8. janúar 2008

Gleðilegt ár og allt það...

Já... Gleðilegt ár og takk fyrir gömlu...

2007 var ekki beint besta árið, en hvað um það. Þetta ár verður bara snilld! Ég ætla mér að gera þetta ár snilld. We are the masters of our own destiny.

Prófin gengu bara ágætlega. Ég náði öllu nema einu, sem var Stærðfræðigreining IIIB. Ef maður hugsar út í það, þá kemur það ekkert á óvart miðað við hvernig mér hefur gengið í Stærðfræðigreingar og Eðlisfræði kúrsum. Ég tek það upp í lok mánaðarins og þá er bara þessi önn eftir af skólanum. Djöfull verður gott að vera búinn.

Kúrsarnir sem ég tek þessa önn eru mis skemmtilegir. Sá sem heillar mig mest er Tölvugrafík, þar sem er verið að kenna það að vinna með þrívíddarmódel í OpenGL. Það verður awesome!

Jólafríið var gott. Ja... betra en gott. Það var geggjað. Ég gerði ekkert annað en að spila XBox, aðallega Halo 3. Sá leikur kom mér alveg virkilega á óvart. Ég kláraði hann alveg nokkrum sinnum í jólafríinu og spilaði helling online, en núna er kominn tími til að minnka það aftur þar sem það verður brjálað að gera í skólanum.

Mér tókst að brjóta upp fyllingu í einni tönn hjá mér í jólafríinu. Ég veit ekki hvernig það gerðist, en djöfull er maður viðkvæmur fyrir köldum mat núna. Ég get loksins hringt í tannlækninn í dag, þar sem það var lokað vegna jólaleyfa til 8. jan.

Eftir færsluna hérna á bloggin mínu þann 17. des 2007, þá kom comment á færsluna sem var:
Ef guð væri til, þá hefðirðu lent undir "the Bandwagon".

Þá hefði svo sannarlega verið einu fíflinu færra.

Það hefði jafnvel verið "Awesome" og ég hefði án efa fátt geta sagt annað en "splurge".

Fífl

-svampur - samviskan þín
Það er greinilegt að fólk lítur ennþá á internetið sem tæki til að skíta nafnlaust yfir fólk. Það eru bara aumingjar sem skilja eftir svona comment og þora ekki að gera það undir nafni. Sjitt hvað þetta er sorglegt... hahaha!

Kv. G

7 Comments:

Anonymous Maggi hressi said...

Já sumir eru sárari útí umheiminn en aðrir :) en gott að við erum það ekki! og já 2008 verður "awsome"

8. janúar 2008 09:32  
Anonymous Aglinn said...

Sammála með árið 2008! Bara eitthvað við byrjunina sem segir að þetta ár verði að mörgu leiti mjög gott ár!
Annars alltaf gaman að sjá að fólki sem finnst blogg leiðinlegt gefi sér tíma til að skrifa um það!
Ein spurning, er greiningin ennþá gagnapróf? Ef svo er á ég einhverstaðar lítið rautt hefti sem var lengi kallað Biblían úr þessum kúrs! Sendu á mig línu á msn ef þú vilt að ég fari að grafa í dimmum kjöllurum eftir heftinu...

kv

Egill hinn flísalagði!

9. janúar 2008 08:47  
Anonymous Nafnlaus said...

þið eruð að misskilja, mér finnst þetta alls ekki leiðinlegt blogg. Mér finnst það bara aumkunarvert og uppfullt af lúðaskap.

Menn sem nota orð á borð við "awesome" og "splurge" ætti náttúrulega að bróka ansi reglulega.

Menn sem nota þessi orð og geta ekki einu sinni stafsett þau rétt (Maggi hressi) eru augljóslega þroskaheftir. Þroskaheftu fólki á náttúrulega að lóga, þó þannig að þau finni sem minnst fyrir því.

kv,
Svampur - samviskan þín

10. janúar 2008 22:22  
Anonymous Óli said...

Tröll.

11. janúar 2008 01:14  
Blogger Gi$li said...

Ég ætlaði nú bara að láta þetta vera, en fyrst Svampur fór að ráðast á aðra en mig, þá verð ég að segja eitthvað.

Málið er, Svampur, að það er ekki bloggið sem er aumkunarvert, heldur eru það commentin þín sem eru það. Einnig það að þú skulir vera að skoða blogg reglulega sem þér finnst aumkunarvert og upp fullt af lúðaskap.

Ég þori að vera ég. Mér er, þannig séð, alveg sama hvað fólk heldur um mig, annað en þú sem ert augljóslega að halda þig inní einhverri steríótýpu hins týpíska "töffara," en þessir "töffarar" eru ekkert annað en bjánar sem halda að allir sem eru öðruvísi en þeir séu lúðar og aumingjar.

Það að þú komst ekki undir nafni í þetta skipti heldur sýnir bara að þú ert sjálfur/sjálf aumingi og hefur lítið annað að gera við tímann þinn en að trolla blogg með þinni augljóslegu minnimáttakennd.

Hvernig væri það ef þú færir og skriðir aftur undir steininn, þaðan sem þú komst...

11. janúar 2008 12:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Bíddu eruði að grínast í mér eða? þessi Svampur á eitthvað mikið bágt...þoli ekki svona týpur sem drulla yfir mann og annan inn á bloggsíðum annarra! Svo sorglegt fólk
Kv.Solla

11. janúar 2008 15:59  
Anonymous Nafnlaus said...

"Ég ætlaði nú bara að láta þetta vera, en fyrst Svampur fór að ráðast á aðra en mig, þá verð ég að segja eitthvað."

Svarthvíta hetjan mín!

kv,
Svampur - samviskan þín

14. janúar 2008 22:54  

Sendu inn athugasemd

<< Heim