27. ágúst 2007

Traumatized for life

Ég ligg hérna andvaka uppí rúmi. Ég get engan vegin sofnað. Það er allt of margt sem ég er að hugsa um. Kannski hjálpar það að koma þessu drasli niður á "blað."

Já hérna. Þessi helgi, sko. Síðasta helgin áður en maður byrjar í skólanum aftur. Hún fór engan vegin eins og ég hélt að hún mundi gera. Ég ætlaði mér að kaupa BioShock á föstudaginn og spila hann yfir alla helgina, skítandi á mig af hræðslu, en NEEEEEI... Hann kom bara í PC útgáfu til landsins. XBox 360 útgáfan "missti af fluginu," samkvæmt BT starfsmönnum. Ekkert ofboðslega sannfærandi ástæða, en ég verð víst að taka henni. Ég keyrði út um allan bæ að sjá hvort einhver hafi fengið leikinn. Það var sama sagan út um allt; bara PC útgáfan til. Það endaði þannig að ég og Pési vorum bara að hanga á föstudaginn. Við drukkum bjór, borðuðum jerky, spiluðum Gears of War og skoðuðum ýmsar skemmtilegar síður á netinu. Við ætluðum að fara á Astrópíu, enþegar við komum í Álfabakkann, var næstumþví troðið út úr dyrum. Við ákváðum að kíkja þá í Smáralindina, en hún er ekki einu sinni sýnd þar... gg :P

Laugardagurinn fór mjög mikið í hangs bara. Ég fór alveg fáránlega seint á fætur og hékk bara einn heima meiri hlutan af deginum. Ekkert BioShock... urrr! Um kvöldið fór ég til Bjarma og við fórum á djammið með Brynju, Pésa, Krissa og Aroni. Það var alveg ágætt, þannig séð. Við vorum bara að fara á milli staða. Bjarmi, Brynja, Krissi og Aron stungu mig og Pésa af út af Sólon og þegar við ætluðum að hitta á þau, þá sendi Bjarmi Pésa SMS um að þau væru á Hverfis, en þau voru í rauninni á Hressó. Við vorum, vægast sagt, hissa þegar við komum inná Hverfis eftir að hafa beðið í biðröðinni og sáum þau ekki inni. Pési sendi Bjarma aftur SMS og hann sagði þá svaraði Bjarmi, "við erum á Hverfis! Koddu!" Bjarmi, þú mátt alveg læra muninn, sko. [EDIT: Ég veit að ég er geðveikt svartsýnn um djammið, en það er alltaf bara eftir á. Ég fer alltaf mjög bjartsýnn niður í bæ.]

Kvöldið endaði svo með því að ég fór í heimsins lengstu leigubílaröð til að fara einn heim. Ég var farinn að kvíða fyrir verðinu á taxanum, en fór svo að spjalla við fólkið fyrir framan mig í röðinni. Það kom í ljós að þau voru á leiðinni í Breiðholtið, svo ég fékk að fara með þeim, þau borguðu heim til sín og ég borgaði rest. 730kr var bara mjög vel sloppið. Djammið var sem sagt eins gott og venjulega. Einhvernvegin gleymi ég alltaf hvað ég hata bæinn mikið áður en ég fer. Ég ætti kannski að lesa bloggið mitt einhverntíman til að minna sjálfan mig á það.

Ég fór á fætur kl 14 í dag og fékk Waage til að fara með mig að sækja bílinn minn heim til Bjarma. Ég fór beint eftir það að vekja Pésa og Krissa svo að við gætum fengið okkur að borða og kíkja svo í Kolaportið, þar sem Sylvía og litla systir hennar voru með bás þar um helgina... or so we thought. Við fengum okkur American Style og leituðum síðan inni í Kolaportinu, en engin Sylvía... Öss...

Við ætluðum þá að gera aðra tilraun til að fara á Astrópíu í kvöld (sunnudag), en Pési og Krissi voru báður lamaðir af þynnku og gátu ekki farið. Beilers... tsk tsk... Ég fór þá með Hjördísi á Shortbus á kvikmyndahátíðinni og... já... hún var spes. Eftir fyrstu fimm mínúturnar af myndinni var eg farinn að hugsa, "hvað er ég búinn að koma mér út í?" Hún byrjar á því að það er maður sem liggur í baði. Hann er með vídjó kameru og er að taka sig upp í baði. Það er close-up af typpinu á honum og hann pissar í baðið. Smekklegt? It gets worse. Þessa mynd mætti eiginlega kalla, "homma klámmynd með söguþræði." Sérstaklega þar sem var ansi graphic threesome atriði með þremur karlmönnum. Jesús. I wanted to gouge my eyes out... :S

Smá svona random hugsun í endan hérna. Mig langar að vita hvaða snillingi datt fyrst í hug að segja, "it's better to have loved and lost, than not to have loved at all." Þetta er það heimskulegasta sem ég veit. Maður gæti alveg eins sagt, "it's better to have tried heroin and quit, than not to have tried it at all." Ég meina, í alvöru. Hvernig er það betra að tapa ástinni?

Kv. G

5 Comments:

Anonymous Sólveig Helga said...

Sá "snillingur" sem sagði þetta með ástina hefur bara verið að reyna að hugga sjálfan sig og líta á björtu hliðarnar á ástarsorg sinni. Ég meina hann hafði þó kynnast sannri ást sem er kannski meira en margir geta sagt:)
En ég er ekki sammála þessum frasa!

Djöfull hata ég leigubílaraðir, borgaði 3000 í taxa á föstudagskvöldið hehe;)slapp ekki eins vel og þú

27. ágúst 2007 12:26  
Anonymous Hörður Mar said...

Það er vont að vera týndur í veröld sem engar hefur dyr / og fyrir þá sem aldrei hafa elskað hlýtur tíminn að standa kyrr...

27. ágúst 2007 13:09  
Anonymous Maggi Loverboy said...

Hugsunin á bakvið þetta er að það er alltaf betra að fara í gegnum lífið með því að hafa elskað að einhverju leiti því annars væri maður bara farinn fram af kletti einhversstaðar fyrir þrítugt :)
og Gísli ef að það er ást sem þú vilt þá getum við félagarnir gefið þér mikið man love á föstudaginn

27. ágúst 2007 16:05  
Anonymous Bjarmi said...

Uss, var aðeins of fullur.

Sorry about that, annars vorum við ekkert lengi á hressó, orðin eitthvað slöpp með þetta djamm thingy.

3. september 2007 00:06  
Anonymous Silly Syl said...

What! Við vorum víst í kolaportinu. Allan daginn, báða dagana. Þið eruð bara eitthvað lélegir að leita! *HRMPF*

3. september 2007 10:56  

Sendu inn athugasemd

<< Heim