Avada Kedavra
Ég, Pési, Óli "sinai", Höddi, Atli dyravörður og kærastan hans fórum á Harry Potter & The Order of the Phoenix. Bara góð mynd, sko. Hún var soldið lengi að byrja og, samkvæmt Pésa, þá vantaði helling í hana miðað við bókina, en ég fílaði hana mjög vel. Það var kannski ekkert skrítið að það vantaði helling í myndina miðað við bókina þar sem þetta var lang lengsta bókin og ef hún hefði verið gerð eins mikið eftir bókinni og hinar myndirnar, þá hefði myndin verið 4-5 tímar í lengd.
Það var geðveikt fyndið þegar myndin var búin og við vorum að labba niður salinn, þá sást á bíótjaldinu "Helena Bonham Carter." Þá heyrðist fyrir aftan mig, "Helena Bonham Carter? Hverja lék hún í þessari mynd?" Ég sprakk alveg úr hlátri. Hvernig var ekki hægt að þekkja hana í myndinni? Hún leikur sem sagt Bellatrix Lestrange og er í mínum augum bara karakterinn sem hún lék í Fight Club nema að hún kann galdra og er aðeins meira evil.
Það er rosalegt hvað það er mikið Harry Potter æði í gangi núna. Nýja myndin að koma út og bókin líka. Það eru allir að verða snar. Ég labbaði fram hjá Mál&Menningu á laugarveginum áðan, þar sem bókin byrjar í almenna sölu í kvöld kl 23:01, og þar var biðröð af fólki fyrir utan. Þar voru krakkar í Harry Potter búningum, fólk í garðstólum, DJ að spila o.fl. Það var soldið fyndið að sjá þetta. Þetta voru ekkert ofboðslega margir, við erum nú á Íslandi, en það koma örugglega fleiri fyrir kl. 23:01.
Ég var að skoða veðurspánna áðan og sá þetta:

Það er sem sagt spáð þrumu veðri á þriðjudaginn. Það er alveg magnað... :D Hlakka bara til, þar sem þetta gerist svo sjaldan á Íslandi.
Fór á þessa síðu áðan og var að dunda mér við að búa sjálfan mig til sem Simpsons karakter. Mér tókst það ekki alveg, vegna þess að það var ekkert svona "ÉG" til þarna, en ég gerði mitt besta.

Það verður smá grill í kvöld heima hjá Hödda í tilefni afmælis hans. Fer þangað örugglega bara strax eftir vinnu... eða amk strax eftir að ég er búinn að kaupa mér eitthvað kjöt... :)
Kv. G

4 Comments:
Hahaha... djöfull náðiru þér vel! þú verður að segja mér hvaða simpson síða þetta er
Hahaha ertu ekki að grínast, þetta er alveg eins og þú. Ég vil líka fá að vita hvaða síða þetta er... :)
Þið eruð rosalegar... Linkurinn er í færslunni... HAHAHA... :D
Þú náðir þér frekar vel en eins og með allt svona þá getur maður ekki fengið "ljósmynd" af sjálfumsér :)
Sendu inn athugasemd
<< Heim