17. ágúst 2008

Systur mínar eru snillingar!





Kv. G

8. ágúst 2008

Back from the dead?

Nah, just from the USA...

Já, það er fáránlega langt síðan það hefur komið almennilegt blogg frá mér. Ég var bara svo busy að það var ekkert að segja. Hvort á maður að skrifa lélegar færslur oft eða aðeins minna lélegar færslur sjaldan? :)

Já, eins og sást á vídjó blogginu um daginn, þá var ég úti í ameríkunni. Ég var í 24 daga í roadtrippi. Ég kom heim fyrir viku síðan í dag. Það var alveg fáránlega gaman þarna úti. Við byrjuðum í Boston, Massachussetts og fórum í gegnum New York, New Jersey, Delaware, Virginia, West Virginia, Kentucky, Ohio, Georgia og Florida. Gæti verið einhver fleiri fylki sem brunað var bara gegnum, en ég hef sofið í gegnum það... hehe...

Við gerðum fullt af skemmtilegum hlutum. Við fórum tvisvar á Hooters (aw yeah), fórum í Jay and Silent Bob's Secret Stash (comic búðina hans Kevin Smith í New Jersey), fórum í tvo skemmtigarða (Busch Gardens Europe og Cedar Point), fórum í Medieval Times, fórum á The Dark Knight í IMAX bíó og margt fleira.

Við vorum rúmlega hálfa ferðina á hótelum og restina hjá vinafólki. Alveg síðast, þegar við vorum í Florida, vorum við hjá manni sem heitir Tom og konunni hans. Þetta er maður sem ég, Höddi og Waage spiluðum Dark Age of Camelot með á sínum tíma og er þessi gaur algjör snillingur. Hann er 67 ára, var í US Navy í kafbát í seinni heimstyrjöldinni, hefur stjórnað kjarnorkuverum og kennt á tölvur í skóla. Þetta er algjör man-of-a-thousand-stories. Þarna var hægt að slaka á í sundlauginni hans eða bara sitja og horfa á sjónvarpið. Þetta var alveg frábær leið til að enda ferðina.

Ég og Waage fengum okkur tattoo í lok ferðar. Ég ætla ekkert að fara að segja meira um það, bara setja myndir af þeim. Fyrsta er mitt...

My new tatt
Waage's new tatt

Ég nenni varla að skrifa meira og þið nennið varla að lesa það... :P

Þið getið lesið meira um ferðina á ferðablogginu og skoðað myndir á myndasíðunni.

Kv. G

24. júlí 2008

Clash of the Titans II



Kv. G

19. júlí 2008

Clash of the Titans



Kv. G

15. júlí 2008

Vídjó blogg #1



Kv. G

29. maí 2008

Spam is fun

Ég var að fá þetta email áðan:

Confirmation Call is Required.
Ref No: NLS771005-08
Serial Number: 8LE02208
Date: 29th May 2008.

Dear Sir/Madam,

We are pleased to inform you of the result of our Nederland's Staatsloterij Internet Program that was conducted and release today the 29th day of May 2008. Your electronic mail address which we attach to the program Ref No: Ref No: NLS771005-08 and Serial Number: 8LE02208 has been selected among the lucky recipient to collect an approved payment of 1,000,000:00 euros only (One Million Euro Only) each, being the beneficiary of this email address. You are hereby advice to contact our payment processing/finance firm on the below stated details.

********************************************
Mr. Michael Eliuk
Weeps-The Netherlands.
Tel: +31-681-107970
Fax: +31-847-118266
Email: kasservices@gmail.com
********************************************

We expect you to provide them with details of the information below for the processing of your winning documents.

1). Full Names:..................
2). Residential Address: ........
3). Occupation:..................
4). Sex:.........................
5). Phone/Fax Numbers:...........
6). Country of Resident:.........
7). Nationality: ................
8). Reference Number:............
9). Serial Number:...............
10). Amount Won:.................
11). Email Address:..............
12). A scan or Fax Copy of any Valid Proof of your Identification like International Passport or Driver's License:................

All participants where selected through a computer ballot system drawn from over 20,000 company and 30,000,000 individual email addresses and names from all over the world drawn from Europe, Asia, Australia, New Zealand, Middle East, Africa, North and South America. Do note also that every email addresses that were used on this program were gotten without the knowledge of each recipient. Be informed here that all winnings must be claimed not later than the 11th Day of June 2008 and that anybody under the age of 18yrs is not eligible to apply for a claim of this amount. Congratulations from our management as we expect you to make good use of your funds. Do note also that every email addresses that were used on this program were gotten without the knowledge of each recipient.

Sincerely Yours,
Heide Adelbert
Sweepstakes Coordinator.
The Nederland?s Staatsloterij
Postbus 3334, 5902RH
Venlo-Netherlands.
Email: nlstaatsloterij@gmail.com
Copyright © 2001-2008
*********************************************
Note: In accordance with the Nederland's Staatsloterij policy and regulations, this message is dispatched directly to the recipient only. If you are not the rightful owner of this email address or feel that you have received this message by error, we advice you destroy this copy as you are not authorized to read, print, retain or disseminate any part of it for any reason.
*********************************************


Kv. G

24. maí 2008

Weezer has won the internetz!

Já, það er orðið aaaaansi langt síðan ég bloggaði síðast. Þetta verður örugglega soldið löng færsla með nokkrum vídjóum, so beware.

Heyrðu, já... Ég er náááánast búinn í prófum. Ég á eitt próf í Greiningu Rása eftir um miðjan júní og svo er maður bara útskrifaður. Ég var alveg vel sáttur við einkunirnar mínar núna. Rúmlega 7 í meðaleinkunn, þannig að það er bara flott.

Strax nóttina eftir síðasta prófið mitt í maí fór ég í Árshátíðarferð með Vodafone til Alicante. Þetta var sveittasta og sóðalegasta djammið mitt hingað til, en jafnframt eitt það skemmtilegasta líka. Þetta var stanslaust djamm frá fimmtudegi til mánudags. Rútínan var svona:

  • Vakna um hádegi milli 11 og 12.

  • Fara á torgið hinu megin við götuna frá hótelinu og fá sér Tequilla Sunrise (sem var, btw, besta Tequilla Sunrise sem ég hef fengið)

  • Fengið sér bjór og random drykki yfir daginn.

  • Kvöldmatur sem var annað hvort á torginu eða hótelinu.

  • Djamm á torginu fram á nótt.

  • Haldið áfram var að djamma í hótelherbergjum til 7 um morguninn

  • Morgunverðarhlaðborð

  • Svefn

  • Rinse and repeat

Þetta var mjög sveitt. Það er samt alveg ótrúlegt hvað sumir geta ekki verið sér til sóma og gera ákveðna hluti á hótelinu sem mér blöskarði við, amk svona eftirá. Svona í alvöru. Þegar ég var í einu partíi á svölunum í einu hótelherberginu, þá kemur einn strákur inní hótelherbergið og tæmir slökkvitæki inní herberginu. Sá hinn sami kýlir í svona brunaslöngu kassa á ganginum, brýtur glerið á kassanum og rústar á sér hendinni. Er þetta fyndið? In the moment, já... Er þetta kúl? Nei...

Danni var vel fullur í þessari ferð, sem var alveg fáránlega fyndið að sjá. Check it:





HAHAHA... Ég fæ ekki leið á þessum vídjóum, sko. Danni er alltaf svo hellaður þegar hann er fullur. Eftir þetta, þá fórum við nokkur á mitt hótelherbergi og vorum eitthvað að tjill og ég og Danni lendum í fáránlegasta rifrildi sem ég hef lent í. Það var um það að þegar Danni var á torginu, þá ældi hann og eftir það þá þurkaði hann sér um munninn með Tal svitabandi sem hann var með. Það var ekkert endilega æla sem hann þurkaði, bara bleyta. Þegar við vorum á herberginu, þá hló ég að því að Danni hafi þurrkað sér í þetta band, sem hann elskar, og hann mundi ekki eftir því og gjörsamlega brjálaðist. Það endaði með því að Danni sagði, "Ég trúi þessu ekki uppá þig Gísli. Ég hélt að þú værir betri vinur en þetta. Farðu í rassgatt..." og hann skellti hurðinni á eftir sér. Hann mundi ekki eftir þessu daginn eftir... Hahaha...

Ég kom svo heim á þriðjudags morgun kl 4 og mætti í vinnuna í Landsbankann kl 9. Það var skrautlegur dagur. Yfirmaðurinn sagði að ég ætti bara að taka hálfan dag, en ég kláraði daginn. Það er bara fínt að vera byrjaður þar aftur. Hellingur að gera og fanta gaman.

Mig langar að vita eitt. Hvað er málið með þjóðarstolltið? Svona seriously... Núna er Eurovision í gangi og er þetta fyrsta skipti í 4 ár sem við komust í aðalkeppnina og maður er alltaf að heyra íslendinga segja að við séum að fara að vinna þetta núna. Slakið aðeins á. Ég spái 10. sæti. Ég er raunsær. Þetta er gott lag, en ég trúi ekki að það fari að vinna, sko. Sjáum til á eftir.

Það hafa kannski sumir verið að vellta fyrir sér afhverju ég gaf þessum pósti þennan titil. Það er einfaldlega vegna þess að Weezer ERU búnir að vinna. Það nær enginn að toppa þá. Tékkið á þessu myndbandi:



Já! Já! Við erum að tala um Daft Bodies, Numa Numa guy, black karate dude Afro Ninja, dramatic look gopher, Tay Zonday, Chris Crocker, Mentos + Coke, Peanutbutter Jelly Time o.fl. Allt í sama myndbandi. Aaaaaalgjört gull. Weezer wins at internetz...

Ég fór á Indiana Jones 4 í gær. Ég verð bara að segja eitt... EKKI FARA Á HANA!! Hún er hræðileg; bara algjört rugl! Fyrir mér eru bara þrjár Indy myndir...

Nenniggi að skrifa meira, enda komið alveg nóg. Það verður kannski langt í næstu færslu þar sem ég er alltaf að læra fyrir prófin á daginn og er ekki einu sinni á MSN á virkum kvöldum lengur.

Kv. G