7. ágúst 2007

Oddagötu ættarmótið

Þessi verslunarmanna helgi var æðisleg. Farið var í Laugar í Sælingsdal á ættarmót þar sem ekkert síma- eða tölvusamband var; alveg æðislegt frelsi. Gist var á Hótel Eddu þar og vorum við með stórt partí tjald þar á bakvið þar sem var fólk var mest allan daginn. Þeir sem komu saman voru allir afkomendur hennar ömmu Sollu og makar þeirra.

Ég var í herbergi með Hildi systur á hótelinu. Hún ætlaði upprunalega að vera í svefnpokaplássi, en ég var búinn að panta tveggja manna herbergi fyrir löngu og annað rúmið var laust, þannig að þetta var augljós kostur.

Byrjað var á því að keyra til Lauga á föstudeginum. Lagt var af stað um kl. 13 og fórum við, Kelduhvamms fjölskyldan, á tveimur bílum. Ég keyrði skriðdrekann hennar mömmu og var með Hildi og Bjössa í bíl. Ég píndi þau til að hlusta á MCR með mér á leiðinni... :D

Fljótlega eftir komu á hótelið var farið í að setja upp tjaldið. Búið var að tala um að verkfræðingarnir og verkfræðinemarnir í fjöslkyldunni ættu að gera það. Það reyndist aðeins erfiðara en fyrst var ætlað og bættust fleiri í hópinn. Það byrjaði á því að við fengum nokkra risa poka af hælum, stöngum, himnu og veggjum, en við vissum ekki einu sinni hvernig tjaldið átti að líta út. Stangirnar voru flokkaðar og himnan breidd út og þá áttuðum við okkur á því hvernig þetta átti að vera. Þegar hliðarstöng var sett upp og það átti að negla niður hæl, spurði einhver, "er einhver með hamar?" Gogga frænka, sem hafði sent langan lista á allar fjölskyldurnar yfir það sem átti að koma með, hljóp í bílinn sinn til að ná í gúmmí hamar og var mjög hneyksluð á því að enginn hafi fylgt listanum sínum. Gúmmí hamarinn var ekki alveg að gera sig þar sem það var eins og það væri bara möl undir gras torfunum; maður fór alltaf í grjót og hælarnir fóru ekki nógu djúpt. Eftir við vorum búnir að brjóta helling af múrsteinum, sem lágu á víðavangi, með því að reyna að negla hælana niður, labbaði Golli út til okkar með risa stóra, ryðgaða rörtöng. Já, við enduðum á því að negla hælana niður með rörtöng... ;P Þegar allar stangir voru komnar upp, var restin mjög straightforward og gekk vel... ;)

Um kvöldið var risa grill og bjór drykkja. Æðislega góður matur og ennþá betri félagsskapur. Þetta var ekkert annað en útihátíðarstemning í tjaldinu og vorum við langt fram á nótt að syngja á meðan annað hvort Siggi eða Kobbi, Hereford dólgurinn, spiluðu á gítar. Ég fór að sofa á undan nokkrum og frétta ég seinna að Kobbi og Gossi hefði klifrað yfir girðinguna á sundlauginni og fengið sér sprett um miðja nótt. Brill... :P

Daginn eftir, þegar ég vaknaði, þá voru mamma og pabbi farin í einhvern bíltúr. Ég fór útí tjald og fékk mér að borða. Það var aðeins farið að hvessa og það var greinilegt að það var búið að vera rok um nóttina/morguninn vegna þess að flestir hælarnir sem héldu niður veggjum tjaldsins voru horfnir eftir að vindurinn hafði gripið í tjaldið. Tjaldið var vægast sagt að hrynja og þurftum við að vera með stöðugt viðhald.

Þegar mamma og pabbi komu aftur, þá fór ég í herbergið þeirra til að ná mér í bjór, þar sem þau ætluðu að sjá um að versla allt inn, áfengið líka. Ég fór inn og sá ekki bjórinn og spurði mömmu, "Hvar er bjórinn?" Þá kemur þessi ógleymanlega setning, "Ég keypti bara eina kippu. Þetta átti að duga alla helgina. Drakkstu alla kippuna í gær? GÍSLI!!" Mér fannst þetta bæði fyndið og sorglegt á sama tíma.

Það var bara tjillað mest allan daginn á laugardaginn. Drukkið bjór (frá öðrum) og borðað og spjallað. Mjög nice. Maður var í rauninni bara að bíða eftir matnum og skemmtiatriðunum sem átti að vera í íþróttasalnum á hótelinu.

Þar sem þetta var svona náinn hópur sem var að koma þarna saman, þá var ógeðslega fyndið þegar komið var með nafnspjöld fyrir alla. Allar fjölskyldurnar voru með sinn lit, eins og t.d. fjölskylda hennar mömmu var með bleika rönd efst á nafnspjaldinu og fjölskylda Goggu var með fjólubláa rönd. Í röndinni var nafn dóttur/sonar ömmu Sollu og svo var tala. Ég var 5.1 vegna þess að mamma er 5. barnið hennar ömmu og ég er fyrsta barnið hennar mömmu, sem var nr 5. Pabbi var 5+; makar fengu tölu þeirra sem þau eru með og + á eftir. Svenni bróðir var 5+.1 og Sveinbjörg var 5+.1+. :P Það eru svo margir í fjölskyldunni sem eru með sömu nöfnin; margir Gíslar, margir Birnir, margar Hildur, margar Kötur, margar Sólveigar, o.s.frv. að við ætluðum bara að fara að kalla hvort annað númerin í staðin. Var ekki alveg að gera sig... lol...

Einhversstaðar í umræðunni við matarborðið á seinna kvöldinu var talað um Halla, fyrrverandi maður hennar Goggu. Ég spurði þá, "hvaða tölu mundi hann fá?" Ég og allir hinir á borðinu mínu voru fljótir að svara á sama tíma, "7-." Það var mikið hlegið, en þetta var kannski bara svona had to be there djók. :P

Skemmti atriðin voru algjör eðall. Sérstaklega spurningakeppni Oddagötu systkina (plús Golla), lagið sem Kambaselsfjölskyldan tók og svo comeback AB-bandsins. Spurningakeppnin var ekki bara venjuleg spurningakeppni. Það var tyggjókúlublásturskeppni, spurningar og svo áttu liðin að hlaupa útí sal og ná í random hlut sem Kobbi, sem var að stjórna þessu, valdi. Sem dæmi um hlut sem átti að ná í var Gin flaska, 5000 kr seðill, svart leður veski og gleraugu. Gleraugu var nú fyndnast af öllu. Axel og Golli stukku útí sal og þá tók Golli bara í Axel, lyfti honum uppá sviðið og skilaði honum, þar sem hann var með gleraugu. Pottþétt move kvöldsins. :D

Eftir kvöldmatinn og skemmtiatriðin var farið útí tjald aftur í gítar og söng stemningu. Það var tekið einu skrefi lengra og var sungið við tvo gítara (Kobbi og Gossi), rafmagnsbassa sem tengdur var í boombox (Sammi) og HARMÓNIKU (Golli). Ekkert smá þétt tjaldband. Sungið var langt fram á nótt. Bara eðal stemning. Þetta er frábær fjölskylda... :D

Lítið var gert á sunnudaginn. Tjaldið var saman pakkað og Axel lagður af stað í bæinn með það þegar ég vaknaði. Það var tekið stutt grill og spjall í sólinni og svo bara lagt af stað í bæinn. Ég verð að segja að þetta ættamót heppnaðist alveg ótrúlega vel og vona ég að annað svona verði bara sem fyrst. Ég tók alveg helling af myndum af föstudeginum og laugardeginum, en þá varð myndavélin batteríislaus. Ég set inn myndirnar sem fyrst. Fylgist bara með.

Lítið verður um uppfærslur á blogginu næstu viku þar sem ég hef ekki tíma til þess nema bara í vinnunni og ekkert á eftir að vera að gerast hjá mér annað en vinna og læra hvort sem er. Það er lokasprettur í próflærdómi núna. Ef eitthvað gerist verða ég fljótur að henda því inn. ;)

Kv. G

9 Comments:

Anonymous maggi said...

now thats what u call responsetime!
hljómar eins og þetta hafi verið ofurhelgi og gott hjá mömmu þinni að halda vel utan um þessa drykkju þína hahahha :P

7. ágúst 2007 09:50  
Anonymous Iddú said...

Já þetta var vafalaust mögnuð helgi. Nauðsynlegt múv hjá mömmu að passa upp á áfengismagnið í blóðinu - þetta var orðið það slæmt að þú rændir hvítvíninu mínu!

7. ágúst 2007 10:31  
Blogger Gi$li said...

Hvaða hvaða... Þið talið erins og ég sé einhver alkóhólisti... pffft...

7. ágúst 2007 10:48  
Anonymous KataHá (4.2) said...

Takk fyrir snilldar helgi Gilli/Gísli/Gí$li/Gísli Konráð/ Gilli Poo/Svartur Tóbí/5.1.... Var klárlega algjör eðall og rosa gaman að hitta alla aftur. Þessi fjölskylda er ekkert nema snilld :-)

7. ágúst 2007 11:47  
Blogger Gi$li said...

Þarft að stafa Gilli Pooh rétt, Kata mín. Annars ER það bara Gilli kúkur... hahaha...

7. ágúst 2007 13:00  
Anonymous Maggi said...

Spurning hvort að Kata hafi ekki verið bara að tjá tilfinningar sínar með þessu Gísli :P

7. ágúst 2007 20:13  
Blogger Gi$li said...

Þetta er fjölskyldu einkahúmor, Maggi... :)

8. ágúst 2007 02:22  
Anonymous g frændi (4.1) said...

Svartur Tóbý (18 gramma). Eitthvert besta atriði fyrr og síðar. Ég geri bara grín að þeim sem ekki þekkja þetta.
Annars kasta ég kveðju á alla sem voru á Laugum.

8. ágúst 2007 11:36  
Anonymous Maggi said...

Þetta var Maggahúmr, Gísli.

:P ég vissi alveg hvað var átt við.

8. ágúst 2007 16:28  

Sendu inn athugasemd

<< Heim