26. júní 2007

Hugur vs. hjarta...

Kvöldið í kvöld var bara mjööög gott. Ég var illa sofinn og búinn að vinna helling í dag og ætlaði að leggja mig þegar ég kæmi heim, en Maggi "Murgus" bauð allt í einu í grill borgara. Þetta var bara tilboð sem ég gat ekki hafnað. Ég, Óli "Skankelator", Óli "sinai" og Höddi fórum allir til Magga og vorum með hresst grill. Ég og Óli "Skankelator" héldum tónleika til að "borga fyrir borgarana". Sem sagt Guitar Hero tónleika... :D

Litli sonur hans Magga, hann Ríkarður Axel, er algjört krútt. Hann var að dansa á meðan ég við spiluðum í Guitar Hero og klappaði þegar lögin voru búin. Svo var hann alltaf að reyna að tala við okkur, en það kom bara sætasta bull úr honum sem ég hef nokkurn tíman heyrt ... :D

Nú, eftir grillið, þá fékk ég heimsókn frá Hjördísi "Fjördísi". Hún kom með kanadískan bjór handa mér og við vorum með létt spjall. Það var bara mjög fínt. Alltaf gott að fá company. Ég er félags svampur eins og er. Mér finnst ég alltaf þurfa að hafa fólk í kringum mig núna. Takk fyrir heimsóknina, Hjördís... :D

Ég og Óli "Skankelator" erum núna sjálfskipaðir lögfræðingar með sérsvið í reglum og lögum fyrir "guy games". Við fundum snilldar loophole á shotgun-reglunni frægu. Reglan, eins og flestir vita, er að þegar þú sérð bílinn sem þú og vinir þínir eru að fara að keyra í, þá fær fyrsti farþeginn til að öskra SHOTGUN farþegasætið frammí. Nú, loophole'ið sem við fundum er út frá því að þú þurfir að sjá bílinn. Þú tekur myndavélasímann þinn, tekur mynd af öllum bílum vina þinna og þegar þið eruð að fara, þá tekurru upp símann þinn, finnur viðeigandi mynd og kallar SHOTGUN. Þú getur gert þetta áður en þið farið út. Þetta er löglegt loophole. :D

Ef við snúum okkur að titli þessa pósts, þá var ég að keyra í vinnuna í morgun (mánudagur) og var að hlusta á Zuuber á FM957 og þá fór Svali að tala um einhvern póst sem hann sá á barnaland.is. Ég veit, ég veit... Þetta byrjar ekki vel. Ég er að tala um FM957 og barnaland.is í sömu setningu, en bíðið aðeins og lesið. Hann fór að tala um þennan póst sem var um "hugur vs. hjarta" og hvort þeirra maður ætti að fylgja. Talað var um það að ef maður hlustar á hugann, þá er lífið auðveldara, en getur orðið innantómt. Ef hjartað fær að ráða, þá er maður oftast ánægður með þá ákvörðun, en hún umturnar oft mörgu í lífi mans.

Mér fannst þessi umræða snerta mig á einstakan hátt. Ég meina, min nýlegu sambandsslit voru gerð eftir að hafa hlustað á hugann, en hjartað er núna alltaf að segja mér að reyna að laga þetta aftur. Hvort á maður að hlusta á að ykkar mati? Segið mér það, endilega? Commentið um þetta...

Kv. G

6 Comments:

Anonymous Maggi Grillmæstro said...

Ef ég hlustaði alltaf á magann þá væri ég 200kg. :P haha, nei annars þá held ég að maður verði að hafa þetta svona 50/50 maður gerir aldrei neitt ef að maður hlustar bara á hausinn.
ps. við þurfum að endurtaka gærkvöldið oftar!

26. júní 2007 10:28  
Anonymous waage said...

"I shall take the heart, for brains do not make one happy, and happiness is the best thing in the world.

But ask for brains instead of a heart; for a fool would not know what to do with a heart if he had one." - L. Frank Baum, The Wonderful Wizard of Oz

26. júní 2007 12:32  
Anonymous Höddi - Konungur Internetsins said...

Hell já Maggi .... svona kvöld oftar. Og helst þá vera með orðabók líka svo við getum skilið litla kauðan.

Hann var örugglega að segja okkur eitthvað mikilvægt þegar við vorum að spila GH2.

"To understand the heart and mind of a person, look not at what he has already achieved, but at what he aspires to.
" - Kahlil Gibran

26. júní 2007 14:09  
Anonymous Hörður Mar said...

Ef hjartað í þér fer að stinga upp á að þú kveikir í húsum, talaðu þá við mig, ok?

26. júní 2007 16:56  
Anonymous Sólveig said...

Góð pæling...sko það getur verið mjög erfitt að láta hugann (skynsemina) ráða ferðinni, sérstaklega í ástarmálunum. Ég enda alltaf á því að hlusta á hjartað og það hefur jú oft skapað vandamál en ég var allavega hamingjusöm á meðan:) en það er erfitt að segja hvort maður EIGI að hlusta á annað hvort frekar, það fer eftir aðstæðum en ég held að best sé að hlusta svolítið á bæði en sjálf myndi ég velja hjartað ef upp kæmu árekstrar milli þess sem hjartað segði og hugur ;) reynslan hefur sýnt það!

27. júní 2007 00:31  
Blogger Gi$li said...

Mig langar að hlusta á hjartað, en ég veit ekki alveg hvort það mundi ganga upp. Hugurinn verður því að eiga forgang í þetta skipti.

27. júní 2007 09:14  

Sendu inn athugasemd

<< Heim