10. apríl 2008

Smá færsla...

Ég fann hér eitt vídjó sem ALLIR þeir sem spila tölvuleiki eiga eftir að fíla. Þetta vídjó blandar VáV (Veröld á Víglínu) og Portal saman. Mér finnst þetta flott og ég veit um nokkra sem eiga eftir að fíla þetta... :P



Það er bara eitthvað við þetta vídjó. Hvernig það er sett saman eða eitthvað. I dunno, it's just kinda cool... og lagið er frekar töff líka.

Annars er lítið að frétta. Ég geri EKKERT annað þessa dagana en að læra. Það eru ekki nógu margir tímar í sólarhringnum. Ég fór uppí rúm áðan, sofnaði og vaknaði aftur 30-40 mín seinna. Líkaminn veit bara að ég þarf að læra og leyfir mér ekki að sofa... :P

Eitt að lokum...

Já, gott fólk... Ég veit um þessa Guitar Hero keppni í Game Tíví. Í gær og fyrradag voru samtals 12 manns sem sendu mér annað hvort linkinn á fréttina á mbl.is eða hringdu í mig og segja mér frá þessu. Meira að segja mamma minntist á þetta... Málið er að það eru fáránlega margir spilarar sem gætu pakkað mér saman í þessum leik. Sérstaklega núna, þegar ég er ekki búinn að spila neitt af viti í nokkra mánuði. Ég veit ekki hvort ég geri þetta. Sjáum til... :P

Heyrumst...

Kv. G