16. júní 2007

Grillið og potturinn... Eðall...

Já... ég fór uppí bústað til mömmu og pabba í gær. Hildur lil'sis fór líka. Það var bara algjör eðall. Við grilluðum geggjaða hamborgara, sátum í pottinum og bara spjölluðum. Mjög nice. Þau eru meira að segja komin með netið uppí bústað, þannig að maður fær sinn skammt af því þótt maður fari... hahaha.. Hildur eyddi korteri að hoppa á trampólíninu. Ég tók nokkrar geggjaðar myndir af því. Kannski koma þær á netið bráðum, ef hún leyfir mér það... ;)

Í kvöld ættlum við Pési og Bjarmi að grilla og kíkja í bæinn. Krissi ætlar líklegast að hitta okkur í bænum og við gerum eitthvað gott út kvöldinu. Pési var víst að lenda í breakupi líka og ég verð að vera til staðar fyrir kappann... Við ætlum að vera bitrir saman í kvöld. Kannski pulla ég, "Haaaaave you met Pési?" Það væri snilld :D Nei... nei... það væri LEGENDARY!

Djöfull ætla ég að vera "The Barnicle" í sumar... úje...

Kominn tími á XBox á meðan ég bíð eftir Pésa. Ætla að byrja uppá nýtt í Gears of War í erfiðara stigi. Ég iða alveg í puttanum við að skrifa þetta...

Gotta go. Gears...

Kv. G

7 Comments:

Anonymous waage said...

Haaaave you met Me?

16. júní 2007 20:50  
Anonymous Útlanda Höddi said...

SUIT UP !!

17. júní 2007 03:25  
Anonymous hinn útlanda-höddi said...

Stríðstannhjól! Mátt þú hoppa á trampólíninu líka?

17. júní 2007 13:10  
Blogger Gi$li said...

ÉG má það, en geri það ekki...

17. júní 2007 13:52  
Anonymous Hildur mágkona said...

Hey, takk fyrir síðast...

...þér er hér með veitt opinbert leyfi til að birta trampolín-myndirnar, enda eðal myndir, því verður ekki neitað!

kv. HB

18. júní 2007 00:30  
Anonymous HILDUR said...

ehm... vandræðalegt... þetta "hildur mágkona" kom óvart...

18. júní 2007 00:30  
Anonymous Hörður Mar said...

HAHAHAHAHAHHAHA! Snilld, Hildur! :D

20. júní 2007 01:08  

Sendu inn athugasemd

<< Heim