19. júní 2007

Mér leiðist!!!

Sjitt hvað mér leiðist mikið. Það er geðveikt veður úti og mig langar geðveikt í ísbíltúr, en það er engin til að taka með sér. Til að útskýra betur, þá taka strákar yfirleitt ekki vini sína með sér í ísbíltúr nema þeir séu nú þegar í heimsókn. Strákar hringja ekki í hvorn annan og segja "koma í ísrúnt?" Ég hér með auglýsi eftir sætri stelpu til að koma með mér í ísrúnt þegar það er gott veður.

Ég var næstumþví búinn að gera smá impulse buy í BT í gær. Sá Guitar Hero II fyrir XBox 360. Mig langar geðveikt í hann. Kannski kaupi ég hann seinna í sumar og ROKKA FEITT! Set á mig hárkollu og hárband og fer í leggings. Verð alvöru tölvu-glysrokkari! :P

Ég svaf eins og engill á skýji (er þetta rétt stafsetning?) í nótt. Vá hvað það var gott. Eitt skrítið samt. Mig dreymdi Söru Lind, mína fyrrverandi. Við hættum saman í GEÐVEIKT illu fyrir ca. 5 árum síðan. Ég meira að segja sá hana um daginn á bensínstöð og hún starði á mig og gaf mér illt auga. Anyways, mig dreymdi að við byrjuðum aftur saman og allt var jolly. Ég var að leika við barnið hennar og við vorum geðveikt glöð saman. Það var frekar creepy draumur.

Hvað er samt málið með drauma yfir höfuð? Yfirleitt man ég engan draum sem mig dreymir og flestir gleyma flesta draumana sína (maður man þá bara ef maður vaknar í miðjum draumi). Ég meina, ef maður talar um það, þá er það fáránlegt. Ég veit að fólk segir, þetta er bara heilinn að vinna úr upplýsingum sem hann tók inn yfir daginn, en samt! Tonight I'm gonna enter a comatose state, hallucinate vividly and then maybe suffer amnesia about the whole experience.

Ég held að það verði ansi langt þangað til ég fæ mér vindil aftur. Ég finn ennþá bragðið af honum og það er ekki gott svona eftirá. Ég er búinn að bursta tennurnar endalaust mikið, en samt kemur þetta bragð stundum upp. Svei...

Ég er að fara að hitta Birnu á fimmtudaginn. Ég hlakka geðveikt mikið til. Hef ekki hitt hana í laaaaaangan tíma. Svo hef ég aldrei hitt kallinn hennar. Það verður spennandi líka...

Vonandi meira spennandi en þessi póstur amk...

Kv. G

5 Comments:

Anonymous Óli said...

Í sumum menningarheimum er ég útlitslega sæt stelpa.

Feelin' like some ice cream, for all intense and purposes, I shall be your Huckleberry.

P.S. Þessir fyrrnefndu menningarheimar eru líklegast útdauðir. En ég er ennþá seggsí.

~Skankulator

19. júní 2007 23:04  
Blogger Gi$li said...

ahem... intents...

pwned... :D

20. júní 2007 00:47  
Anonymous Hörður Mar said...

Þú sleppur nú vonandi við að Elísa fari að gefa þér "the evils". En nú er ég farinn að kannast við minn mann. Kallinn er farinn að girnast allskonar græjur eins og ekkert hafi í skorist.

20. júní 2007 01:04  
Anonymous waage said...

gigglesnort

20. júní 2007 01:11  
Anonymous Ísmaðurinn "Maggi" Ógurlegi said...

hefðir átt að láta GH2 eftir þér újébabyfílaða! ég er alltaf til í ís.. er örugglega búinn að innbyrgða svona 10-15L síðan ég byrjaði í sumarfríinu :P just call me ég skal ekki láta neinn vita að þú hafir boðið mér í ísrúnt hahahah

20. júní 2007 17:57  

Sendu inn athugasemd

<< Heim