25. júní 2007

Brúðkaup og kannski smá meira...

Sorrí að ég hef ekki verið eins duglegur að blogga og ég hef ætlað mér, en já... Það eru ekki allir dagar jafn viðburðarríkir og Guitar Hero dagurinn ógurlegi, þegar ég fékk mér GH2... :D

Vá... spes... ég er að láta XBoxinn spila lög af file servernum mínum. Það er á shuffle og þá kemur allt í einu uppáhalds lagið mitt úr GH2, Dead! með My Chemical Romance. Ég vissi ekki einu sinni að ég ætti það. Ég hélt að ég hefði aldrei heyrt það fyrr en ég fékk leikinn... :P

Gærdagurinn (laugardagurinn) var æðislegur. Svenni og Sveinbjörg giftu sig við mjög fallega athöfn í dómkirkjunni. Athöfnin átti að byrja kl 18. Við mættum í kirkjuna ca. kl. 17:50. Kl. 18, þá stóð Svenni við altarið með mömmu sinni. Hann heilsaði gestum sem voru að koma inn. Kl. 18:05 var hann ennþá einn með mömmu sinni. Kl. 18:10, ennþá einn. Kl. 18:15, ennþá einn og virtist vera frekar stressaður á svipinn. Kl. 18:17 kom Sveinbjörg loksins. Þá hafði hringurinn hennar týnst... Svenni var farinn að halda að hún hefði verið stungin af... Góð saga til að segja barnabörnunum. Kl. 18:32 voru þau orðin hjón, svakalega falleg hjón... :D

Þegar brúðkaupið var búið, þá keyrðu brúðhjónin burt á gulum og svörtum Citroen fórnbíl sem Svenni var ný búinn að kaupa bara fyrir þennan dag. Sveinbjörg vissi ekki af því fyrr en á brúðkaupsdaginn. Hann er svo rómantískur hann bróðir minn, eins og ég. Eða ég eins og hann... segir maður það ekki fyrst hann er eldri? :)

Veislan var haldin á Kjarvalsstöðum niðrí bæ. Rosalega flott, en minimalísk veisla. Mér leist ótrúlega vel á hversu líbó þetta átti að vera. Ég hefði viljað hafa mitt svona ef ég væri ennþá trúlofaður. Ekkert sætaskipan eða neitt... Bara allt frjálst og ofboðslega gaman. Litlu brúðarmeyjarnar voru algjört æði. Ég bráðnaði gjörsamlega við að horfa á þær og sá þá að ég er alveg andlega tilbúinn til að eignast krakka. Ég veit... "LAAAAME," en samt... Þær voru bara svo ótrúlega krúttlegar... :)

Kl. 02:00 lokaði salurinn og ég hélt mér niður í bæ. Ég hitti Krissa eftir að hann var loksins búinn að ná sér í taxa úr partíinu sem hann var í. Það var svona ágætt í bænum. Ekkert stórkostlegt. Við fórum á Sólon og vorum eitthvað að dansa. Krissi var soldið pirraður á mér hvað ég var óduglegur að höstla. Ekki beint "my forté"... Eg reyndi að vera wingmaðurinn hans Krissa og pullaði "Hefurru hitt Krissa?" krissi fór að spjalla við dömuna en engir blossar mynduðust. Það virkaði sem sagt ekki í þetta sinn og Krissi reyndi að kenna mér um og segja að ég væri lélegur wingmaður. Öss... I hooked her, you were supposed to reel her in... ;)

Mér finnst geðveikt leiðilegt að ég hugsaði hálfan daginn í gær, "þetta er ekki að fara að gerast hjá mér eftir rúmlega ár..." Ég reyndar ákvað löngu áður að ég ætlaði ekkert að tala neitt um þetta þennan dag og stóð við það, nema þegar ég var að segja fólki að við værum hætt saman þegar þau spurðu hvar Elísa væri, en það var ekkert meira en það. Þá sagði ég bara, "Ég ætla samt ekkert að tala um þetta í dag." Ég er svo mikil veimiltíta þegar það kemur að tilfinningum að það er ekki venjulegt... hehe... Djöfull verður maður að fara að harka af sér...

Ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er með myndir úr brúðkaupinu hérna.

Kv. G

4 Comments:

Anonymous waage said...

þarf maður ekki að vera með vængi til að vera almennilegur wingman :P

25. júní 2007 01:20  
Anonymous Maggi said...

Krz hefði átt að klára "samninginn" klárlegt að þú kláraðir þinn helming.

Spurning hvort krz sé "shooting blanks" better luck next time.

25. júní 2007 14:28  
Anonymous Bjarmi said...

*Krissis Wingman manual*

Krissi feilar ekki, wingmaðurinn feilar.

Ef wingmaðurinn feilar ekki þá var það tónlistin.

Ef það var ekki tónlistin þá var stelpan lessa.

Ef hún var ekki lessa þá var það lýsingin í herberginu.

Ef það var ekki lýsingin þá var það skyrtan, svarta skyrtan hefði virkað. (þú btw sagðir honum að fara í hvítu)

Ef það var ekki skyrtan þá var það wingmaðurinn. (and around it goes)


PS: Sambandi við lýsingu.

Krissi lýtur best út við kóngabláa neon lýsingu, helst að hún komi að aftan að mestu en einn lítill stróp að framan sakar ekki, svo vangasvipurinn sjáist, ekki bara "mistery lookið".

Robbí Sex bomb lagið undir sakar ekki.

25. júní 2007 22:47  
Anonymous Atli said...

Rosalega var þetta krúttleg færsla ;P

25. júní 2007 23:30  

Sendu inn athugasemd

<< Heim