Þuuuuuuuuuunnnnnnnnuuuuuur!!
Ólafur Torfi says: Hvað gerðirru í gær?
Gi$li says: I drank the world!!
Krissi “krz” tók mig á djammið í gær og ég held að “mænuskaddaður af drykkju” sé of vægt orðatiltæki til að lýsa mér. Ég bara drakk og drakk og drakk. Ég reykti vindil! Já, þið lásuð þetta rétt... ég reykti. Hins vegar byrjaði ég á því að reykja hann öfugt og brenndi mig næstum því á tungunni. Það sýnir hvað ég hef mikla reynslu í því... hehe
Ég man ekki eftir hálfu kvöldinu. Ég var alveg búinn að gleyma vindlinum þar til að Anna Heiða var að hlægja að mér á MSN og segja að ég hafi sagt henni vindla söguna þegar hún hringdi í mig til að bjóða mér far heim. Ég held að ég hafi dansað við einhverjar stelpur. Ég fór heim með einhver ógeðslega ljót sólgleraugu á hausnum sem ég veit ekkert hvar ég fekk. Svo fórum við heim í löggubíl... Krissi löggukall reddaði farinu... :D
Ég fór samt einn heim. Engar áhyggjur dömur... Gísli er ennþá laus og liðugur. There’s plenty of me to go around. ;)
Mér leist ekkert á hvernig kvöldið byrjaði. Það var allt óplanað og við vissum ekkert hvar við ætuðum að byrja að drekka. Ég stakk bara uppá fyrirpartí hjá mér. Eftir að ég var búinn að segja það, þá leit ég í kringum mig og sá þennan ruslahaug sem ég kalla heimili. Ég bara dreif mig og tókst að taka til áður en strákarnir komu. Það var bara ótrúlegt að ég skuli hafa getað þetta. Þetta hlýtur að vera einhverskonar heimsmet eða eitthvað.
-pause-
Var að koma af Rizzo. Fékk mér þynnku pizzu. Toscana beibí... Gets the blood flowing. Fáránlega góð pizza, sko. Mér finnst alltaf fyndið þegar ég er að skoða matseðilinn á Rizzo að það sé pizza sem heitir “Gilli Special”. Ég mundi samt aldrei panta mér hana. Sjávarrétta pizzur eru verk satans.
Ég held að ég þurfi að fara í sturtu og skipta um föt. Fékk það comment áðan að maður verður fullur á því að þefa af mér. Það er ekki gott. Svo er ég víst svo þunnur að ég titra. Höndin mín hætti ekki þegar ég var að hella vatn í glas á Rizzo. Held að ég þurfi að taka því vel rólega í kvöld.
Éttla fara að spila smá XBox. Gears of War, baby!!
Enda þetta með brandara
Q: What's the difference between a prostitute, a nymphomaniac, and a blonde?
A: The prostitute says, "Aren't you done yet?"
The nympho says, "Are you done already?"
The blonde says, "Beige...I think I'll paint the ceiling beige."
Commentiði aumingjarnir ykkar!
Kv. G.


3 Comments:
aaw yeah..
þynnkutremmi er hellaður en samt á furðulegan hátt hress, ef maður þarf ekki að gera neitt út daginn.
maður svona þægilega hellaður, afsökun til að gera ekki neitt.
svo er bara session á eftir!
djamm þegar við nördarnir komum heim!!
Gísli party animal. Gott hjá krissa að taka þig út og sýna þér að það er heimur eftir sambönd. og yndislegt að það varst þú en ekki ég sem var þunnur í gær hahaha :P
Sendu inn athugasemd
<< Heim