4. júlí 2007

Happy 4th of July!!

Kannski horfir maður á Independance Day í kvöld í tilefni dagsins. :)

Já, þetta er bara hræðilegt. Stutt og léleg blogg færsla í fyrradag og ekkert í gær. Hvað er að gerast? Ég er bara með blogg fráhvarfseinkenni. :)

Það er ansi margt búið að gerast síðan á mánudaginn. Sjónvarpið mitt bilaði og fór að sýna brenglaða liti og hætti svo stundum að sýna mynd. Þegar Pési sá þetta bauð hann mér díl á risa sjónvarpi úr Sony Setrinu. Þar sem ég var búinn að selja Wii'inn minn og fékk pening frá Bjarma fyrir síðuna sem ég er að klára fyrir hann og sá peningur átti að fara í ferða/sjónvarpssjóð hvort sem er, þá ákvað ég að skoða þennan díl. Við erum að tala um 40" Sony Bravia LCD hérna...

Sjónvarpið

Ég ætla ekki að segja verðið sem ég fékk þetta á, þar sem þið eigið örugglega eftir að leita Pésa uppi og biðja um svona tilboð sjálf ef ég geri það. :) Þegar ég var búinn að skoða þetta þá fór fór ég niðrí banka, tók heimild uppá restina og sló til. Ég sé ekkert eftir því og þessi heimild er eitthvað sem ég get borgað upp eftir næstu mánaðarmót þannig að ég á þá sjónvarpið alveg... (Hefði getað borgað það allt út ef skólagjöldin og pústið á bílnum þyrftu ekki að borgast núna) :D Heimilið er komið með nýtt altari...

Í gær var ansi erfiður dagur. Another day, another month. Mánuður frá því að við Elísa hættum saman. Veistu samt, ég áttaði mig á nokkrum hlutum áðan sem eru "easing my pain." So I'm all good now... ;)

Var að skoða smá vídjó á netinu í downtime í vinnunni... Rock Band gameplay vídjó... OG TROMMURNAR ERU SÝNDAR!!! Oh man... þetta er awesome... Tékkið á þessu...



Við erum að tala um LEGENDARY leik... Þetta verður mesti partíleikur okkar tíma, held ég.

Kv. G

5 Comments:

Anonymous Eiki said...

I ain't no lawbreaker.

4. júlí 2007 15:59  
Anonymous Höddi "hetja" said...

Mikið djöf prumpaði ég í lyftunni í vinnunni í dag. Shæze ..... og lyktin sem kom var ógeðsleg. Þurfti að halda fyrir nefið mitt lyktin var svo ógeðsleg.

Svo fann ég Hunts BBQ í 10-11 sem var með 20% meira í en allar hinar. Og kostaði það sama.
I love 10-11.


Og já ... nýja sjónvarpið þitt er cool.

4. júlí 2007 17:43  
Anonymous Maggi said...

Til hamingju með tækið og megi það veita þér mikla ánægju

4. júlí 2007 19:14  
Anonymous waage said...

ID4!!!

4. júlí 2007 20:16  
Anonymous Sólveig María said...

Til hamingju með imbann...og þessi leikur er geggjaður ! Miklu betra en sing star af því að það geta svo margir verið með...hlakka til þegar ég þekki einhvern sem á hann og vill bjóða mér í partý...hehehe :)

5. júlí 2007 00:17  

Sendu inn athugasemd

<< Heim