Allt of mikið að gera...
Ég held að það sé alveg klárt. Það er alveg fáránlega mikið að gera hjá mér þessa vikuna. Ég er núna heima að reyna að klára verkefni fyrir Reiknigreind og annað fyrir Tölulega greiningu. Svo þarf ég helst að reyna að klára verkefni fyrir Greiningu reiknirita og Hugbúnaðarverkefni 2 í kvöld eða á morgun. Ég er nefnilega að fara í upptökupróf í Stærðfræðigreiningu IIIB á föstudaginn og hef varla tíma til að læra fyrir það. Ég gæti fræðilega séð gert Hugbúnaðarverkefni 2 eftir að ég er búinn í prófinu, en ég er með vinnu partí heima hjá mér á laugardagskvöldið, ég á afmæli á mánudaginn og ég þarf að skila öðru stóru forritunarverkefni í Tölvugrafík á fimmtudaginn í næstu viku.
Í þeim litla frítíma sem ég hef átt síðustu daga hef ég enduruppgötvað Flight of the Conchords. Þessir menn eru algjörir snillingar! Ég get ekki lýst þeim í orðum, svo éttla setja tvö youtube vídjó af þeim hér.
Business Time er klárlega besta lagið þeirra, en það eru mörg önnur sem eru alveg tryllt fyndin, eins og Jenny, The Humans Are Dead og The Most Beautiful Girl in the Room. Hér er meira...
En já, ég á afmæli mánudaginn 28. jan. Éttla vera með fjölskyldukaffi heima hjá mér þá eftir kl 16. Ef þið eruð skyld mér, endilega mætið... :)
Kv. G

3 Comments:
The Humans are dead er best Gísli, meina þú et tölvunörd og það er Binary-sóló í laginu, það verður ekki betra
hjúkk hvað ég er heppinn að vera ekki skyldur þér .... þá þarf ég ekki að mætta svona snemma :P:P
Þú færð heldur enga köku... loser! :D
Sendu inn athugasemd
<< Heim