Ný mættur í vinnuna...
Jæja, gott fólk. Klukkan er núna 11:00 og ég er ný mættur í vinnuna. Djöfull var gott að sofa, mar. Sjitt! Ég vaknaði fyrst klukkan 8:00, en sagði bara, "Fokk itt. Ég er að fara í vinnu piknik eftir vinnu kl 18:00. Ég mæti bara seinna." Ég ætlaði mér ekki að mæta alveg svona mikið seinna, en svona gerist stundum þegar maður fer seint að sofa. ;)
Já, ég er að fara í vinnu piknik á eftir. Þetta er í tilefni til síðustu viku í afmælis ári Landsbankans. Það verður stuð, sko. Ég hélt reyndar að þetta ætti að vera lengur og var búinn að segja öllum að ég væri upptekinn í allt kvöld. Svo kemur það í ljós að þetta er bara til kl 20:00. Ég segi þá hér með, "ég er laus í kvöld eftir kl 20:00." Kannski fer maður bara í bíó eða eitthvað.
Bjarmi og Pési kíktu til mín í gær. Bjarmi kom aðallega til mín til að láta mig fá loka upplýsingar fyrir heimasíðuna sem ég byrjaði að gera fyrir hann fyrir löngu síðan. Ég get loksins farið að klára hana. Újebeibífílaða...
Þegar strákarnir voru hjá mér í gær, þá ákváðu þeir að fá sér einhvern mat. Ég er svo stolltur að segja að ég hafi sýnt ofur-viljastyrk. Þeir fóru á Rizzo, keyptu sér Toscana pizzu, THE GOD OF PIZZAS, og komu með hana heim til mín til að borða. Á meðan þeir gorge'uðu sig á henni, þá var ég að borða ristað brauð. Stapíll? I think so!
Mér fannst svo fyndið þegar ég var að koma í vinnuna, þegar ég var að labba framhjá alþingishúsinu niðrí bæ, þá sá ég hóp af þýskum túristum. Þeir voru þarna að hlusta á ferðastjórann blaðra um alþingi og horfa á stillása og ljótleika sem umlykur alþingishúsið. Túristarnir voru vægast sagt óspenntir... hahaha....
Þetta er nóg í bili...
Kv. G

4 Comments:
Ristað brauð? wtf.. ekki furða að þú hafir ekki haft orku til að vakna
í morgun. Subway var samt góður í dag. farðu að sofa snemma í kvöld og borðaðu eitthvað gott í kvöldmat :P
weight loss ftw
Thaaaaat's right...
Gera bara eins og dömurnar. Borðaðu allt sem þú vilt, en svo bara "skilaru" því..
Sendu inn athugasemd
<< Heim