Allt um ekkert...
Oooooh... Afhverju þarf maður að vera veikur núna? Ég nenni því ekki!! Var vakandi hálfa nóttina að biðja á “the porcelein alter”. Ekki gaman. Ég er bara búinn að liggja í rúminu í dag í fýlu útí sjálfan mig. Mjög spennandi.
Fór til ma&pa í gær til að fagna afmæli Hildar. Það var bara hresst. Grilluðum besta kjót sem ég hef fengið lengi. Því miður er maður í megrun og gat ekki fengið oftar en einu sinni. :) Spjallið var hresst sem og fólkið sem var á staðnum. Vona bara að Hildur halda eitthvað lítið uppá þetta um helgina. Þá er hægt að hafa taumlausa gleði án foreldrarýnis.
Ég ákvað eftir djammið mitt á laugardaginn að éttla ekki að drekka svona mikið aftur í bráð. Ef ég fer á djammið, sem ég er yfirleitt ekki mjög spenntur fyrir yfir höfuð, þá eru einn eða tveir bjórar alveg málið. Það er alveg nóg. Maður þarf ekki að vera alveg heiladauður af drykkju. Maður mann ekki eftir heilu og hálfu kvöldunum. Guð veit hvaða skandala maður er þá með í. Djííííí...
Ég er alltaf með hnút í maganum þessa daganna. Flest ykkar geta alveg áttað ykkur á afhverju það er. Ég bögga sum ykkar með þetta og þið eruð örugglega orðin alveg fáránlega þreytt á mér. Ég er að fara að hætta. Alveg satt... Þetta hlýtur að fara að jafna sig bráðum. ;)
Sara, vinkona Elísu og hálf vinkona mín, var að fara í einhverja emergency aðgerð á bakinu í gær sem tók víst tvo tíma. Hún var sprautuð með deyfingu 12 sinnum, en fann samt fyrir nánast öllu. Hún þarf að fara aftur í dag. Ég vona bara að hún jafni sig fljótt eftir þetta og verði jafn lífsglöð og áður sem fyrst. :)
Hjördís, takk fyrir linkana í gær. Ætla að skoða þá í dag og ákveða hvað ég set inn. Ég held að myspace sé alveg pottþéttur linkur. NEI!! ÉG ER EKKI HÚKKT!!! ;)
Vantar ennþá fleirri quotes. C’mon ppl. Þið hljótið að hafa einhverntíman sagt eitthvað alveg fáránlega fyndið eða djúpt einhverntíman, eða vitið um einhvern sem hefur gert það. Ég trúi því ekki að þið séuð svona “dull”. Ég bara neita að trúa því. :)
Nöldur virkar greinilega. Núna veit ég afhverju kvennþjóðin gerir svona mikið af því!! Eh, guys? Eh, EH? :D Neinei... bara grín... Nöldraði aðeins um commentleysi í gær. Pósturinn fékk fullt af comments sem ég þurfti ekki að “biðja um” á MSN. Frekar sáttur. Takk fyrir það. Haldið þessu bara áfram. ;) Maggi tók sig meira að segja til og commentaði á nánast allar færslurnar á blogginu. Maggi, þúrt klikkaður... ;)
Gott í bili... Við sjáumst bara einhverntíman. Ég held áfram að bulla bara... :D
Kv. G


6 Comments:
eg samþykji það að það var gengið heldur langt inn um gleðinnar dyr á laugardaginn ;)skrautlegt var þetta nu samt... veistu af hverju ég er með kúlu á olnboganum og marinn á bakinu? :o
með eitt gott quote í tilefni dagsins... "hjálpið lögreglunni, berjið ykkur sjálf." -nafnlaus
"ef við týnumst með 2 gps þá erum við hálfvitar" - waage
Klikkaður... nei kannski lítið að ger a en ekkert að manni fyrir utan það :P einhver verður að halda þessari síðu uppi annars hættiru að blogga.
Það er satt... GO MAGGI!
ég er ömurlegasti blogglesari mannkynssögunnar.. but I'm here.
..that HAS to count for something.. ;)
-Skank Out!
Sendu inn athugasemd
<< Heim