Nöldur, nöldur, nöldur... og afmæli!!!
Jææææja...
Annað hvort er fólk ekki að lesa bloggið eða það er bara enginn að nenna að commenta. Það er nú bara lélegt... Ég verð nú bara að segja það. Hvernig á ég að vita hvort fólk er að lesa bloggið mitt eða ekki? Öss... slappt... Mér finnst ég bara vera einn í heiminum... ;)
IT’S THE LAW!!
Hildur lil’sis á afmæli í dag. 21 árs! Djöfull er tíminn fljótur að líða. Þú varst baby fyrir nokkrum árum síðan... pfft... Þurfum að horfa á gömlu home-vídjóin aftur... Ég ætla nú ekki að nefna hvað er sýnt þar, gæti verið vandræðalegt fyrir þig, en það er svo fokk fyndið... :D
Happy birthday!
Annars er alveg voðalega lítið að frétta af mér síðan í gær. Big surprise, þar sem ég gerði ekkert af viti í gær vegna þynnku. Ég er bara búinn að vera að sitja hérna í vinnunni alveg að sofna. Ekki einu sinni Foo Fighters hjálpa mér að halda vöku. Er að vinna í einhverjum bögg sem ég er ekki alveg að fatta. Það kemur nú samt að því. Þetta reddast allt saman!!
Það er alveg týpískur mánudagur hérna í vinnunni. Það er enginn að nenna að vera hérna. Margir komu seint og fóru heim snemma. Ég er búinn að vera hérna frá því kl 7:50 í morgun og ég er búinn að sjá flesta koma og fara sem ég er að vinna með. Við erum tveir eftir hérna í herberginu núna og einn á fundi annarstaðar. Eigum að vera tíu hérna.
Mig vantar linka og fleiri quotes á síðuna... Endilega, ef þið eruð með blog eða vitið um gott quote, sendið mér það. Annað hvort í email eða í comment.
Hef það ekki lengra í dag. Frekar fréttalaus dagur.
Kv. G


6 Comments:
Til hamingju með Iddú :)
Við veeeerðum að fara að swappa tónlistinni, ég er komin með fráhvarfseinkenni og ógeð á foofighters ;)
OK, you asked for it...
Myndi byrja á þessum teljara og koma honum fyrir á síðunni:
http://shinystat.com/
Linkar:
myspace.com
http://www.explosm.net/comics/924/
http://www.eoe.is/liverpool
http://postsecret.blogspot.com (ný póstkort birt alla sunnudaga)
http://freedomfries.blog.is/blog/freedomfries/ (gott íslenskt blogg um ameríska pólítík)
www.baggalutur.is (í sumarfríi samt núna)
filelist.org og filemp3.org - bestu torrent síðurnar í dag imo
http://skrubaf.blogspot.com/ - Ármann Jakobsson er skemmtilegur bloggari...
http://www.hi.is/~jja/ - veit ekkert hver þetta er en hann er hnyttinn
http://www.fjordis.blogspot.com/
http://www.angryalien.com/ (hahahaha 30 sek endurgerð á frægðum bíómyndum. Með kanínum)
Já bara komið í bili held ég :D
;) bara svo þú hættir að vera kvittfúll :P
*rop*
hæ frá usa
kvitt frá mér svo þú hættir nú ekki að blogga ;)
Bara að bókfæra þá staðreynd að ég er reglulegur lesandi! ;)
Takk fyrir afmæliskveðjuna og takk fyrir að opinbera ekki vandræðalegu home-videoin á veraldarvefnum. Ég mundi hugsanlega senda persónuvernd á þig, ég hef nú gert annað eins!
kv. Iddú
Sendu inn athugasemd
<< Heim