Fokking veður...
Hvað er málið með þetta veður?!? Djísus kræst, sko. Ég fór út í morgun kl 07:30 og ætlaði að fara uppí skóla til að læra fyrir prófið sem ég fer í á eftir. Ég var ekki kominn uppí skóla fyrr en um kl 09:00. Mér tókst að festa bílinn minn þrisvar á leiðinni út úr götunni minni. ÞRISVAR! Það tók mig klukkutíma að fara 10 metra. Það er algjört met. Það er verra en þegar það tók mig klukkutíma að komast úr Kelduhvamminum frá mömmu og pabba á Toyotunni minni (R.I.P). Það reyndar munaði miklu að þegar ég var að fara úr Kelduhvamminum, þá vorum við þrjú (ég, Benni og mamma) að koma bílnum út á meðan ég var bara einn í morgun. Það er alveg ótrúlegt hvað íslendingar eru lítið hjálplegir. Það keyrðu fullt af bílum framhjá mér, og ekki bara fólk sem var að fara út úr götunni, heldur líka fólk sem var að koma heim til sín. Það var meira að segja einn sem beið þangað til ég loksins kom bílnum mínum frá svo að hann kæmist inní götuna. Hann sat inní hlýja bílnum sínum á meðan ég var með skóflu að moka.
Mér er svo fokking kalt núna. Ég er búinn að vera inná bókasafninu í skólanum að læra fyrir þetta blessaða próf, en ég er svo blautur frá því í morgun og það er ekki kveikt á einum ofni í bókasafninu. Ég gat ekki einbeitt mér á endanum fyrir kulda, þannig að ég fór bara inní tölvustofuna þar sem er mikill hiti frá tölvunum. :D
Djöfull þoli ég ekki svona drasl veður. Ég neita að fá mér jeppa bara útaf svona veðri. Maður réttlætir ekki jeppakaup út af einni viku á árinu. Auk þess fíla ég mig ekki á jeppa. Ég þarf að vera á lágum bíl. Miklu skemmtilegra... :P
Afmælið nálgast. Ennþá opið fjölskylduboð á mánudaginn eftir kl 16. Ég verð með eitthvað vina teiti helgina eftir afmælið. I'll let you guys know. Ég er ekki búinn að bjóða neinum í það ennþá, so don't get your frilly little panties in a twist. ;)
Kv. G

2 Comments:
Til hamingju med afmaelid! :)
Sem framtidar reporter get eg sagt ad afmaelisdagurinn thinn var finn (allavega i Astraliu) ;)
Hafdu thad rosalega gott!!
Til hamingju með daginn kútur. vonandi verður dagurinn þinn AWsome
:) +e. leitt að ég komst ekki í GH partyið... ég veit ég er partypooper...
Sendu inn athugasemd
<< Heim