puttanum við að skrifa þetta...

Gotta go. Gears...

Kv. G

15. júní 2007

Hitting rock bottom and clawing yourself back up...

Sjitt... Djöfull fór ég í mikinn lágpunkt í gær. Við erum að tala um rock bottom, en núna er ég að klifra upp. Ég er að sleikja sárin. Þunglyndis-Gísli er núna smátt og smátt að hverfa. Það var margt sem breyttist í hausnum á mér í gær varðandi þetta breakup. Ég er farinn að sjá hlutina allt öðru ljósi. Éttla ekki að tala um hvernig allt breyttist hérna, en ef þið viljið vita, þá megiði tala við mig... haha

Það var soldið spes um daginn þegar ég var að vinna í 11 tíma frá kl 4 um nóttina. Ég var SVOOO þreyttur þegar ég var búinn. Í lok dags, stoppaði ég við hjá Skegga yfirmanni til að fá kóða fyrir kerfið ef ég skyldi gera þetta aftur. Hann var með amerískan fótbolta á borðinu sínu og við ákváðum að fara að kasta á milli á Austurvelli. Það var bara mjög gaman. Gaman að vera kominn í svona líbó vinnu að yfirmaðurinn stingur uppá boltakasti... ;)

Ég fór í bíó í gær á Fantastic Four: Rise of the Silver Surfer. Ég hef sagt mörgum að ég var, í rauninni, anti-fan af hinni myndinni. Ég þoldi hana ekki. Hún var illa skrifuð og var bara asnaleg. Málið er samt að ég er soldið mikill fan Silver Surfer og trailerinn var awesome þannig ég ákvað að fara á myndina í bíó. Auk þess að maður verður að fara á allar Marvel myndirnar í bíó (yeah, I'm a fan of superheroes). Ég verð nú að segja, þessi mynd var miklu betri en fyrri myndin. Maður gæti meira að segja sagt að hún var mjög skemmtileg. Éttla ekki að segja neitt frá hvernig sagan er í myndinni, þið verðið bara að sjá hana, en hún er þess virði að fara á.

Éttla taka þetta móment í að þakka vinum mínum fyrir að styðja mig og segja "fuck off" við þá sem gerðu það ekki. ;) Vinir mínir eru æði. Bæði gömlu og nýju vinirnir. Love you guys. You rock, almost as much as the Silver Surfer. ;)

Hérna ætla ég að koma með smá useless, en interesting fact. Hörður Mar bennti mér á þetta. Þetta er frekar spes:

Finnstykkurekkifuckedupaðfólkskuliekkihafadottiðíhugaðhafabilmilliorða fyrren600e.Kr.ílatínu?

Kv. G

14. júní 2007

Stutt í dag...

Það er voðalega lítið að frétta í dag. Eftir 11 tíma vinnudaginn minn í gær, sem byrjaði kl 4 nóttina áður, þá fór ég heim og svaf. Ég svaf til kl 19. Lítið annað gerðist en að ég horfði á vídjó og brotnaði algjörlega niður.

Éttla ekki að tala frekar um "niðurbrotið" hérna. Vil ekki íþyngja ykkur með því. It's my burden to bear. Má ekki væla það mikið að ég missi þá fáu vini sem ég á eftir eftir þetta samband. Verð bara að bæla þessar tilfinningar niður eða fara til sálfræðings.

Kv. G

13. júní 2007

Klukkan var 03:32...

...allt var hljótt. Enginn var á ferð. Ég labbaði útí bíl og keyrði afstað. Engin umferð. “Svona hlýtur það að vera að vera einn í heiminum,” hugsaði ég. Þá mætti ég löggubíl. Ég horfði oft í afturspegilinn til að sjá hvort að löggan ætlaði að snúa við og elta mig. Ekkert gerðist. Ég hélt samt áfram að kíkja. Ég lagði á bílastæðið sem venjulega er troð fullt. Það var tómt. Ég labbaði úr bílnum og eina sem hreyfðist, annað en ég, var einn köttur. Hann stoppaði og starði á mig. Ég kom að bygginguni og labbaði inn. Ég fór uppá þriðju hæð að áfangastaðnum og opna hurðina. Þá fór Securitas kerfið í gang. Fyrstu læti þessa morguns. Þar sem ég var ekki með kóðann, þá beið ég eftir öryggisverði til að hleypa mér inn. Síðan fór ég að vinna.

Já... svona var þetta. Ég gat ekki sofnað svo ég ákvað að fara niðrí vinnu. Þetta sökkar svo mikið... Ég vil frekar vera einn hérna en einn uppí rúmi. Ég meina, á daginn gengur mér vel. Ég er glaður og góður. Ég hitti vini mína og við erum bara hressir. Það eru bara þessi helvítis kvöld. Rúmið heillar ekkert lengur. Maður vill ekkert fara að sofa og þegar maður fer loksins að reyna sofna, þá getur maður það ekki. Ég hef bara eitt við þessu að segja:

LAAAAAAAAAAAAAAAAAME!!!

...en já, ég setti securitas kerfið í gang óvart... klúður... hehe...;)

Annars kláraði ég Gears of War í gær. MAAAAGNAÐUR leikur. Ætla sko pottþétt að spila hann aftur, í co-op helst. Endakallinn var mjög erfiður. Var búinn að reyna að drepa hann í 1-2 tíma, með pásum, en gat það bara ekki... Krissi kíkti svo í heimsókn og við fórum bara eitthvað að spjalla og ég segi, “sjitt mar, ég held að ég sé kominn á endakallinn í Gears.” Ég fer að sýna honum, og viti menn, ég vann hann bara í fyrsta þá. Það er greinilega gott að hafa áhorfendur... :D

Bætti við quote’um frá Waage og Krissa inná random quote kerfið. Kerfið virðist samt ekki virka á IE eða Safari. Þarf aðeins að skoða það. Þetta sýnir bara hvað Firefox er góður browser. Hann er ekki “picky” á kóðann... :)

Núna ætla ég bara að halda áfram að vinna... Skrifa kannski eitthvað meira seinna í dag.

Kv. G

12. júní 2007

Allt um ekkert...

Oooooh... Afhverju þarf maður að vera veikur núna? Ég nenni því ekki!! Var vakandi hálfa nóttina að biðja á “the porcelein alter”. Ekki gaman. Ég er bara búinn að liggja í rúminu í dag í fýlu útí sjálfan mig. Mjög spennandi.

Fór til ma&pa í gær til að fagna afmæli Hildar. Það var bara hresst. Grilluðum besta kjót sem ég hef fengið lengi. Því miður er maður í megrun og gat ekki fengið oftar en einu sinni. :) Spjallið var hresst sem og fólkið sem var á staðnum. Vona bara að Hildur halda eitthvað lítið uppá þetta um helgina. Þá er hægt að hafa taumlausa gleði án foreldrarýnis.

Ég ákvað eftir djammið mitt á laugardaginn að éttla ekki að drekka svona mikið aftur í bráð. Ef ég fer á djammið, sem ég er yfirleitt ekki mjög spenntur fyrir yfir höfuð, þá eru einn eða tveir bjórar alveg málið. Það er alveg nóg. Maður þarf ekki að vera alveg heiladauður af drykkju. Maður mann ekki eftir heilu og hálfu kvöldunum. Guð veit hvaða skandala maður er þá með í. Djííííí...

Ég er alltaf með hnút í maganum þessa daganna. Flest ykkar geta alveg áttað ykkur á afhverju það er. Ég bögga sum ykkar með þetta og þið eruð örugglega orðin alveg fáránlega þreytt á mér. Ég er að fara að hætta. Alveg satt... Þetta hlýtur að fara að jafna sig bráðum. ;)

Sara, vinkona Elísu og hálf vinkona mín, var að fara í einhverja emergency aðgerð á bakinu í gær sem tók víst tvo tíma. Hún var sprautuð með deyfingu 12 sinnum, en fann samt fyrir nánast öllu. Hún þarf að fara aftur í dag. Ég vona bara að hún jafni sig fljótt eftir þetta og verði jafn lífsglöð og áður sem fyrst. :)

Hjördís, takk fyrir linkana í gær. Ætla að skoða þá í dag og ákveða hvað ég set inn. Ég held að myspace sé alveg pottþéttur linkur. NEI!! ÉG ER EKKI HÚKKT!!! ;)

Vantar ennþá fleirri quotes. C’mon ppl. Þið hljótið að hafa einhverntíman sagt eitthvað alveg fáránlega fyndið eða djúpt einhverntíman, eða vitið um einhvern sem hefur gert það. Ég trúi því ekki að þið séuð svona “dull”. Ég bara neita að trúa því. :)

Nöldur virkar greinilega. Núna veit ég afhverju kvennþjóðin gerir svona mikið af því!! Eh, guys? Eh, EH? :D Neinei... bara grín... Nöldraði aðeins um commentleysi í gær. Pósturinn fékk fullt af comments sem ég þurfti ekki að “biðja um” á MSN. Frekar sáttur. Takk fyrir það. Haldið þessu bara áfram. ;) Maggi tók sig meira að segja til og commentaði á nánast allar færslurnar á blogginu. Maggi, þúrt klikkaður... ;)

Gott í bili... Við sjáumst bara einhverntíman. Ég held áfram að bulla bara... :D

Kv. G

11. júní 2007

Nöldur, nöldur, nöldur... og afmæli!!!

Jææææja...

Annað hvort er fólk ekki að lesa bloggið eða það er bara enginn að nenna að commenta. Það er nú bara lélegt... Ég verð nú bara að segja það. Hvernig á ég að vita hvort fólk er að lesa bloggið mitt eða ekki? Öss... slappt... Mér finnst ég bara vera einn í heiminum... ;)

IT’S THE LAW!!

Hildur lil’sis á afmæli í dag. 21 árs! Djöfull er tíminn fljótur að líða. Þú varst baby fyrir nokkrum árum síðan... pfft... Þurfum að horfa á gömlu home-vídjóin aftur... Ég ætla nú ekki að nefna hvað er sýnt þar, gæti verið vandræðalegt fyrir þig, en það er svo fokk fyndið... :D

Happy birthday!

Annars er alveg voðalega lítið að frétta af mér síðan í gær. Big surprise, þar sem ég gerði ekkert af viti í gær vegna þynnku. Ég er bara búinn að vera að sitja hérna í vinnunni alveg að sofna. Ekki einu sinni Foo Fighters hjálpa mér að halda vöku. Er að vinna í einhverjum bögg sem ég er ekki alveg að fatta. Það kemur nú samt að því. Þetta reddast allt saman!!

Það er alveg týpískur mánudagur hérna í vinnunni. Það er enginn að nenna að vera hérna. Margir komu seint og fóru heim snemma. Ég er búinn að vera hérna frá því kl 7:50 í morgun og ég er búinn að sjá flesta koma og fara sem ég er að vinna með. Við erum tveir eftir hérna í herberginu núna og einn á fundi annarstaðar. Eigum að vera tíu hérna.

Mig vantar linka og fleiri quotes á síðuna... Endilega, ef þið eruð með blog eða vitið um gott quote, sendið mér það. Annað hvort í email eða í comment.

Hef það ekki lengra í dag. Frekar fréttalaus dagur.

Kv. G

10. júní 2007

Þuuuuuuuuuunnnnnnnnuuuuuur!!

Ólafur Torfi says: Hvað gerðirru í gær?
Gi$li says: I drank the world!!

Krissi “krz” tók mig á djammið í gær og ég held að “mænuskaddaður af drykkju” sé of vægt orðatiltæki til að lýsa mér. Ég bara drakk og drakk og drakk. Ég reykti vindil! Já, þið lásuð þetta rétt... ég reykti. Hins vegar byrjaði ég á því að reykja hann öfugt og brenndi mig næstum því á tungunni. Það sýnir hvað ég hef mikla reynslu í því... hehe

Ég man ekki eftir hálfu kvöldinu. Ég var alveg búinn að gleyma vindlinum þar til að Anna Heiða var að hlægja að mér á MSN og segja að ég hafi sagt henni vindla söguna þegar hún hringdi í mig til að bjóða mér far heim. Ég held að ég hafi dansað við einhverjar stelpur. Ég fór heim með einhver ógeðslega ljót sólgleraugu á hausnum sem ég veit ekkert hvar ég fekk. Svo fórum við heim í löggubíl... Krissi löggukall reddaði farinu... :D

Ég fór samt einn heim. Engar áhyggjur dömur... Gísli er ennþá laus og liðugur. There’s plenty of me to go around. ;)

Mér leist ekkert á hvernig kvöldið byrjaði. Það var allt óplanað og við vissum ekkert hvar við ætuðum að byrja að drekka. Ég stakk bara uppá fyrirpartí hjá mér. Eftir að ég var búinn að segja það, þá leit ég í kringum mig og sá þennan ruslahaug sem ég kalla heimili. Ég bara dreif mig og tókst að taka til áður en strákarnir komu. Það var bara ótrúlegt að ég skuli hafa getað þetta. Þetta hlýtur að vera einhverskonar heimsmet eða eitthvað.

-pause-

Var að koma af Rizzo. Fékk mér þynnku pizzu. Toscana beibí... Gets the blood flowing. Fáránlega góð pizza, sko. Mér finnst alltaf fyndið þegar ég er að skoða matseðilinn á Rizzo að það sé pizza sem heitir “Gilli Special”. Ég mundi samt aldrei panta mér hana. Sjávarrétta pizzur eru verk satans.

Ég held að ég þurfi að fara í sturtu og skipta um föt. Fékk það comment áðan að maður verður fullur á því að þefa af mér. Það er ekki gott. Svo er ég víst svo þunnur að ég titra. Höndin mín hætti ekki þegar ég var að hella vatn í glas á Rizzo. Held að ég þurfi að taka því vel rólega í kvöld.

Éttla fara að spila smá XBox. Gears of War, baby!!

Enda þetta með brandara

Q: What's the difference between a prostitute, a nymphomaniac, and a blonde?
A: The prostitute says, "Aren't you done yet?"
The nympho says, "Are you done already?"
The blonde says, "Beige...I think I'll paint the ceiling beige."

Commentiði aumingjarnir ykkar!

Kv. G.