17. desember 2007

Why so serious?

Ég er búinn að vera rosalega mikið að hoppa af og á "the bandwagon" með The Dark Knight. Þegar teaserinn kom fyrst og maður heyrði hvernig Heath Ledger talaði, þá var ég geðveikt spenntur. Þegar það komu screenshot úr myndinni á netið, þá varð ég ennþá meira spenntur. Þegar ég sá svo að þeir ætluðu að hafa Bat-Bike og hvernig þeir gerðu það, þá fór ég að hafa áhyggjur. Síðan kom betri mynd af nýja Bat-suit'inu og hvernig hálsinn og bringan er á því. Þá komu ennþá meiri áhyggjur. Ætluðu þeir að hafa of mikið af gadgets í myndinni? Verður myndin campy eins og Batman & Robin? Ég var virkilega farinn að halda að þessi mynd yrði bara flopp.

Síðan sá ég þetta í dag:



...og ég stökk beint á "the bandwagon" aftur.

Why so serious?

...

Annars er ég geðveikt spenntur núna... Síðasta prófið er á morgun. Ég er ekkert spenntur fyrir prófinu sjálfu, heldur bara að vera búinn með það. Það verður tussu erfitt próf í ógeðslega leiðilegum kúrs. Við erum að tala um það að það eru allir í vanda staddir í þessum kúrs. Það eru meira að segja margir sem eru skráðir í prófið, en ætla ekki að taka það.

Ég ætla mér að gera lítið annað í jólafríinu en að spila XBox og slaka á. Ég ætla ekki einu sinni að kíkja á hvort einkunirnar mínar séu komnar fyrr en eftir áramót. Ekki það að ég hafi áhyggjur af þeim eða neitt þannig, heldur vil ég bara ekki einu sinni hugsa um skólann.

Hvað ætli þið að gera í jólafríinu?

Kv. G

4 Comments:

Anonymous The amazing Höddi said...

Hef nú ekki séð þennan "nýja" búning ennþá.
Bíð samt spenntur eftir þessari mynd.

Og alltaf þegar ég horfi á þennan trailer. .. fæ ég alltaf smá hroll þegar Batman lagið kemur í endirinn.



kannski maður horfir bara á Batman Begins í kvöld :D:D

18. desember 2007 14:15  
Anonymous Empress Anna said...

Crazy jólafrí hjá þér semsagt ;) hehe en er það ekki það sem jólin snúast um, að gera ekkert annað en að liggja í leti og borða á sig gat?

En segðu mér nú af hverju í fjandanum varstu svona þunnur í gær (miðvikudag)? Varstu virkilega að djamma á þriðjudegi hahaha ;) þú ert náttúrulega nuts ;)

20. desember 2007 19:22  
Anonymous svampur - samviskan þín said...

Ef guð væri til, þá hefðirðu lent undir "the Bandwagon".

Þá hefði svo sannarlega verið einu fíflinu færra.

Það hefði jafnvel verið "Awesome" og ég hefði án efa fátt geta sagt annað en "splurge".

Fífl

26. desember 2007 13:36  
Blogger Gi$li said...

Um... wow

28. desember 2007 05:55  

Sendu inn athugasemd

<< Heim