Kuldinn læðist inn...
Jahá...
Ég er búinn að ætla að taka til síðan Elísa flutti út, en ég hef ekki komist í það ennþá. Alltaf þegar ég er að plana daginn eða kvöldið eða á leiðinni heim eða eitthvað, þá segi ég sjálfum mér alltaf, “éttla sko að fara að taka til og gera flott hjá mér aftur.” Útaf einhverjum kosmískum mætti, þá gerist ekkert í því. Það er eins og það séu einhver öfl hérna heima sem eru að koma í veg fyrir tiltekt. Ætli ruslaguðinn sé fluttur inn til mín? Ætli það hafi verið til ruslaguð hjá einhverjum trúarbrögðum til fórna. Hmm... pæling...
Myspace vinalistinn minn stækkar óðfluga... Ég er kominn uppí heila 5 vini!! Úúúúú... og það er ekki með default vininum, Tom. Ég eyddi honum vegna þess að það er sad að vera með hann til að hækka vina töluna sína. Til hvers líka að hafa hann þarna inni? Það er ekki eins og maður þekkir hann. Eins og ég segi... bara sad...
Ég er að fara að setja af stað random quote system hérna á síðuna. Það er soldið skemmtilegt :) Það verða ýmis quote sem mér finnst fyndin, skemmtileg og er eitthvað til í. Þetta á eftir að koma hérna til hægri. Þið sjáið kannski eitthvað glitta í það á meðan ég vinn í því.
Ég fór í klippingu áðan hjá Heiðveigu beib. Alltaf gaman að sjá hana aftur. Var ekki búinn að sjá hana í næstum 5 ár þegar ég skrapp til hennar í klippingu um daginn. Hún var sem sagt góð vinkona mín í Iðnskólanum á sínum tíma. En, annars, þá set ég mynd af mér með nýju klippinguna þegar ég er búinn að fá myndavélina frá Elísu.
Segi þið ekki allt gott annars?
Kv. G.

