Gísli "three-cakes" Crocker
Þá er afmælis vikunni lokið. Já, ég segi afmælis vikunni vegna þess að ég átti afmæli á mánudaginn og ég hélt uppá það núna síðasta laugardag. Ég var að fá gesti og gjafir næstum alla daga inná milli.
Já, gjafirnar... Ég fékk fullt af góðum gjöfum frá mínu frábæra fólki. Það var samt ein gjöf sem stóð uppúr. Ekki vegna þess að hún var "best" (ég er ekki að dæma gjafirnar þannig, þær eru allar æðislegar), heldur vegna þess að hún var soldið spes fyrir 28 ára gamlann mann að fá á afmælinu sínu. Waage gaf mér sem sagt svona. Já, hann gaf mér tækni Lego. Það byrjaði allt á því að við vorum að tala saman um hvað okkur fannst báðum gaman að leika með Lego þegar við vorum litlir og við vorum að senda linka á milli á msn af einhverju Lego dóti sem við hefðum alveg verið til í að eiga á sínum tíma. Síðan fer hann í Toys'R'Us og kaupir einn Lego vélsleða. Mér fannst þetta algjör snilld, sko... hehehe...
Ég hélt, tæknilega séð, tvisvar uppá afmælið mitt þessa vikuna. Einu sinni á afmælis daginn minn þegar ég fékk fjölskylduna í kaffi eftir að hafa bakað þrjár kökur og keypt osta og kex og nammi. Það var bara mjög nice. Við sátum bara lengi við borðið og bara spjölluðum um allt og ekkert.
Síðan fórum við 14 saman á Ruby Tuesday á laugardaginn. Það var mjööög gaman. Maður pantaði sér þetta venjulega. Collosal Borgara, Megarítu og Chocolate Tall-Cake, en ég náði ekki að klára neitt af þessu í þetta skiptið. :P Hópurinn tvístraðist eftir Ruby og svo ennþá meira þegar við héldum í bæinn. Við vorum í rauninni bara þrír sem fórum í bæinn (ég, Bjarmi og Sverrir), en urðum bara tveir mjög fljótt. Þetta var eitt furðulegasta djamm sem ég hef á ævinni farið á og Bjarmi getur alveg staðfest það. Það var bara allt of mikið af skrítnum hlutum sem gerðust og eigum við mikið af sögum eftir þetta kvöld, þó svo að ég man örugglega meira en Bjarmi þar sem hann drakk næstum því tvöfallt meira en ég... ;)
Ég vil bara þakka öllum fyrir kveðjurnar og samveruna þessa síðustu viku. Þetta var æðislegt. :)
Ég tók því miður ekki mikið af myndum, en það litla sem var tekið kemur hingað á síðuna. :)
Kv. G

3 Comments:
Greinilega stórgóð vika :-)
En annars, innilega til hamingju með afmælið um daginn!!
<3 Much love
Já þetta var alveg ágætlega skrýtið djamm, gaman engu að síður :D
Sendu inn athugasemd
<< Heim