27. júní 2007

Sumarið er greinilega grill tíminn...

Já... Maður er alltaf að grilla. Hörður Mar kom til landsins í fyrradag og hann kíkti til mín í gær og við keyptum okkur bara einnota grill og gott lambakjöt. Ég fékk mér alveg geggjaða lambafillet. Þetta einnota grill var ekki alveg að gera sig fyrst. Það hitnaði til helminga og tók alveg amk klukkutíma að verða nógu heitt fyrir kjötið. Síðan þegar við byrjuðum að grilla, þá ákváðum við að taka lag í Guitar Hero áður en við snérum kjötinu. Ég man ekki hvaða lag það var, en ég man að það var of langt. Fyrstu kjötbitarnir brunnu soldið illa... heheh... Þetta var samt mjög fínt kvöld. Gott að fá kappann heim aftur. ;)

Ég held áfram í mínu svefnleysi. Ég fór ekki að sofa fyrr en kl. 02:30. Hvað er málið? Afhverju langar mig ekki að sofa? Ég elska að sofa!

Ég veit alveg svarið við þessu, en ég einhvernvegin vil ekki segja það... :)

Þegar ég gat ekki/vildi ekki fara að sofa í gærkvöldi, kíkti ég á Óla "sinai". Hann býr í stuttri göngu fjarlægð frá mér. Hann var eitthvað að tölvast bara svo að ég tók bara upp lappann og fór að vinna. Djöfull fer maður að vinna á fáránlegum tímum, mar... ;)

Ég var að taka eftir því að hægri handleggurinn minn er eitthvað óstöðugur í dag. Hendin og framhandleggurinn titra... og þetta er bara hægra megin. Það er mjög spes.

Ein pæling í dag og þið sem lesið þetta og búið ein getið kannski commentað á þetta og sagt ykkar skoðun á þessu. Afhverju í ósköpunum, þegar maður býr einn, er maður að loka og læsa (aðal áherslan á að læsa) þegar maður fer á klósetið? Ég meina, býst maður við því að einhver komi og gangi inná mann? Hver mundi það vera? Ég gerði þetta síðast í morgun þegar ég fór í sturtu. Þegar ég var búinn og ætlaði að fara fram, tók ég eftir að það var læst og hugsaði bara, "afhverju?" Ég meina, ég gerði þetta oft þegar ég var einn heima og ég og Elísa bjuggum ennþá saman og þá var það alveg fyndið. Núna er það bara kjánalegt!

Svarið mér þessu... Gerið þið þetta líka?

Kv. G

9 Comments:

Anonymous Iddú said...

Ég hef heyrt um ótal einbúa sem læsa að sér þegar þeir fara á klósettið eða í sturtu - þetta hlýtur að gera mig einstaka því ég geri þetta ekki!

27. júní 2007 11:30  
Blogger Gi$li said...

Mér finnst þetta bara svo ótrúlega skrítið að gera. Ég meina, ég geri þetta án þess að taka eftir því, en samt ekki alltaf. Þá tek ég bara eftir því þegar ég reyni að opna hurðina og hún er læst...

Þá kemur alltaf smá hlátur uppúr mér... :)

27. júní 2007 12:16  
Blogger Gi$li said...

Já, og just in case þið voruð með einhverjar áhyggjur, þá er handleggurinn minn hættur að titra... hahaha ;)

27. júní 2007 13:44  
Blogger Hjördís said...

Ég stend mig stundum að því að gera þetta líka, en það er þá bara af vana frekar en nokkuð annað.

Annað mál, heyrist að við þurfum að skipuleggja grillið á Austurvelli betur ef það er þennan óratíma að hitna!

Mótttaka í ráðhúsinu kl. 17 í dag, frír matur og vín :D

27. júní 2007 13:45  
Blogger Hjördís said...

Hjúkket var einmitt að fara af hafa áhyggjur af því að þú værir kominn með Guitarrus Heroism Complex í handlegginn.... :P

27. júní 2007 13:46  
Anonymous Maggi said...

ég hélt að þetta væri annað complex sem hefur einnig með notkun á höndum að gera en það er ágætt að þú titrir ekki lengur. með að læsa klósetinu þá ertu bara skrítinn. :P

27. júní 2007 15:04  
Blogger Gi$li said...

lol maggi!!!

27. júní 2007 16:02  
Anonymous Skankman John said...

hehehe :D

28. júní 2007 01:26  
Anonymous Hörður Mar said...

Það er mjög mikilvægt að læsa að sér þegar maður er hvort sem er einn heima, taka með sér húslykla út þegar það verður hvort sem er einhver heima til að hleypa manni inn, setja á sig öryggisbelti þó maður sé hvort sem er bara rétt að færa bílinn og passa vel að kjúklingurinn sé eldaður í gegn þó að hann sé hinsta máltíð handa dauðadæmdum fanga. Þetta eru hlutir sem maður á að venja sig á að gera alveg hugsunarlaust þannig að maður geti ekki gleymt þeim þegar á ríður.

28. júní 2007 13:57  

Sendu inn athugasemd

<< Heim