Svo... Mikið... Að... Gera...
Það er allt að verða brjálað. Þessi verkefni fyrir skólann eru að verða ridiculous. Þetta sólkerfisforrit tók allt páskafríið mitt sem ég ætlaði að nota í að læra fyrir Greiningu Rása. Núna þarf ég að finna annan tíma fyrir það (good luck, Gísli). Þetta reddast nú samt allt saman. Reddast hlutirnir ekki alltaf einhvernvegin? :)
Talandi um sólkerfis forritið, þá er það komið það langt að ég ætla að fara að leyfa ykkur að sjá, ef þið viljið. Hér er skjáskot úr forritinu:

Þarna sést Satúrnus í forgrunni og Júpiter aðeins lengra með Sólina og loftsteinabelti í fjarska. Hér getiði prófað þetta:
*pirrings runa byrjar*
Hvað er málið með stelpur sem láta eltast við sig endalaust? Stelpur sem vilja sýnast hard to get? Þetta er ekkert nema óþolandi. Sérstaklega stelpur sem hafa áhuga, en fíla það bara að láta eltast við sig. Ég fæ alveg grænar bólur þegar ég heyri stelpu segja að henni finnst gaman/nauðsýnlegt að láta eltast við sig. Ég nenni ekki að standa í svoleiðis rugli.
Þegar ég hugsa um hvernig samband væri eftir svoleiðis eltingaleik, þá hugsa ég um þegar maður er að segja brandara og það er búið að gera hann of mikið upp. Æj, þú veist, þegar maður er innan um hóp af fólki og maður fer að segja brandara og maður kannski gerir einhverja hreyfingu með höndunum til að lýsa einhverju í byrjuninni á brandaranum. Einhver vinur manns gerir grín af því og þá hlægja allir, en svo þegar maður byrjar aftur að segja brandarann, þá segir þessi vinur eitthvað um þessa fyrri hreyfingu eða biður þig um að "lýsa þessum hlut betur" (sem er þá skot á hreyfinguna) og þá hlægja allir aftur. Þegar allir róast vilja allir heyra brandarann, en þá er búið að gera of mikið úr honum og hann verður ekkert fyndinn á endanum. Bara vandræðalegur.
Þannig hugsa ég um svona sambönd sem byrja eftir einhvern eltingaleik. Það er gert of mikið úr þessu og fólk fer kannski að búast við einhverju meira eða betra en það fær í raun og veru. Byggir þetta upp í huga sér.
*pirrings runa endar*
Hey, sáuði fréttina um vörubílstjórana sem stífluðu Miklabrautina á Ártúnsbrekkunni? Sjiiiitt... Ég var að keyra í vinnuna í gær og keyrði framhjá þessu og sá þetta. Ég keyrði sko niður bílasölubrekkuna (sem endar á bílasölu Ingvars Helgasonar) samhliða Miklubrautinni og það var alveg svakalegt að sjá þetta. Vörubíllar á hverri akrein, í báðar áttir, á sama stað stopp. Það var algjör teppa og þetta lamaði víst hálfan bæinn. Hugsið ykkur, Miklabrautin stífluð, fólk að fara Kringlumýrabrautina að reyna að komast yfir Miklubrautina, en geta það ekki vegna þess að fólk var að reyna að komast yfir ljósin yfir Kringlumýrarbrautina og eru stopp á miðjum gatnamótum. Þetta lamar þar af leiðandi aðrar götur sem lama svo aðrar götur.
Mér finnst þetta gott hjá þeim að mótmæla svona. Þeir eru víst að mótmæla bensín/olíuverði og annað. Það er náttúrulega engin hemja á þessu bensínverði í dag. Tæpur 150 kall? Ég get farið að segja (í rödd gamals manns), "ég mann sko þegar ég var yngri og bensín líterinn kostaði bara 70kr." Annað sem þeir eru að mótmæla tengist bara vörubílstjórum, eins og að samkvæmt lögum verða þeir að taka pásu á 4.5 tíma fresti, en strætóbílstjórar eru undanþegnir þessum lögum. Þá kemur spurning... Hvor þeirra er með dýrmætarri farm? Vörubílstjórinn með mölina eða strætóbílstjórinn?
Kv. G

- Forritið sjálft (9Mb, þarf .NET 3.5)
- Tao Framework (14Mb, nauðsýnlegt til að keyra SolarSystem)

1 Comments:
Lítur vel út .. og með textures og allt saman ;)
Sendu inn athugasemd
<< Heim