13. júní 2007

Klukkan var 03:32...

...allt var hljótt. Enginn var á ferð. Ég labbaði útí bíl og keyrði afstað. Engin umferð. “Svona hlýtur það að vera að vera einn í heiminum,” hugsaði ég. Þá mætti ég löggubíl. Ég horfði oft í afturspegilinn til að sjá hvort að löggan ætlaði að snúa við og elta mig. Ekkert gerðist. Ég hélt samt áfram að kíkja. Ég lagði á bílastæðið sem venjulega er troð fullt. Það var tómt. Ég labbaði úr bílnum og eina sem hreyfðist, annað en ég, var einn köttur. Hann stoppaði og starði á mig. Ég kom að bygginguni og labbaði inn. Ég fór uppá þriðju hæð að áfangastaðnum og opna hurðina. Þá fór Securitas kerfið í gang. Fyrstu læti þessa morguns. Þar sem ég var ekki með kóðann, þá beið ég eftir öryggisverði til að hleypa mér inn. Síðan fór ég að vinna.

Já... svona var þetta. Ég gat ekki sofnað svo ég ákvað að fara niðrí vinnu. Þetta sökkar svo mikið... Ég vil frekar vera einn hérna en einn uppí rúmi. Ég meina, á daginn gengur mér vel. Ég er glaður og góður. Ég hitti vini mína og við erum bara hressir. Það eru bara þessi helvítis kvöld. Rúmið heillar ekkert lengur. Maður vill ekkert fara að sofa og þegar maður fer loksins að reyna sofna, þá getur maður það ekki. Ég hef bara eitt við þessu að segja:

LAAAAAAAAAAAAAAAAAME!!!

...en já, ég setti securitas kerfið í gang óvart... klúður... hehe...;)

Annars kláraði ég Gears of War í gær. MAAAAGNAÐUR leikur. Ætla sko pottþétt að spila hann aftur, í co-op helst. Endakallinn var mjög erfiður. Var búinn að reyna að drepa hann í 1-2 tíma, með pásum, en gat það bara ekki... Krissi kíkti svo í heimsókn og við fórum bara eitthvað að spjalla og ég segi, “sjitt mar, ég held að ég sé kominn á endakallinn í Gears.” Ég fer að sýna honum, og viti menn, ég vann hann bara í fyrsta þá. Það er greinilega gott að hafa áhorfendur... :D

Bætti við quote’um frá Waage og Krissa inná random quote kerfið. Kerfið virðist samt ekki virka á IE eða Safari. Þarf aðeins að skoða það. Þetta sýnir bara hvað Firefox er góður browser. Hann er ekki “picky” á kóðann... :)

Núna ætla ég bara að halda áfram að vinna... Skrifa kannski eitthvað meira seinna í dag.

Kv. G

5 Comments:

Anonymous Maggu Ofurkvittandistalkerinn said...

Bara að láta þig vita að þú ert ekki eini maðurinn í heiminum sem er vakandi a´þessum tíma.... bleh... afhverju geta krakkar ekki sofið eins og maður vill sjálfur :P

13. júní 2007 06:24  
Blogger Hjördís said...

Lunch á Austurvelli á eftir? Ég þarf að fara eitthvað í hádegismat. Bauð rafvirkjanum sem var hérna áðan ristað brauð svona í gríni bara og hann þáði það... Þannig að ég á engan mat :(

13. júní 2007 12:04  
Blogger Gi$li said...

Ahh... dem... hefðir átt að ná mér á MSN... ég hefði komið... :/

Er búinn í mat núna...

13. júní 2007 12:52  
Blogger Hjördís said...

Piff msn!
Maður getur nú ekki leyft sér þann munað í vinnunni!

Endaði á því að taka mér engan mat auðvitað - maður er svo mikill lúði stundum...

13. júní 2007 18:32  
Blogger Gi$li said...

shitt, já... algjör lúði, sko... ;)

Tökum lönsj seinna... alveg pottþétt... :)

13. júní 2007 19:12  

Sendu inn athugasemd

<< Heim